691. spurningaþraut: Líklega óvenju margar spurningar um menningu í þetta sinn

Fyrri auka­spurning:

Myndin hér að ofan prýðir ansi vinsæla skáldsögu. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hver er umsjónar­maður sjónvarps­þáttarins Kiljan?

2.  Hverju sækjast þeir eða þær eftir sem breima?

3.  Hver skrifaði leikritið Ég er meistarinn sem frumsýnt var í Borgar­leikhúsinu 1990 og var síðan sýnt víða um heim?

4.  Hver leik­stýrði kvik­myndinni Jurassic Park, þeirri fyrstu í röð mynda með því nafni?

5.  Hver sendi frá sér skáld­söguna Eyland árið 2016?

6.  Hver skyldi hafa verið útgangs­punktur þeirra skáldsögu?

7.  Hvað hét aflandseyja­félagið sem þáverandi formaður Framsóknar­flokksins var spurður um í frægu viðtali árið 2016?

8.  Hvað hét annars þessi formaður Framsóknar­flokksins?

9.  Hvað heitir stærsta eyjan sem tilheyrir Afríku?

10.  Causton heitir borg ein á Englandi sem margir þekkja úr sjón­varpinu. Frændur tveir dugmiklir og snjallir eru líklega þekktustu íbúar borgarinnar. Hvaða ættarnafn bera þeir?

***

Seinni auka­spurning:

Eins og í fyrri auka­spurningu er hér spurt um skáldsögu eða öllu heldur skáld­sagnaflokk. Nýlega var frumsýnd hér á landi leikgerð eftir skáldsögunum og myndin er úr þeirri sýningu, sem kallast ...

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Egill Helgason.

2.  Kettlingum.

3.  Hrafnhildur Hagalín.

4.  Spielberg.

5.  Sigríður Hagalín.

6.  Allt samband Íslands við umheiminn rofnar.

7.  Wintris.

8.  Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

9.  Madagascar.

10.  Barnaby.

***

Svör við auka­spurningum:

Sú efri — Bróðir minn Ljóns­hjarta.

Sú neðri — Fram­úrskarandi vinkona.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár