768. spurningaþraut: Ættfræði oddvita VG og sitthvað fleira

768. spurningaþraut: Ættfræði oddvita VG og sitthvað fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða fáni blaktir hér svo fag­ur­lega?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er borgin Vla­di­vostok?

2.  Nátt­úru­lækn­inga­hælið svo­nefnda heitir nú Heilsu­stofnun. Hvar er sú heilsu­stofnun nið­ur­komin?

3.  Björn Þor­finns­son heitir maður, hann er rit­stjóri vin­sæls net­mið­ils. Hvaða net­mið­ill er það?

4.  Björn er auk starfa sinna við fjöl­miðla alþjóð­legur meist­ari í ... hverju?

5.  Grammy-verð­launin eru veitt fyrir ... hvað?

6.  Í hvaða sjón­varps­þátta­röð sagði frá Ewing-fjöl­skyld­unni þar sem skúrk­ur­inn JR lét mest að sér kveða?

7.  Hvað heitir odd­viti Vinstri grænna í borg­ar­stjórn Reykja­vík sem til­kynnti eftir kosn­ingar á dög­unum að VG sækt­ist ekki eftir því að kom­ast í borg­ar­stjórn?

8.  Móðir odd­vit­ans er rit­höf­undur og þýð­andi, sem vakti tölu­verða athygli fyrir um 40 árum fyrir skáld­sög­urnar Hægara pælt en kýlt, Götu­ræsiskandídatar og Sætir strákar, en hefur verið kunn­ust fyrir þýð­ingar nú seinni árin. Hún hefur þýtt gríð­ar­mikið, jafnt bíó­myndir og teikni­mynda­sögur sem skön­literatur, og þýddi til dæmis tvær bókanna um Hung­ur­leik­ana. Hvað heitir hún?

9.  Áfram með ætt­fræð­ina: Bróðir þessa mik­il­virka rit­höf­undar og þýð­anda (og því móð­ir­bróðir odd­vita VG!) var yfir­maður einnar helstu og þekkt­ustu menn­ing­ar­stofn­unar Íslend­inga árin 2015-2019. Hvað heitir hann?

10.  En hver er menn­ing­ar­stofn­unin sem hann stýrði?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða bíó­mynd frá síð­asta ári lék þetta unga fólk stór hlut­verk?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rúss­landi.

2.  Hvera­gerði.

3.  Dv.is.

4.  Skák.

5.  Tónlist.

6.  Dallas.

7.  Líf Magneu­dóttir.

8.  Magnea J. Matth­í­as­dóttir.

9.  Ari Matth­í­as­son.

10.  Þjóð­leik­húsið.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fáninn er fáni Ástralíu.

Og unga fólkið lék í scifi mynd­inni Dune.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár