690. spurningaþraut: Forsætisráðherrar eru hér á dagskrá

Eins og venjulega þegar númer þrautar endar á núlli er hér um þemaþraut að ræða og nú er spurt um forsætis­ráðherra, þótt titill þeirra sé ekki ævinlega sá sami og við þekkjum. Auka­spurningarnar eru myndir af íslenskum forsætis­ráðherrum og spurt er um nöfn þeirra, en síðan koma myndir af tíu erlendum forsætis­ráðherrum og spurt í hvaða löndum þeir gegna embætti.

Fyrri auka­spurning: Hver er forsætis­ráðherrann á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvar gegnir þessi embætti?

***

2.  Hvar er hún forsætis­ráðherra?

***

3.  Hvar er hann hins vegar forsætis­ráðherra?

***

4.  Hvar er hann forsætis­ráðherra?

***

5.  En hvar situr hún í embætti?

***

6.  Og hvar er hún forsætis­ráðherra? Hér verð ég að hjálpa ykkur aðeins. Þótt landið, þar sem hún er forsætis­ráðherra, sé ekki endilega í fremstu röð að kven­réttindum hefur hún verið í embætti samfleytt frá 2009 og svo áður frá 1996-2001. Engin kona í nokkru landi hefur gegnt embætti forsætis­ráðherra lengur en hún. En ekki nóg með það heldur gegndi önnur kona embættinu frá 1991-1996 og svo 2001-2006. Hvaða land er þetta?

***

7.  En hvar situr hann á valda­stóli?

****

8.  Hvar er þessi forsætis­ráðherra?

***

9.  Hvar er þessi forsætis­ráðherra?

***

10. Og að lokum, hvar er þessi forsætis­ráðherra?

***

Þá er hér seinni auka­spurning, hver er þessi íslenski forsætis­ráðherra?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Þetta Olaf Scholz, kanslari í Þýska­landi.

2.  Þetta er Ingrida Šimonytė í Litháen.

3.  Þetta er Boris Johnson í Bretlandi.

4.  Þarna má sjá Justin Trudeau frá Kanada.

5.  Þarna er Mette Fredriksen frá Danmörku.

6.  Þetta er শেখ হাসিনা ওয়াজেদ, eða Skeikh Hasina, forsætis­ráðherra Bangla Desj.

7.  Þetta er Modi forsætis­ráðherra Indlands.

8.  Þetta er Sanna Marin í Finnlandi.

9.  Þetta er Magdalena Andersson í Svíþjóð

10.  Þetta er Mikhaíl Misjústin í Rússlandi.

***

Íslensku forsætis­ráðherrarnir eru:

Ólafur Jóhannesson á efri mynd.

Ólafur Thors á neðri mynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár