Sögðu fáheyrt að ráðherrar lýstu ekki stuðningi við samráðherra

Stjórnar­andstöðu­þingmenn kölluðu eftir því að Sigurður Ingi Jóhannsson kæmi fyrir þingið og svaraði fyrir rasísk ummæli sín. Forseti Alþingis kvaðst ekki ætla að breyta dagskrá þingsins.

Samþykkti ekki að kalla á Sigurð Inga
Sam­þykkti ekki að kalla á Sigurð Inga Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, féllst ekki á kröfu stjórn­ar­and­stöð­unnar um að Sigurður Ingi kæmi fyrir þingið og stæði fyrir máli sínu.

Þingmenn stjórnar­andstöðunnar kröfðust þess í dag að Sigurður Ingi Jóhannson innviða­ráðherra og formaður Framsóknar­flokksins kæmi fyrir Alþingi og gerði grein fyrir máli sínu, er varðar rasísk ummæli sem hann lét falla í liðinni viku. Forseti Alþingis varð ekki við því. Ekki hefur borist formleg kvörtun til forsætis­nefndar Alþingis vegna hugsanlegs brots Sigurðar Inga á siða­reglum þingmanna.

Sigurður Ingi játaði í gær að hafa haft óviðurkvæmileg orð um Vigdísi Häsler, framkvæmda­stjóra Bænda­samtakanna, í boði Framsóknar­flokksins síðastliðinn fimmtudag. Áður hafði Vigdís birt yfir­lýsingu um að Sigurður Ingi hefði viðhaft mjög særandi orðfæri. Samkvæmt heimildum Stundarinnar vísaði Sigurður Ingi til Vigdísar sem „þeirrar svörtu“.

Halldóra Mogensen, þing­flokks­formaður Pírata, fór fram á að ræða fundar­stjórn forseta Alþingis við upphaf þing­fundar í dag. Vakti hún þar máls á því að Sigurður Ingi hefði orðið uppvís að hegðun sem væri „ólíðandi fyrir ráðherra í ríkis­stjórn og formann stjórnar­flokks.“ Hann hefði farið undan í flæmingi aðspurður um málið og neitað að svara því með hvaða hætti hann hygðist axla ábyrgð.

Halldóra benti á að til stæði að ræða á Alþingi fjármála­áætlun þar sem Sigurður Ingi ætti að vera viðstaddur og svara fyrir sín málefna­svið. „Það gengur ekki, forseti, að Alþingi haldi bara áfram eins og ekkert hafi í skorist, enda starfar ríkis­stjórnin í umboði meiri hluta þingsins. Ég fer því fram á að ráðherra komi fyrir þingið, geri grein fyrir máli sínu í yfir­lýsingu samkvæmt 61. grein þingskapa og í kjölfarið gefist þing­mönnum kostur á að eiga orðastað við ráðherra. Ráðherra verður að gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart þinginu og almenningi áður en lengra er haldið.“

„Við hér inni hljótum að gera ský­lausa kröfu um að hann svari fyrir fram­göngu sína en sýni ekki fjöl­miðlum bara aft­ur­end­ann á sér“
Jóhann Páll Jóhanns­son
þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar um Sigurð Inga.

Þingmenn allra stjórnar­andstöðu­flokkanna tóku undir með Halldóru. „Við hér inni hljótum að gera skýlausa kröfu um að hann svari fyrir framgöngu sína en sýni ekki fjöl­miðlum bara aftur­endann á sér,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar í umræðunum.

Forseti vildi ekki breyta dagskrá

Birgir Ármannsson forseti Alþingis tók þá til máls og greindi frá því að hann hefði átt fundi með þing­flokks­formönnum um dagskrá þingsins. Ósk um að Sigurður Ingi kæmi fyrir þingið og gerði grein fyrir máli sínu hefði ekki komið þar fram og því hyggðist forseti ekki gera breytingar á dagskránni.

Þingmenn stjórnar­andstöðunnar voru ekki sáttir við þá afstöðu Birgis og ítrekuðu eindregið stuðning sinn við kröfu Halldóru. „Ég set spurninga­merki við það hversu einlæg og hversu ærleg sú afsökunar­beiðni var sem hæstvirtur ráðherra setti fram þegar hann gerði það í því samhengi að hann var kominn algjör­lega upp að vegg. Það er nauðsynlegt að þetta samtal fái að eiga sér stað hér inni í þessum sal,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir, þingkona Viðreisnar.

Bjarni sagði rangt farið með orð sín

Þá var á það bent í ræðum þing­mannanna Sigmars Guðmunds­sonar, áður­nefndra Jóhanns Páls og Þorbjargar og Andrésar Inga Jónssonar, að samráð­herrar Sigurðar Inga, þau Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, og Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, hefðu ekki treyst sér til að lýsa yfir stuðningi við Sigurð Inga þegar Ríkis­útvarpið spurði þau út í málið.  Var meðal annars verið að vísa til ummæla Bjarna þegar hann var spurður hvort hann teldi Sigurði Inga sætt í embætti vegna málsins. „Það er alfarið mál þess sem á í hlut hverju sinni að leggja mat á það og ég ætla ekki að leggja neitt á mig til þess að hjálpa til við það,“ sagði Bjarni í viðtali við Ríkis­útvarpið.

„Ef þú styður rík­is­stjórn­ina sem ráð­herra þá seg­irðu: Já, mér finnst hann ekk­ert eiga að segja af sér“
Andrés Ingi Jónsson
þing­maður Pírata um svör Bjarna Bene­dikts­sonar

„Er ástandið í stjórnar­ráðinu orðið það viðkvæmt, eins og endur­speglast í því til dæmis að formaður Sjálfstæðis­flokksins, þegar hann er spurður hvort hann styðji innviða­ráðherra, segir ekki já. Það er eina svarið sem er í boði þegar þú ert ráðherra í ríkis­stjórn. Ef þú styður ríkis­stjórnina sem ráðherra þá segirðu: Já, mér finnst hann ekkert eiga að segja af sér,“ sagði Andrés Ingi í umræðunum um fundar­stjórn forseta.

Bjarni kom þá í ræðustól og sagði rangt farið með orð sín þegar því hafi verið haldið fram að hann hafi neitað að veita Sigurði Inga stuðnings­yfirlýsingu. „Þetta er bara alrangt. Það sem ég var að bregðast við var beiðni frétt­manns um það að taka afstöðu með því hvort að annar stjórn­málamaður ætti að segja af sér. Það er bara mín skoðun að það fer ekkert sérstak­lega vel á því að einn stjórn­málamann segi annan ætti að segja af sér.“

Umræðum um fundar­stjórn forseta lauk án þess að orðið yrði við kröfu um að Sigurður Ingi mætti fyrir þingið.

Fyrr í dag hafði Stundin samband við Birgi Ármannsons þing­forseta og innti hann eftir því hvort kvörtun vegna hugsanlegs brots Sigurðar Inga á siða­reglum þingmanna hefði komið inn á borð forsætis­nefndar. Svaraði Birgir því til að svo væri ekki, svo honum væri kunnugt um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það eru í raun þrjár ríkisstjórnir í landinu. Þetta mál opinberar með skýrum hætti valdleysi Katrínar Jakobsdóttur.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár