758. spurningaþraut: Hvar endaði Andrómeda? Og hver er hún?

Fyrri auka­spurn­ing:

Skoðið mynd­ina hér fyrir ofan. Hver er besti vinur hans? (Vís­bend­ing: Það er EKKI fiðr­ildið.)

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Andrómeda var kon­ungs­dóttir frá Eþíópíu, að sagt er. En sagnir um ævi hennar er þó að finna í hug­mynda­heimi ann­ars lands. Hvaða lands?

2.  Núorðið er önnur Andrómeda öllu þekkt­ari en þessi gamla. Hver er sú Andrómeda?

3.  Margt er á huldu um þróun hesta. Þó er talið nokkuð víst að for­feður og -mæður hinna fyrstu eig­in­legu hesta hafi þró­ast í einni ákveðnni heims­álfu. Hver er sú?

4.  Löngu seinna voru hestar komnir á aðrar slóðir og yfir­leitt er talið að for­feður og -mæður tam­inna hesta hafi þró­ast á ákveðnu svæði, sem er ... hvað?

5.  Flest innri líf­færi manns­ins eru ein­stæð í sinni röð. Við höfum til dæmis aðeins eitt hjarta. En tvö af hinum stóru líf­færum eru þó í tví­riti, ef svo má segja. Hver eru þau?

6.  Hvaða ríki til­heyrir Baffins­land?

7.  Í hvaða borg í Evrópu þjón­aði Vladimir Pútin sem njósn­ari KGB?

8.  Við hvað starf­aði Naomi Campbell og gerir jafn­vel enn þegar vel liggur á henni?

9.  Ingvar Helgason heitir íslenskur hug­vits- og athafna­maður sem starfar að vísu fyrst og fremst í útlöndum, en þar eru hann og fyr­ir­tæki hans Vitrolabs í far­ar­broddi við þróun og fram­leiðslu á ... hverju?

10.  Eldri bróðir Ingvars er þekktur fjöl­miðla­maður á Íslandi. Hvað heitir hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fyr­ir­tæki, stofnun, ríki eða sam­tök nota lógóið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Grikk­lands.

2.  Stjörnu­þoka.

3.  Norður-Ameríka.

4.  Mongólía.

5.  Lungu og nýru.

6.  Kanada.

7.  Dresden.

8.  Fyr­ir­sætu­störf.

9.  Leðri. Um er að ræða leður úr stofn­frumum. Að segja „gervi­leður“ er í raun­inni ekki rétt, en ég ætla þó að gefa stig fyrir ef ein­hver slys­ast til að segja það.

10.  Egill.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Besti vinur Tígra er Bangsímon.

Merkið notar UNICEF, Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár