749. spurningaþraut: Í fyrsta — og síðasta — sinn er í boði sérstakt Kólumkilla-stig!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver lék Mad Max í þremur bíó­myndum frá 1979 til 1985?

2.  Fræg söng­kona lék aðal­kven­rull­una í þriðju mynd­inni, Mad Max Beyond Thund­er­dome. Hvað heitir hún?

3.  Lag sem söng­konan kvað í þeirri mynd varð afar vin­sælt og heyr­ist jafn­vel enn stöku sinnum í útvarpi. Hvað hét lagið?

4.  Hvað heitir vit­inn á Sel­tjarn­ar­nesi?

5.  Hvað heitir umsjón­ar­maður Smartlands­ins á Mbl.is?

6.  Hvað heitir borgin þar sem sjón­varps­s­er­ían The Simpsons ger­ist?

7.  Árið 1966 hófst svokölluð menn­ing­ar­bylt­ing í landi einu. Henni var ætlað að snúa lands­mönnum á „rétta“ braut í sam­fé­lags­málum í víðum skiln­ingi en hafði ómældar hörm­ungar í för með sér. Í hvaða landi varð þessi menn­ing­ar­bylt­ing?

8.  Hvaða tveir höf­undar skrif­uðu Komm­ún­ista­ávarpið?

9.  Í frægri íslenskri skáld­sögu segir frá því í fyrsta kafla að írskur sær­inga­maður eða munkur að nafni Kól­um­k­illi hafi lagt bölvun á nor­ræna menn sem hröktu írska munka burt frá land­inu. Og sú bölvun lendir á jörð sögu­hetj­unnar. Hvað heitir skáldsagan?

10.  Og hver skrif­aði hana?

Svo er hér ein auka­spurn­ing sem gefur sér­stakt Kól­um­k­illa-stig. Hvaða víð­fræga alþjóð­lega film­stjarna heitir Columcille að milli­nafni?

***

Seinni. auka­spurn­ing:

Hvað er athuga­vert við þessa mynd af aust­an­verðu Mið­jarð­ar­hafi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mel Gibson.

2.  Tina Turner.

3.  We Don't Need Another Hero.

4.  Gróttu­viti.

5.  Marta María.

6.  Spring­fi­eld.

7.  Kína.

8.  Marx og Engels.

9.  Sjálf­stætt fólk.

10.  Halldór Laxness.

Hin alþjóð­leg film­stjarna er Mel Columcille Gibson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Jacqueline Kennedy, síðar Onassis.

Á neðri mynd­inni hefur Kýpur verið þurrkuð út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár