767. spurningaþraut: Spurt er um dýr

Fyrri auka­spurning:

Hér að ofan má dýr nokkurt. Hvaða dýr?

***

Aðal­spurningar:

1.  Tvö karlalið í Úrvals­deild enska fótboltans spila leiki sína á völlum sem eru aðeins í 800 metra fjarlægð hvor frá öðrum. Hvaða tvö lið eru það? Og svo fæst lárviðar­stig fyrir rétt svar við auka­spurningunni: Hvað heitir garðurinn sem er milli vallanna tveggja?

2.  Hver af þessum aðals­titlum er alla jafna sá merkilegasti: Barón  —  Greifi  — Hertogi  —  Jarl?

3.  Í hvaða borg bjó Adolf Hitler meðan hann var að brjótast til valda í stjórn­málum í Þýska­landi? 

4.  Hvað telja sumir að leynist á Svæði 51?

5.  Í hvaða heimsálfu er landið Burundi?

6.  Hver var forseti Banda­ríkjanna á undan Barack Obama?

7.  Hvað er ókapí?

8.  Hversu mörg horn eru á STOP-skiltinu úti í umferðinni?

9.  Á jólunum er sungið: „Göngum við í kringum ... “ hvað?

10.  Afrakstur þess sem gengið er í kringum á jólunum er notaður til að brugga tiltekna sterka áfengis­tegund. Hver er sú?

***

Seinni auka­spurning:

Hér að neðan er sena úr nýju íslensku leikriti. Hver skyldi vera höfundur þess?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Liverpool og Everton. Garðurinn heitir Stanley Park.

2.  Hertogi.

3.  München.

4.  Geimverur.

5.  Afríku.

6.  George W. Bush.

7.  Dýra­tegund.

8.  Átta.

9.  Einiberjarunn.

10.  Úr einiberjum er bruggað gin, og einnig má nefna genever.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er minkur.

Á neðri mynd sést mynd úr leikriti Tyrfings Tyrfings­sonar, Sjö ævintýri um skömm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KÓS
    Kristjana Ólöf Sigurðardóttir skrifaði
    Gin er ekki bruggað úr einiberjum heldur eru einiber látin liggja í spíra s.s. eins og Gammel Dansk og fleiri elexírar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár