757. spurningaþraut: Fjölmennasta borgin sem er ekki höfuðborg?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða fjall er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var síð­asta drottn­ingin sem ríkti yfir Skotlandi einu?

2. Tvö pör ríkja í Banda­ríkj­unum heita Norður- og Suður-eitt­hvað. Norður- og Suður-hvað, sem sagt?

3.  Eitt ríki í við­bót er kennt við höf­uð­átt. Það er Vestur-hvað?

4.  Tvö Evr­ópu­ríki hafa ein­hverja af höf­uð­átt­unum í opin­beru heiti sínu. Nefnið að minnsta kosti annað.

5.  Hvers konar kjöt er fram­leitt mest af í heimi hér — og þar af leið­andi étið mest af því líka?

6.  Hvað gerði Friedrich Paulus þann 31. jan­úar 1943?

7.  „Heyrðu snöggvast ...“ hver?

8.  Í hvaða sveit er bisk­ups­setrið í Skál­holti?

9.  Ef við und­an­skiljum borgir í Tyrk­landi og Rúss­landi, hver er þá fjöl­menn­asta borg í Evrópu sem er EKKI höf­uð­borg í ein­hverju ríki?

10.  Sumir segja að Campi Flegrei sé hættu­leg­asta eld­stöð í heimi. Þar hefur ekki gosið í 500 ár og síð­asta gos var reyndar afskap­lega lítið en jarð­vís­inda­menn telja að undir sig­katli Campi Flegrei leyn­ist ofur­eld­stöð sem geti gosið þegar minnst varir og yfir­borðið tæst í sundur undan fjöl­mörgum gígum og sprungum og vellandi hraun­flóðum. Eld­stöðin er í aðeins 10 kíló­metra fjar­lægð frá millj­óna­borg einni, þar sem íbúar yrðu í mik­illi hættu staddir ef gos hæf­ist. Ekki nóg með það, heldur er önnur trölls­leg eld­stöð í 10 kíló­metra fjar­lægð frá sömu borg, en í gagn­stæðri átt. Hvaða borg er svo ískyggi­lega stað­sett?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi stúlka varð sjö ára um dag­inn. Af hverju komst það í frétt­irnar?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  María Stúart.

2.  Norður- og Suður-Dakota ann­ars vegar og hins vegar Norður- og Suður-Karólína.

3.  Virginía. 

4.  Norður-Makedónía og Aust­ur­ríki.

5.  Svína­kjöt.

6.  Gafst upp við Stalín­grad.

7.  Snati minn.

8.  Bisk­ups­tungum.

9.  Hamborg í Þýska­landi.

10.  Napólí.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fjallið Fuji í Japan.

Stúlkan á neðri mynd­inni komst í frétt­irnar því hún er dóttir Vil­hjálms her­toga af Cambridge sem vænt­an­lega verður kon­ungur Bret­lands í fyll­ingu tím­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár