747. spurningaþraut: Ungar þingkonur og fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi frétta­kona hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Jóhanna María Sig­munds­dóttir er yngst allra sem hefur verið kjörin á Alþingi Íslend­inga. Það gerð­ist árið 2013 þegar hún var kosin fyrir ... hvaða flokk?

2.  En hve gömul var Jóhanna María þá?

3.  Í fyrra varð Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir hins vegar yngst allra sem setið hafa á þingi þegar hún sat þar um hríð sem vara­maður. Hún var þá aðeins 19 ára. En fyrir flokk er hún vara­maður?

4.  Hvað heitir stærsta borgin í Massachusetts ríki í Banda­ríkj­unum?

5.  Hvað eru sigma, tau og upsilon?

6.  Kvik­myndin Á hverf­anda hveli eða Gone With the Wind ger­ist í og eftir ákveðna styrj­öld. Hvaða styrj­öld er það?

7.  Hvað heitir höf­uð­borg Norður-Írlands?

8.  Hvað hét þekktasta hús­freyjan á Berg­þórs­hvoli? Skírn­ar­nafn dugar.

9.  Af hvaða ætt- eða kyn­stofni er Bilbo Baggins?

10.  Hvað heitir heiðin milli Þing­valla­vatns og Laug­ar­vatns þar sem nú er greið­fær akvegur?

***

Seinni auka­spurn­ing (og þessi er frekar erfið, já):

Hvað heitir karl­inn til hægri á mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fram­sókn­ar­flokk­inn.

2.  21.

3.  Pírata.

4.  Boston.

5.  Stafir í gríska staf­róf­inu.

6.  Borg­ara­stríðið í Banda­ríkj­unum.

7.  Belfast.

8.  Bergþóra.

9.  Hann var hobbiti.

10.  Lyngdals­heiði.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Sunna Val­gerð­ar­dóttir.

Á neðri mynd­inni er Búkharín til hægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Tobbo Thor skrifaði
    Það er reyndar misskilningur að greiðfær akvegur liggi um Lyngdalsheiði. Um Lyngdalsheiði hefur aldrei legið bílfær vegur. Vegurinn frá Þingvöllum til Laugarvatns liggur norðan við Lyngdalsheiði í dalnum milli hennar og Gjábakkahrauns; Kringlumýri og svo um Beitivelli, Blöndumýri og Lönguhlíð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár