748. spurningaþraut: Hvaða jurt ber ber sem er þó ekki ber?

Fyrri auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und er þessi blá­eygi hundur?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver leysti málið um Baskerville-hund­inn?

2.  Hver átti upp­haf­lega hund­inn Sám sem sagt er frá í Njáls­sögu?

3.  En sá gaf hund­inn frægri hetju. Hetjan var ... hver?

4.  Fræg hjón á vorum dögum áttu líka hund sem nefndur var Sámur. Og þar er um að ræða ...?

5.  Hvað er átt við með hug­tak­inu „Sámur frændi“?

6.  Fræg berja­teg­und, sem við köllum svo, er víst í raun­inni alls ekki ber í fræði­legum skiln­ingi, heldur svo­kallað skin­aldin. Þetta „ber“ (sem kall­ast frag­aria á lat­ínu) er flutt inn til Íslands í stórum stíl en vex líka villt hér landi, þó ekki sé það víða. Hvaða skin­aldin er hér um að ræða?

7.  Christiaan Barnard var frægur skurð­læknir sem fram­kvæmdi ákveðna aðgerð fyrstur allra árið 1967. Sjúk­lingur hans lifði reyndar ekki lengi eftir aðgerð­ina, en hver var aðgerðin?

8.  Í hvaða landi er borgin Bologna?

9.  Hvaða skáld­saga segir frá Winston Smith og glímu hans við harð­neskju­leg stjórn­völd í rík­inu Oceaniu?

10.  Mikill umhverf­is­sátt­máli var sam­þykktur árið 2015 og eru þar til­greind þau mark­mið sem stefnt skal í lofts­lags­málum. Við hvaða borg er sátt­mál­inn kenndur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá tákn fyrir ... hvað?

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  Sherlock Holmes.

2.  Ólafur pái.

3.  Gunnar á Hlíð­ar­enda.

4.  Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.

5.  Banda­ríkin.

6.  Jarð­ar­ber.

7.  Hjarta­ígræðsla.

8.  Ítalíu.

9.  1984.

10.  París.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Hund­ur­inn er Síberíu-Husky.

Táknið kall­ast yin-yang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár