Hvaða staður er Sievierodonetsk?

Rússar hafa und­an­farna daga virst í þann veg­inn að leggja undir sig borg­ina Sievi­er­odo­netsk eftir gíf­ur­lega harða sókn og mikla stór­skota­hríð. Úkra­ínu­menn full­yrða þó að þeir ráði enn um 20 pró­sentum borg­ar­innar og varn­ar­lið þeirra láti lítt undan síga. En hvaða borg er þetta og hvaða máli skiptir hún?

Hvaða staður er Sievierodonetsk?
Hið rúss­neska stríð: Sprengja allt í tætlur, íbúða­hverfi sem önnur, — Ég veit ekki betur en þessi mynd sé frá Sievi­er­odo­netsk.

Þegar síð­ast frétt­ist héldu Úkra­ínu­menn enn ein­hverjum hluta borg­ar­innar Sievi­er­odo­netsk (eða Sever­odo­netsk upp á rúss­nesku) í Luhansk-hér­aði í Úkraínu og óljósar fregnir bár­ust meira að segja af gagn­sókn þeirra í borg­inni. Það mun þó koma á óvart ef Rússar ná ekki borg­inni næstu daga því þeir hafa lagt gríð­ar­lega áherslu á að her­nema hana.

Linnu­laus stór­skota­hríð hefur dunið á borg­inni, íbúða­hverfum jafnt sem öðrum, og þótt grunur leiki á að mikið mann­fall sé í röðum Rússa, þá hirða þeir í bili lítt um það — meðan þeir ná að fella svo og svo marga Úkra­ínu­menn, enda hefur úkra­ínski her­inn ekki enda­lausum her­mönnum á að skipa, ólíkt Rússum.

En hvaða borg er Sievi­er­odo­netsk? Af hverju skiptir hún máli í þessu stríði?

Sievi­er­odonsk hefur hér verið bætt inn á kort af Úkraínusem BBC útbjó eftir Google Maps.

Fyrir inn­rás Rússa bjuggu rétt rúm­lega 100.000 manns í borg­inni, það er að segja ívið færri en í Reykja­vík. Hún stendur örskammt norðan við ána Siverskyi Donets.

Nafnið þýðir ein­fald­lega Norður-Donets.

Sú á kemur upp í Rúss­landi, nokkuð fyrir norðan Úkraínu, rennur svo langa leið um norður- og síðan aust­ur­hluta Úkraínu og loks yfir landa­mærin til Rúss­lands aftur og sam­ein­ast þar ánni Don skömmu áður en sú síð­ar­nefnda rennur út í Azovshaf, inn­haf Svarta­hafs.

Sunnan við Siverskyi Donets stendur borgin Lysychansk en þar var einna fyrst byrjað að grafa eftir kolum í hinu þáver­andi rúss­neska keis­ara­dæmi eða laust fyrir 1800. Lysychansk og nágrenni urðu svo ein af þunga­miðj­unum í þeirri iðn­væð­ingu sem fór af stað í keis­ara­dæm­inu en komst ekki á fullan skrið fyrr en Sov­ét­ríkin komu til sög­unnar eftir valda­rán komm­ún­ista 1917.

Árið 1934 var stofnuð mikil áburð­ar­verk­smiðja í Lysychansk og þá fór byggð að skjóta upp koll­inum handan fljóts­ins, í um 20 kíló­metra fjar­lægð, þar sem þá hét Lisk­him­stroi.

Sievi­er­odo­netsk og nágranna­borgir

Ári seinna opn­aði þar sílikatverk­smiðja til að þjóna áburð­ar­verk­smiðj­unni í Lysychansk og haf­ist var handa um bygg­ingu íbúða­blokka fyrir verka­menn­ina. Í frá­sögur er fært að árið 1940 hafi til­heyrt Lisk­him­stroi 47 hús, skóli, félags­heim­ili, barna­heim­ili og vöggu­stofa, auk 10 bygg­inga sem til­heyrðu verk­smiðj­unni. Íbúar voru þá um 5.000.

Þjóð­verjar náðu Lisk­him­stroi í júlí 1942 þegar sókn þeirra í átt að Stalín­grad hófst en þeir misstu hana aftur í febr­úar 1943 þegar gagn­sókn Rauða hers­ins við Stalín­grad var að ljúka.

Eftir að heims­styrj­öld­inni lauk hófst mikil upp­bygg­ing í Lisk­him­stroi og 1951 fékk hinn vax­andi bær nýtt nafn eftir ánni og hefur síðan heitið Sievi­er­odo­netsk. Þar reis svo sér­stök nítrat­verk­smiðja sem varð með tím­anum stór og afkasta­mikil og um hana hefur lífið í bænum lengst af snú­ist. Á Wikipedíu er þess getið að árið 1965 hafi hinn nýi bær verið orð­inn svo þrótt­mik­ill að þar hafi verið talin þörf á stofnun dag­blaðs til að segja bæj­ar­frétt­irnar.

Sievi­er­odo­netsk, loft mynd af Google EarthNeðst til vinstri má sjá ána sem skilur Sievi­er­odo­netsk frá Lysychansk.

Þegar kom fram á 20. öld var Sievi­er­odo­netsk orð­inn ívið fjöl­menn­ari borg en Lysychansk, þótt ekki mun­aði miklu. Þó hafði fækkað umtals­vert í borg­inni, því árið 1991 voru íbúar 131.000. Þrátt fyrir fækkun tald­ist Sievi­er­odo­netsk nú önnur stærsta borgin í Luhansk-hér­aði á eftir Luhansk sjálfri, sem er í rétt rúm­lega 100 kíló­metra fjar­lægð, eða ámóta fjar­lægð og er milli Reykja­víkur og Hellu á Rang­ár­völlum.

Árið 2001 sögðu tölur jafn­framt að 59 pró­sent íbúa í Sievi­er­odo­netsk væru Úkra­ínu­menn, 38 pró­sent væru Rússar og tæp þrú pró­sent væru af öðru þjóð­erni. 

Þegar Pútin hófst sókn sína gegn Úkraínu 2014 lagði um 1.000 manna her­lið svo­kall­aðra aðskiln­að­ar­sinna Sievi­er­odo­netsk undir sig í maí. Þeir lýstu því yfir að borgin skyldi verða hluti af Alþýðu­lýð­veld­inu Luhansk sem stuðn­ings­menn Rússa höfðu þá stofnað að und­ir­lagi Pútins.

Sumir rúss­neskir íbúar Sievi­er­odo­netsk tóku her­nám­inu vel, enda full­yrtu þeir að Úkra­ínu­menn hefðu sýnt sér ýmsan og vax­andi yfir­gang á und­an­förnum árum. Flestir aðrir létu hins vegar mjög illa af dátum „alþýðu­lýð­veld­is­ins“ sem hefðu farið um með ránum og rupli, ofbeldi og yfir­gangi í sann­kall­aðri „ógn­ar­stjórn“. Í júlí hrakti her­lið Úkra­ínu­menn aðskiln­að­ar­sinn­ana á braut en harðir bar­dagar geisuðu í námunda við borg­ina dögum saman.

Nú var Sievi­er­odo­netsk gerð að stjórn­sýslu­setri fyrir Luhansk-hérað, þar sem Luhansk­borg sjálf var í höndum „alþýðu­lýð­veld­is­ins“ en spurn­ing hversu lengi sú skipan getur hald­ist.

Til­gangur Rússa með því að legga svo þunga áherslu á töku Sievi­er­odo­netsk er bæði að ná almenni­legri fót­festu á mik­il­vægu iðn­að­ar­svæði, en þarna í grennd eru nokkrar fleiri miðl­ungs­stórar iðn­að­ar­borgir, utan Sievi­er­odo­netsk og Lysychansk. Stóra efna­verk­smiðjan skiptir og máli. Aðallega virð­ist það þó vera stefna Rússa þessar vik­urnar að þreyta Úkra­ínu­menn með því að berja á bæði varn­ar­liði þeirra og íbúum af öllu afli.

Að sama skapi leggja Úkra­ínu­menn áherslu á að halda velli uns full­komin varn­ar­vopn taki að ber­ast þeim frá Banda­ríkj­unum og Vestur-Evr­ópu­löndum.

Svona kjósa Rússar að heyja stríð,rétt eins og Róm­verjar „leggja þeir allt í eyði og kalla það frið“.
Í lok apríl vörp­uðu Rússar sprengjum á Lysychanskáður en þeir tóku að ein­beita sér að Sievi­er­odo­netsk. Allir nágrannar þess­arar ungu móður flúðu en hún varð eftir því for­eldrar hennar og amma voru of roskin til að kom­ast á brott, enda höfðu þau engan stað að fara á. „Sem betur fer er tveggja ára sonur minn ekki mjög hræddur,“ sagði hún.
Eins og sjá má ein­beita Rússar sér að hern­að­ar­legum skot­mörkum.Önnur mynd úr sjón­varps­frétt frá Lysychansk í lok apríl.
Sjón­varps­frétta­maður sýnir tjón á íbúða­hverfi í Lysychansk.
Nær blindur maður sem hafð­ist við í kjall­ara í Lysychanskvikum saman og vissi varla hvað var að ger­ast.
Karlinn með kúst­inn vildi ekki flýja.Hann tók að sér að passa hunda nágranna sinna sem flúið höfðu vestur á bóg­inn. Ein­kenni­legt að fólk skuli ekki flýja austur á bóg­inn út að Pútin og Pútist­arnir hans halda því fram að Rússar séu að „frelsa“ úkra­ínska alþýðu.
„Þeir sprengja hvað sem er, hvenær sem er.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Arnar Gudlaugsson skrifaði
    Ef her staðsetur hermenn og hergögn innan borgarmarka eru það orðin lögleg skotmörk.Her sem staðsetur hermenn og hergögn innan borgarmarka er skildugur til að flytja alla óbreita borgara út úr átakasvæðinu. Ef ekki er farið eftir þessum reglum Genfarsáttmálans telst það stríðsglæpur.Úkraínumenn verða að hætta að nota óbreitta borgara sem skjöld í þessu stríði það er ómannúðlegt
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár