Félag Samherja sem átti útgerðina í Namibíu seldi kvóta sinn á Íslandi

Eign­ar­halds­fé­lagið sem Samherji not­aði til að halda utan um rekstur sinn í Namibíu seldi fisk­veiði­kvóta sinn á Íslandi til íslensks dótt­ur­fé­lags Samherja árið 2020. Þetta fyr­ir­tæki, Sæból fjár­fest­ing­ar­fé­lag, var í 28. sæti yfir stærstu kvóta­eig­endur á Íslandi um vorið 2019. Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram hvernig reynt hefur verið að skera á tengsl þess við Ísland í kjöl­far Namib­íu­máls­ins.

Félag Samherja sem átti útgerðina í Namibíu seldi kvóta sinn á Íslandi
Á ekki lengur kvót­ann Félagið sem Samherji hefur notað til að halda utan um rekstur félags­ins í Namibíu hefur selt fisk­veiði­kvóta sinn á Íslandi. Félagið var í 28. sæti yfir stærstu kvóta­eig­endur á Íslandi árið 2019. Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja. Mynd: Davíð Þór

Sæból fjár­fest­ing­ar­fé­lag, sem hélt utan um rekstur íslenska útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja í Namibíu, seldi fisk­veiði­kvóta sinn á Íslandi til ann­ars félags í Sam­herja­stæð­unni árið 2020. Sæból var um mitt ár í 28. sæti yfir stærstu kvóta­eig­endur á Íslandi með tæp­lega 3.200 tonn, í þorski og grá­lúðu. Um var að ræða 0,75 pró­sent af heild­ar­kvót­anum við Ísland. Nú er félagið hins vegar ekki lengur kvóta­eig­andi hér á landi. Dótt­ur­fé­lag Samherja, Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, keypti þennan kvóta félags­ins fyrir tæp­lega 13,1 milljón doll­ara árið 2020 eða sem nemur rúm­lega 1.664 millj­ónum króna.

Sæból, sem áður hét Polaris Seafood, hafði fyrir þetta haldið á veru­legum afla­heim­ildum við Ísland fyrir Samherja um margra ára skeið.

Þetta sama félag hélt svo meðal ann­ars utan um eign­ar­hluti Samherja í annarri Afr­íku­út­gerð, Kötlu Seafood sem veiddi aðal­lega í Marokkó og Márit­aníu fram til árs­ins 2013. Sæból á tvö dótt­ur­fé­lög á Kýpur, Esju Seafood og Esju Shipping, sem saman áttu eignir upp á tæp­lega 150 millj­ónir doll­ara í árs­lok 2020, eða 19 millj­arða króna í árs­lok 2020, sam­kvæmt árs­reikn­ingi Sæbóls.

„Mik­il­vægir hags­muna­að­ilar sem félagið á í sam­skiptum við, bankar, birgjar og stórir við­skipta­vinir hafa haldið tryggð við félagið“
Úr árs­reikn­ingi Sæból fjár­fest­ing­ar­fé­lags

Um söl­una á kvót­anum til Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga segir í árs­reikn­ingnum: „Félagið seldi rekstr­ar­fjár­muni sína í árs­lok 2020 til Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga ehf., sem er dótt­ur­fé­lag Samherja hf.“ Með rekstr­ar­fjár­munum er átt við afla­heim­ildir, kvóta.

Samhliða því að Sæból seldi kvóta sinn á Íslandi til ann­ars Sam­herj­a­fé­lags þá hætti eign­ar­hald þess að vera á hendi íslensks félags. Í upp­hafi árs var félagið í eigu Samherja Holding ehf., sem meðal ann­ars á hluta­bréf Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í Eim­skipa­fé­lagi Íslands, en í lok árs var félagið komið í hendur fyr­ir­tækis í Hollandi sem heitir Alda Seafood Holding BV.  Stundin hefur áður greint frá flutn­ingi eigna í sam­stæðu Samherja til Hollands. 

Félagið til rannsóknar frá árinu 2019

Rekstur Samherja í Namibíu hefur verið til rann­sóknar hjá namibískum og íslenskum yfir­völdum frá því í lok árs 2019 eftir að greint var frá mútu­greiðslum útgerð­ar­innar til áhrifa­manna í Namibíu í Kveik, Stund­inni, Wikileaks og Al Jazeera. Í árs­reikn­ingi Sæbóls fjár­fest­ing­ar­fé­lags kemur fram, líkt og raunar áður hefur verið sagt frá opin­ber­lega ítrekað, að Samherji hafi lagt rekst­ur­inn í Namibíu af eftir að greint var frá þessum upp­lýs­ingum.

Lítið hefur spurst út um gang rann­sókn­ar­innar á Íslandi en Stundin hefur áður greint frá yfir­heyrslum á hendur nokkrum starfs­mönnum og fyrr­ver­andi starfs­mönnum Samherja. Eftir því sem næst verður kom­ist er rann­sóknin í fullum gangi en COVID-19 far­ald­ur­inn hægði á henni, meðal ann­ars vegna örð­ug­leika á sam­skiptum og sam­vinnu við yfir­völd í Namibíu. 

Tala ennþá um „ásak­anir" Jóhann­esarSamherji stillir rann­sókn Namib­íu­máls­ins upp þannig að um sé að ræða „ásak­anir" Jóhann­esar Stef­áns­sonar.

Um rann­sókn­ina og þessa aflögðu starf­semi segir í árs­reikn­ingi Sæbóls: „Í októ­ber 2019 sak­aði fyrr­ver­andi starfs­maður erlends dótt­ur­fé­lags Samherja Holding [Jóhannes Stef­áns­son] félagið og starfs­menn sam­stæð­unnar um lög­brot. Félagið tók þessar ásak­anir alvar­lega og réð stjórn félags­ins strax til sín alþjóð­legu lög­mann­stof­una Wikborg Rein til að fram­kvæma ítar­lega rann­sókn á starf­semi dótt­ur­fé­laga sem tengd­ust starf­sem­inni í Namibíu.

Rannsókn Wikborg Rein var mjög yfir­grips­mikil og voru nið­ur­stöður hennar kynntar stjórn félags­ins í júlí 2020. Ásak­an­irnar eru til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Namibíu og á Íslandi en ekki hefur verið höfðað mál á hendur félag­inu. Félagið hefur mót­mælt öllum ásök­unum um lög­brot og gert grein fyrir sjón­ar­miðum sínum opin­ber­lega. Það hefur fjallað ítar­lega um hvað fór úrskeiðis í rekstr­inum í Namibíu og hvers vegna. Gripið hefur verið til víð­tækra ráð­staf­ana til að koma í veg fyrir að slík atvik geti hent á ný. Mik­il­vægir hags­muna­að­ilar sem félagið á í sam­skiptum við, bankar, birgjar og stórir við­skipta­vinir hafa haldið tryggð við félagið. Starf­semi dótt­ur­fé­laga í Namibíu var lögð niður í árs­lok 2019 og hefur verið lögð áhersla á að dótt­ur­fé­lög í land­inu muni upp­fylla skyldur gagn­vart namibískum yfir­völdum.“

Eitt af því sem er áhuga­vert við þessi orð um að „mik­il­vægir hags­mun­að­ilar“ hafi haldið tryggð við félagið er að þau eru ekki alveg sönn. Eins og greint var frá í fjöl­miðlum hætti meðal ann­ars DNB-bank­inn norski að þjón­usta Samherja í kjöl­far Namib­íu­máls­ins auk þess sem fyr­ir­tækið skipti um end­ur­skoð­anda hér á landi. 

Kröfur í Nambibíu og Færeyjum

Í árs­reikn­ingi Sæbóls er einnig fjallað um það að stjórn­völd í Namibíu og Færeyjum hafi gert kröfur á hendur namibískum félögum Samherja sem lögð hafa verið niður í kjöl­far Namib­íu­máls­ins. Um er að ræða kröfur vegna ætl­aðra van­greiddra skatta meðal ann­ars en í Namib­íu­mál­inu var meðal ann­ars greint frá notkun Samherja á félagi í skatta­skjól­inu Máritíus. Þá er einnig greint frá skatt­rann­sókn fær­eyskra yfir­valda á Samherja vegna van­greiddra skatta af launum áhafna útgerð­ar­innar þar í landi. 

Um þessi tvö mál segir í árs­reikn­ingnum:  „Stjórn­völd í Namibíu hafa stofnað til nokk­urra skatta- og ann­arra lög­fræði­legra krafna á hendur namibískum dótt­ur­fé­lögum sam­stæð­unnar. Þar á meðal er mögu­legt end­ur­mat á skatt­greiðslum að fjár­hæð 318 millj­ónum Namib­íu­dala (22 millj. Banda­ríkja­dala). Nið­ur­stöðu þess og tengdum máls­kostn­aði er ekki hægt að áætla með nægi­legri vissu. Stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafa mót­mælt þessum kröfum. Samherji hf., hefur greitt fyrir hönd Sp/f Tind­hólms, dótt­ur­fé­lags Sæbóls fjár­fest­inga­fé­lags ehf., sam­tals um 17 millj­ónir danskra króna til fær­eyskra skatt­yf­ir­valda vegna óvissu um gildi skatt­frelsis fyrir ákveðna áhafn­ar­með­limi. Skatt­yf­ir­völd í Færeyjum hafa til­kynnt dótt­ur­fé­lagið Sp/F Tindhólm til lög­reglu. Málið snýst um til­kynn­ingu til fær­eyskra yfir­valda varð­andi áhöfn um borð í skipum sem skráð eru í alþjóð­legri og lands­skipa­skrá Færeyja. Óljóst er hvort eða hvernig fær­eysk skatta­yf­ir­völd og lög­regla munu fylgja mál­inu eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár