778. spurningaþraut: „Did I disappoint you?“ söng hann

778. spurningaþraut: „Did I disappoint you?“ söng hann

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað er algengt, en ekki að öllu leyti rétt, nafn sem notað er yfir bíson­uxa í Norður-Ameríku?

2.  „Nissen huts“ er nafn sem notað er í ensku um ákveðna sort af húsum. Þau þekkt­ust á til­teknu tíma­bili hér á Íslandi, ekki síður en í útlöndum. Hvað köllum við Nissen huts?

3.  Hver er höf­uð­borgin í Rúmeníu?

4.  GDRN heitir fullu nafni ... hvað?

5.  Einn þing­manna á Alþingi Íslend­inga er tölv­un­ar­fræð­ingur að mennt og hefur starfað við eft­ir­far­andi, sam­kvæmt vef Alþingis: Starfs­maður í leik­skól­unum Stað­ar­borg og Jörfa 1996–1999, kerf­is­stjóri hjá LÍN, starfs­maður við hug­bún­að­ar­þjón­ustu hjá Hugviti hf., kennsla við Folda­skóla, gæða­eft­ir­lit hjá leikja­fyr­ir­tæk­inu CCP 2006–2008, hug­bún­að­ar­sér­fræð­ingur hjá Meniga, hug­bún­að­ar­sér­fræð­ingur hjá Náms­mats­stofnun, síðar Mennta­mála­stofnun til 2016. Hver er þing­mað­ur­inn?

6.  Carrie Fisher sál­uga lét fræga prinsessu í bíó­myndum. Hvað hét prinsessan?  

7.  Hver af eft­ir­töldum orðum er EKKI eitt af ríkjum Banda­ríkj­anna? — Arkansas, Connecticut, Manitoba, Nebraska, Oregon, Vermont, Wyoming. 

8.  Rétt norður af Vatna­jökli, eða nán­ast í jök­ul­rönd­inni, eru eld­föll sem gosið hafa á sögu­legum tíma. Hvað heita þessi fjöll?

9.   Hvað fékkst Jussi Björling við í líf­inu?

10.  Árið 2003 lést vestur í Banda­ríkj­unum rúm­lega sjö­tugur söngv­ari og tón­list­ar­maður sem var fyrst og fremst kunnur fyrir country-músík en vin­sældir hans náðu reyndar langt út yfir sér­staka áhuga­menn um þá tón­list. Enda kom hann víða við. Á sjö­unda ára­tugnum söng hann með sinni djúpu rödd um fang­els­is­mál vestan hafs en laust fyrir alda­mótin náði útgáfa hans var lag­inu One með U2 miklum vin­sældum. Hvað hét hann? 

***

Seinni auka­spurn­ing: 

Hér er mynd úr Þjóð­vilj­anum frá 1988. Hvaða hljóm­sveit má sjá þarna?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Buffaló.

2.  Braggar.

3.  Búkarest.

4.  Guðrún Ýr Eyfjörð.

5.  Björn Leví.

6.  Leia (úr Star Wars).  

7.  Manitoba er fylki í Kanada, ekki ríki í Banda­ríkj­unum.

8.  Kverk­fjöll.

9.  Söng.

10.  Johnny Cash.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Amber Heard leik­kona. Þarna flytur hún mál sitt í rétt­ar­höldum vegna máls er fyrrum eig­in­maður hennar Johnny Depp höfð­aði gegn henni.

á neðri mynd­inni er hljóm­sveitin Síðan skein sól.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EM
    Eyjólfur Magnússon skrifaði
    Í bókinni Náttúruvá á Íslandi, eldgos og jarðskjálftar frá 2013 er kafli um Kverkfjöll skrifaður af Magnúsi Tuma Guðmundssyni og fleirum. Þar segir: "Gossaga Kverkfjallakerfisins er ekki vel þekkt, en þó má telja nánast víst að ekki hafi gosið þar eftir að land byggðist". Samhljóða upplýsingar má finna um Kverkfjöll á https://islenskeldfjoll.is/#
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár