Rússneskur rithöfundur: Af hverju láta Rússar Pútin yfir sig ganga?

Liza Alex­andra-Zorina er rúss­neskur rit­höf­undur sem nú býr erlendis, enda and­stæð­ingur Pútins. Árið 2017 skrif­aði hún merki­lega grein um sál­ar­á­stand þjóðar sinnar og sú grein er enn í fullu gildi. Hún er merki­legt dæmi um að and­stæð­ingar Pútins í Rúss­landi leita aldrei skýr­inga á hörm­ungum lands­ins, sem nú hafa brot­ist út með stríð­inu í Úkraínu, í „útþenslu NATO til aust­urs“ eða „ein­angrun Rúss­lands“ eða „örygg­is­þörf rúss­nesku þjóð­ar­innar“. Hinir hug­rökku stjórn­ar­and­stæð­ingar í Rúss­landi sjá skýr­ing­una ein­göngu í alltum­lykj­andi alræði stjórnar Pútins. Og þetta fólk veit öllu meira um ástandið en stjórn­mála­skýrendur á Vest­ur­löndum.

Rússneskur rithöfundur: Af hverju láta Rússar Pútin yfir sig ganga?
Pútin í flokki flug­freyja Aeroflot á dög­unum. Rúss­lands­for­seti á sér stuðn­ings­menn víðar en í Rúss­landi. Á FB-síðu íslensks stuðn­ings­manns Pútins birt­ist þessi mynd á dög­unum með text­anum: „Það lyftir and­anum að sjá þennan eðaldreng, frið­ar­sinna og mann­vin í fal­legum hópi.“

Stjórn­mála­skýrendur á Vest­ur­löndum sem vilja sýna hvað þeir eru víð­sýnir og vel mennt­aðir í alþjóða­póli­tík, þeir taka gjarnan í meiri eða minna mæli undir þær full­yrð­ingar Rússa að ástæða inn­rás­ar­innar í Úkraínu hafi meðal ann­ars og ekki síst verið „útþensla NATO í austur“ eða eitt­hvað í þá átt­ina. Vissu­lega rétt­læta þeir ekki inn­rás­ina en fall­ast í raun á að Banda­ríkin og NATO beri sína ábyrgð á því hvernig komið er.

Í því sam­bandi þykir mér í meira lagi athygl­is­vert að þeir Rússar sem yfir­höfuð þora að gagn­rýna stríðs­rekstur Pútins (enda flestir flúnir land), þeir nefna ALDREI slíkar ástæður fyrir hryll­ingnum sem nú hefur verið leiddur yfir Úkra­ínu­menn.

Þeir, sem best þekkja jú til, varpa sök­inni ein­göngu á Vladimír Pútin og þá alræð­is­stjórn sem hann hefur komið á lagg­irnar, og er vissu­lega að sínu leyti beint fram­hald af bæði keis­ara­stjórn Roma­novanna og komm­ún­ista­stjórn Sov­ét­ríkj­anna.

Einn þess­ara Rússa er Liza Alex­androva-Zorina sem fædd­ist árið 1984 í smábæ á Kóla­skaga en flutt­ist síðar til Moskvu þar sem hún gerð­ist rit­höf­undur, blaða­maður, dálka­höf­undur og kvik­mynda­gerð­ar­maður. Hún vakti mikla athygli fyrir skáld­sög­una Litli maður sem ger­ist á heima­slóðum hennar á Kóla­skag­anum. 

Hún fyllt­ist brátt hryll­ingi yfir stjórn Pútins og fór á end­anum úr landi.

Árið 2017 birti hún merki­lega grein undir fyr­ir­sögn­inni Rússland á barmi tauga­á­falls en þá voru Rússar byrj­aðir að stríða í Donbass í Úkraínu og búnir að leggja undir sig Krím­skag­ann.

Þótt greinin sé skrifuð fyrir fimm árum þykir mér hún merki­leg til­raun til að skýra ástandið í Rúss­landi þá og virð­ist nán­ast spá­dómur um það sem nú er orðið.

Liza Alex­andra-Zorinaskrif­aði á dög­unum undir yfir­lýs­ingu 17 rúss­nesku­skrif­andi höf­unda þar sem þeir mót­mæltu inn­rás Pútins í Rússland. Hinir höf­und­arnir voru: Svetlana Alexievich, Nóbels­höf­und­ur­inn Belarús, Vladimir Sorokin, leik­rita- og skáld­sagna­höf­undur, einn sá allra vin­sæl­asti í Rúss­landi, Lyudmila Ulit­skaya, skáld­sagna­höf­undur sem oft hefur verið talin lík­leg til að fá Nóbel, Dmitry Gluk­hov­sky, vin­sæll scifi höf­undur sem skrifar um Moskvu eftir kjarn­orku­stríð, Victor Shenderovich, ádeilu­höf­undur sem hrökkl­ast hefur til Póllands vegna and­stöðu við Pútin, Maria Stepa­nova, eitt helsta ljóð­skáld Rússa um þessar mundir, Alex­ander Ilichevsky, eðl­is­fræð­ingur sem sneri sér að skáld­sagna­gerð með frá­bærum árangri, Mikhail Shishkin, skáld­sagna­höf­undur sem birti á dög­unum magn­aða ádeilu­grein gegn Pútin, Maxim Osipov, hjarta­læknir og smá­sagna­höf­undur, Sergei Lebedev, einn allra efni­leg­asti og besti skáld­sagna­höf­undur Rússa, Sascha Fil­ipenko, Hví­trússi eins og Alexievich, skáld­sagna­höf­undur og blaða­maður, Alisa Ganieva, einn af efni­leg­ustu skáld­sagna­höf­undum Rússa, Viktar Martinovich, Hví­trússi, skáld­sagna­höf­undur, blaða­maður og list­gagn­rýn­andi, Alex­ander Genis, sjón­varps­maður og skáld­sagna­höf­undur sem lengi hefur búið í Banda­ríkj­unum, Lev Rubin­stein, eitt helsta ljóð­skáld Rússa til ára­tuga, Boris Akunin, georgískur glæpa­sagna­höf­undur sem lengi bjó í Moskvu en er nú fluttur þaðan vegna and­stöðu við Pútin. Til stuðn­ings þessum höf­undum skrifa svo nokkrir heims­þekktir nöfn sín við yfir­lýs­ing­una: Herta Müller (Rúmeníu/Þýska­landi), Elfriede Jelinek (Aust­ur­ríki), Olga Tokarczuk (Póllandi), J.M.Coetzee (Suður-Afríku/Ástralíu), Mathias Enard (Frakk­landi), Nuruddin Farah (Sómalíu/Suður-Afríku), Pankaj Mishra (Indlandi/Bret­landi) og Juan Gabriel Vazquez (Kólumbíu).

Hún skrif­aði:

„Í Rúss­landi vill stjórn­ar­and­staðan ekki verða ber að stjórn­ar­and­stöðu. Borg­ar­arnir vilja ekki berj­ast fyrir borg­ara­legum rétt­indum. Rúss­neska þjóðin er með fórn­ar­lamba­komp­lex: hún trúir því að hún ráði engu og hún geti engu breytt.

„Þetta hefur alltaf verið svona,“ segir fólk og afgreiðir þannig borg­ara­legt [civic] getu­leysi sitt. Efna­hag­söngveiti síð­asta ára­tugar 20. aldar, hinn gleðinauði fyrsti ára­tugur 21. aldar og járn­stjórn Vla­dimirs Pútins for­seta — með sínum þykjustu­kosn­ingum, spillta emb­ætt­is­manna­kerfi, ein­okun fjöl­miðl­anna, póli­tísku rétt­ar­höldum og banni við mót­mælum — hafa leitt yfir fólk til­finn­ingu algers bjarg­ar­leysis.

Fólk kýs ekki í kosn­ingum: „Þeir stjórna þessu fyrir okkur hvernig sem fer,“ — mætir ekki á mót­mæla­göngur: „Þeim verður bara tvístrað,“ og það berst ekki fyrir rétt­indum sínum: „Við erum þó á lífi og þökkum guði fyrir það.“

140 milljón manna þjóð lifir nú eins og svefn­genglar og er á barmi þess að glata síð­ustu leifum sjálfs­bjarg­ar­við­leitn­innar. Fólk hatar yfir­völdin en er sjúk­lega hrætt við breyt­ingar.

Það finnur á eigin skinni órétt­lætið en þolir ekki aktíf­ista.

Það hatar skrifræðið en lætur sér lynda alltum­lykj­andi stjórn rík­is­ins á öllum sviðum lífs­ins.

Það hræð­ist lög­regl­una en styður aukin völd hennar.

Það veit að það er stöðugt verið að blekkja það en trúir samt lyg­unum í sjón­varp­inu.

Þeir sem ekki reyna að komast undan

„Tillærðu bjarg­ar­leysi“ var fyrst lýst af banda­ríska sál­fræð­ingnum Martin Seligman. Hann gaf tveimur hópum hunda raf­magns­stuð. Hund­arnir í öðrum hópnum gátu bundið endi á stuðin með því að ýta á spjald með nef­inu, hund­arnir í hinum hópnum gátu það ekki.

Svo voru hóp­arnir sam­ein­aðir og allir hund­arnir settir í bás með lága girð­ingu í kring. Þegar þeim var gefið raf­magns­stuð á ný, þá stukku hund­arnir í fyrri hópnum létti­lega yfir girð­ing­una og komust undan.

Hund­arnir í seinni hópnum gerðu það ekki.

Rúss­neska þjóðin er orðin eins og þessi seinni hunda­hópur.

Að bera sig (ekki) eftir björginni

Maðurinn minn og ég vorum einu sinni í 18 mán­uði sam­fleytt í þorpi 300 kíló­metra frá Moskvu í Kaluga-hér­aði. Þorpið var til­tölu­lega vel búið vistum og öðru. Íbúarnir voru háværir og kvart­gjarnir og gripu til hnífa sinna af minnsta til­efni. Á hverju kvöldi heyrðum við óp og öskur, ein­hver hafði stolið kjúklingi, ein­hver hafði eitrað fyrir hundi náunga síns, ein­hver dregið eig­in­konu nágrann­ans á tálar, ein­hver hafði verið lam­inn og elti nú uppi árás­ar­menn sína með öxi á lofti.

Þetta var atorku­samt og stolt fólk.

Vatns­veita þorps­ins var bara tengd örfáum húsum en meiri­hluti þorps­búa varð að bera vatn í fötum inn til sín frá gos­brunnum á göt­unum. Einn kaldan og gráan nóv­em­ber­dag þorn­uðu gos­brunn­arnir skyndi­lega upp. Næsti brunnur var í gljúfri góðan spöl frá bænum og á vetrum voru hlíðar gljúf­urs­ins jafnan gler­hálar.

Íbúarnir, sem yfir­leitt voru svo háværir og rifr­ild­is­gjarnir og alltaf til í að hefja átök, þeir töltu nú hljóðir í bragði inn í gljúfrið með vatns­föt­urnar sínar.

Hið tillærða bjargarleysi

Þegar ég spurði fólkið hversu lengi þessi þurrkur myndi end­ast, þá svar­aði það: „Þangað til í vor.“ Þar sem við hjónin reikn­uðum með að þorps­bú­arnir hlytu að vita sínu viti, þá byrj­uðum við að pakka saman föggum okkar en rétt áður en við lögðum í hann, þá datt mér í hug að hringja í neyð­ar­línu vatns­veit­unnar til að kanna stöð­una.

Fólkið hjá neyð­ar­lín­unni kom alveg af fjöllum. Enginn í þorp­inu hafði sagt því frá vatns­leys­inu og þó var sími næstum í hverju húsi.

Daginn eftir kom hópur verka­manna frá vatns­veit­unni, gerði við þá bilun í vatns­turn­inum sem olli vatns­leys­inu og vatnið komst á að nýju. Ef ég hefði ekki hringt hefði fólkið verið vatns­laust fram á vor.

Svipað var upp á ten­ingnum varð­andi ork­una. Úrelt raf­magns­kerfið í bænum bil­aði oft, svo bær­inn varð ljós­laus með öllu. Þá þurfti líka að hringja í neyð­ar­línu en íbú­arnir gerðu að aldrei. Meðan ég var þarna var ég í hlut­verki krafta­verka­manns. Ef ljósin slokkn­uðu á nótt­unni urðu íbú­arnir að sitja í myrkr­inu þangað til mér þókn­að­ist að vakna um hádegið og hringja.

Hið til­lærða bjarg­ar­leysi umvafði allan bæinn.

Enginn stuðningur við mótmæli

Höf­uð­borgin Moskva er ekki svo ólík þessu þorpi. Þegar yfir­völdin byrj­uðu að loka spít­ölum og heil­brigð­is­stofn­unum — þar meðal krabba­meins­prógrammi sem var í gangi um allt land — þá urðu allir fokreiðir. Þetta var jú vanda­mál allra. Moskvu­búar þurftu að þola skort á með­ulum og biðlistar fyrir upp­skurði voru skornir niður. „Ókeypis“ heil­brigð­is­þjón­usta almenn­ings dróst saman en rík­is­spít­ölum var breytt í einka­sjúkra­hús sem fáir höfðu efni á.

Á einu ári var 7.000 heil­brigð­is­starfs­mönnum sagt upp og 28 heil­brigð­is­stofn­anir voru lagðar niður. Hinir burtreknu læknar stóðu fyrir mót­mælum en þá brá svo við að þeir fengu engan stuðn­ing.

Nágranna­kona mín seldi sum­ar­bú­stað­inn sinn til að borga fyrir lækn­is­hjálp fyrir son sinn. Í hvert sinn sem ég hitti hana í lyft­unni bölv­aði hún yfir­völd­unum og „umbót­unum“ í heil­brigð­is­þjón­ust­unni. En þegar ég stakk upp á að hún tæki þátt í mót­mælum lækn­anna gegn lok­unum stofn­ana, þá hristi hún höf­uðið:

„Til hvers væri það?“

Eina lausnin að koma sér úr landi

Þetta voru alltaf við­brögðin: „Til hvers væri það? Ekkert mun nokkru sinni breyt­ast.“

Þegar ég spurði hvort eng­inn hefði á tak­teinum lausn á mál­unum, þá var svarið alltaf hið sama: „Eina lausnin er að koma sér úr landi.“

Fyrir flesta Rússa er brott­flutn­ingur úr landi ekki annað en draumur en margir þeirra sem geta farið eru nú þegar farnir. Og þeir fyrstu sem fóru voru stjórn­ar­and­stæð­ing­arnir sem tóku þátt í mót­mæla­göngum síð­ustu árin.

Þeir fóru ekki fyrst og fremst til að sleppa við ofsóknir, heldur frekar af því þeir réðu ekki lengur við hina óbæri­legu bjarg­ar­leys­is­til­finn­ingu sem heldur þjóð­inni í helj­ar­g­reipum.

Yfir­völdin nota öll ráð sem þeim stendur til boða til að skapa und­ir­gefið sam­fé­lag. Heila­þvottur er orð­inn helsta ráðið til að bæla niður hina nú þegar veiku borg­ara­legu sam­vit­und og hindra frjálsa hugsun í fæð­ingu.

Að láta skera úr sér heilann!

Fjöl­miðl­unum er stýrt, þeir eru ann­að­hvort keyptir eða þeim ógnað af rík­is­stjórn­inni, og það má skipta þeim í stuðn­ings­miðla Kremlar og þá sem þykj­ast vera sjálf­stæðir. Hvað svo sem maður horfir á, þá er inni­haldið það sama: falskar fréttir, stjórn­mála­menn að hnakk­ríf­ast um keis­ar­ans skegg, per­sónu­dýrkun á for­set­anum, upp­lýs­inga­óreiðu­her­ferðir, orð sem ganga í ber­högg við gjörðir, fárán­legar við­bætur við gild­andi lög og geð­veikis­legt rugl í þing­mönnum — og í sam­ein­ingu skapar allt þetta stöðugt áreiti og stress sem umlykur líf okkar.

Að horfa á sjón­varps­frétt­irnar jafn­vel bara stöku sinnum hefur í för með sér heila­kvalir — að horfa á sjón­varpið dag­lega er eins og að láta skera úr sér heil­ann vís­vit­andi.

Rússland er land sem þrífst á mót­sögnum. For­set­inn segir okkur til dæmis að hann sé í stöðugri bar­áttu gegn ólígörk­unum en svo sæmir hann þá sömu olí­görka orðum fyrir „þjón­ustu við föð­ur­landið“. Eða þá að rík­is­stjórnin gefur hátíð­lega yfir­lýs­ingu um að mat­vörur muni ekki hækka og mán­uði síðar hækka þær um helm­ing.

Engir hermenn í Úkraínu?

Og kirkju­leið­togar messa yfir okkur að græðgi sé synd og „auð­veld­ara er fyrir kamel­dýr að kom­ast gegnum nál­ar­auga en fyrir ríkan mann að kom­ast inn í himna­ríki“ en svo sjáum við sömu kirkju­leið­toga úti að keyra í glæsi­kerrum hinna ríku og valda­miklu. Og emb­ætt­is­menn okkar full­yrða að það séu engir her­menn í Úkraínu en um leið er stöðugt snakk í fjöl­miðlum um frá­bæran árangur her­manna okkar á víg­stöðv­unum í Úkraínu.

Í svona and­rúms­lofti hættir fólk að gera grein­ar­mun á hinu bók­staf­lega og hinu tákn­ræna, fyllist grun um und­ir­ferli þar sem ekk­ert slíkt er finna en missir um leið, þótt mót­sagna­kennt kunni að virð­ast, hæfi­leik­ann til að lesa milli lín­anna. Þrýst­ingur sam­fé­lags­ins ýtir undir að fólk sam­þykki mót­sagn­irnar: trúað fólk á ekki að gagn­rýna prest­ana og gagn­rýni á Pútin er er ígildi land­ráða..

Til þess að vega upp á móti öllum þessum mót­sögnum þá stökkva reglu­lega fram nokkrir þing­menn, klerkar eða menn­ing­ar­post­ular og gefa vís­vit­andi alls óað­gengi­legar yfir­lýs­ingar og stinga upp á ein­hverjum svo fárán­legum aðgerðum að fólki blöskrar og yfir­völdin geta náð­ar­sam­leg­ast hafnað þess­ari vit­leysu.

Konur í fangelsi fyrir að fara á ströndina?

Til dæmis um þetta má nefna þingá­lykt­un­ar­til­lögur um að banna þung­un­ar­rof, að refsa sam­kyn­hneigðum, að koma á her­skyldu fyrir barn­lausar konur allt að 23 ára, að svipta fólk rúss­neskum borg­ara­rétt­indum ef það gift­ist útlend­ingi, og jafn­vel að dæma konur sem fara á strönd­ina án eig­in­manna sinna í tíu ára fang­elsi, að tak­marka slæmar fréttir í sjón­varp­inu við tíu pró­sent frétta­tím­ans, að banna kennslu á þró­un­ar­kenn­ing­unni í skólum, og svo fram­vegis.

Til­gang­ur­inn með þessu er að fólk geti aldrei verið víst um fyr­ir­ætl­anir yfir­vald­anna og búist jafn­vel við því að ein­hver af þessum geggj­uðu fyr­ir­ætl­unum verði að veru­leika, sem þýðir að fólk endar uppi dap­urt og skeyt­ing­ar­laust um örlög sín.

Það eina sem eftir er fyrir þá sem skamm­ast sín fyrir nútíð­ina og ótt­ast fram­tíð­ina, það er að belgja sig út af stolti yfir for­tíð­inni. Og þegar engin ástæða finnst til að elska þitt eigið land, hat­aðu þá nágrann­ana.

Ef þú getur ekki bætt þitt eigið líf, eyði­legðu þá líf ein­hvers ann­ars.

Til hvers að ráðast í önnur lönd?

Í Rúss­landi hefur fólkið ekk­ert að segja um mál­efni rík­is­ins en fámenn valda­stétt ráðskast með auð­lindir land­ins eins og þær væru einka­eign hennar. Til að draga úr sárs­auka fólks yfir sví­virtri virð­ingu þess, þá leggur rík­is­stjórnin áherslu á þjóð­legt stolt.

Til að draga athygli fólks frá bar­áttu fyrir mann­rétt­indum, þá er boðið upp á stríð.

Hvernig fórum við að því að gleyma í einni svipan að Úkra­ínu­menn eru bræðra­þjóð okkar? Af hverju ráðumst við nú óhikað inn í önnur lönd til að „koma á reglu“ þegar alla reglu skortir svo sár­lega hér heima?

Svo er sífellt messað yfir okkur hverja við eigum við hata: Banda­ríkja­menn, Úkra­ínu­menn, Kínverja, Þjóð­verja. Reiðin á að beina eft­ir­tekt okkar frá órétt­læti hvunn­dags­ins og að heims­veld­isórum.

Hin dul­ar­fulla „rúss­neska sál“ hefur verið skil­greind af PR-mönnum Kremlar sem blanda saman af mik­illi fimi blekk­ing­ar­vef og stöðl­uðum þjóð­ern­is­frösum. Rússnesk utan­rík­is­póli­tík er víð­fræg fyrir áherslu sína á hina eilífu bar­áttu „vina og óvina“ okkar — það eru alltaf við á móti útlend­ingum, föð­ur­lands­vinir á móti svik­urum, Rússar gegn Evr­ópu­mönnum.

Undirmaðurinn skammar konuna sína

Þessi for­múla er grund­völlur okkar þjóð­legu hug­mynda­fræði og gefur póli­tísku elít­unni frítt spil til að kveða niður alla sjálf­stæða hugsun.

Annað ein­kenni á Rúss­landi er „færslu­hegðun“. Það var Nikolaas Tin­bergen sem fyrstur orð­aði þetta hug­tak og átti við sér­hverja hegðun sem veitir útrás fyrir spennu án þess að leysa vanda­málið sem veldur spenn­unni.

Svo dæmi sé tekið, yfir­maður öskrar á und­ir­mann sinn eftir að hafa rif­ist við kon­una sína, og und­ir­mað­ur­inn, sem þorir ekki að svara fyrir sig, fer sjálfur heim og skamm­ast í sinni konu.

Svona hegðun eru ær og kýr Rússa. Þegar van­hæf rík­is­stjórn okkar veldur því að verð á neyslu­vörum rýkur upp úr öllu valdi og atvinnu­leysi eykst, þá getur fólk hvorki skipt um rík­is­stjórn­ina né dregið hana á nokkurn hátt til ábyrgðar, svo í stað­inn bölsót­ast fólk út í for­seta Banda­ríkj­anna og Úkra­ínu­menn.

Og íbúi í litlum bæ þar sem búið er að loka fabrikkunni, spít­al­anum og skól­anum, hann rýkur af stað og skráir sig sem sjálf­boða­liða til að berj­ast í Donbass.

Innblásinn þjóðarvilji

Svona „færsla“ er eina úrræðið fyrir fólk sem verður fyrir hinum enda­lausa áróðri frá Kreml, áróðri sem fyllir okkur árás­ar­girni en deyfir um leið sýn okkar á þjóð­ern­is­of­stopa, áróðri sem ruglar veru­leik­ann og æsir upp ofbeldi bæði í orðum og verki. Hyster­ísku and­rúms­loft­inu er svo við­haldið af fjöl­miðl­unum og það kynnt sem inn­blás­inn þjóð­ar­vilji.

Helstu vopn hinna póli­tísku áróð­urs­manna eru að ata fólki auri, rægja það, móðga, grafa undan ímynd þess og sverta á allan hátt.

En sann­leik­ur­inn er sá að skóla­kerfið hefur alið fólk svo vel upp að áróð­ur­inn gerir ekki annað en stað­festa það sem fólk trúir nú þegar. Fólk getur ekki nema að tak­mörk­uðu leyti hugsað út fyrir þau box sem því hefur verið komið fyrir í. Flestir taka góða og gilda þá vit­neskju sem þeir fá frá „trú­verð­ugum heim­ildum“.

Fréttafölsun fyrir opnum tjöldum

Og þar sem það er langt síðan rúss­neskir fjöl­miðlar þurftu að þola nokk­urs konar aðhald almenn­ings, þá fer frétta­fölsun fram nán­ast fyrir opnum tjöldum.

Í sjón­varp­inu má sjá leik­ara fara með hlut­verk flótta­manna frá Úkraínu og mynd­skeið af banda­rískum smá­bæjum sem hvirf­il­byljir hafa lagt í rúst eru sögð sýna þorp sem Úkra­ínu­menn hafi lagt í rúst með sprengju­árásum. Alls konar hlutir eru hafðir eftir vest­rænum stjórn­mála­mönnum sem þeir hafa aldrei sagt.

En þó á þessu gangi upp hvern ein­asta dag, þá er trú­arat­riði fyrir fólk að við­ur­kenna aldrei að frétt­irnar kunni að vera falsar. Einstaka sinnum kemst upp um ein­hverja lyg­ina en ekki nema örfáir taka eftir því. Og þeir fáu sem það gera standa and­spænis flóði áróð­urs sem grefur undan fréttum sem fólk fær að utan (af net­inu, frá erlendum fjöl­miðlum, póli­tískum aktíf­istum etc).

Því öll þau fyr­ir­bæri eru flokkuð inn í boxin „vinur gegn óvini“. Allar fréttir eru séðar gegnum hug­mynda­fræði­leg gler­augu — sem lita allt í heim­inum. Nýjar fréttir frá útlöndum um millj­arða doll­ara auð­söfnun og spill­ingu vina Pútins eru kall­aðar „aðdrótt­anir erlendra sendi­manna“ og hvatn­ingar um að breyta póli­tísku lífi í Rúss­landi eru kallar „amer­ískur áróður“.

Útrás í sjónvarpinu, vodka, dópi og stríði!

Bænir um að hætta stríðs­rekstr­inum í Úkraínu eru kall­aðar „and-rúss­neskar“.

Á kafi í þessu djúpa þjóð­ern­is­þung­lyndi sínu þá leita Rússar útrásar í sjón­varp­inu, vodka, fíkni­efnum og stríði. Dán­ar­tíðni í Rúss­landi er sú hæsta í Evrópu og bara Afganistan og sextán Afr­íku­lönd eru okkur „fremri“ á þessu sviði í öllum heim­inum. Einn þriðji af öllum karl­mönnum Rúss­lands mun ekki lifa nógu lengi til að kom­ast á eft­ir­laun, og átta pró­sent þjóð­ar­innar lifir undir fáækt­ar­mörkum.

En um leið státar landið af 131 millj­arða­mær­ingi og 180.000 millj­óna­mær­ingum.

En við munum heyra um neitt af þessu í frétt­unum. Af hverju ætti dæmd þjóð að vilja frétta örlög sín? Það er búið að rífa niður allar reglur um félags­legan hreyf­an­leika og eins konar öfugt nátt­úr­val þrýstir nú óþokk­unum á topp­inn. Efna­hagur Rúss­lands er að drukkna en björg­un­ar­vesti fá ekki aðrir en bankar, rík­is­fyr­ir­tækin og þeir sem eru nánir Kreml­ar­stjórn.

Unga fólkið á engar framtíðarvonir

Á hverju ári hverfa æ fleiri þorp og bæir af landa­kort­inu. Unga fólkið á sér engar fram­tíð­ar­vonir og gamla fólkið fær engin eft­ir­laun. Úti í hér­uð­unum lifa millj­ónir manna án nútíma­þæg­inda og í sveit­unum býr fólk í nið­ur­níddum húsum og not­ast við úti­kamra úr timbri eins og fyrir hund­rað árum. Í stað­inn fyrir nútíma­lega upp­hitun hefur fólk við­arofna og í þessu sælu­ríki „olíu og gass“ geta svo ótal margir bara látið sig dreyma um gas.

En í jafn­vel í fátæk­ustu hér­uð­unum má hvar­vetna sjá eitt merki sið­menn­ing­ar­innar — sjón­varps­diskinn sem stendur eins og eyra út úr hverju húsi. Á kvöldin sitja íbúar í hrör­legum bæjum og deyj­andi þorpum límdir við sjón­varpið og hlusta á stjórn­mála­skýrendur, hag­fræð­inga og alls konar sér­fræð­inga messa yfir þeim um það hvað allur heim­ur­inn hatar okkur fyrir það eitt að vera Rússar.

Það eina sem þetta fólk á eftir er „föð­ur­lands­ástin“ sem það sér í sjón­varp­inu og hat­rið á þeim sem fólk­inu er tjáð að sé óvin­ur­inn í það og það skiptið. Án þessa mundi fólkið ganga af göfl­unum af örvænt­ingu, skelf­ingu og hryll­ingi.

Allur heimurinn er hræddur við okkur!

Árás­ar­gjörn „föð­ur­lands­ást“ er orðin sál­ræn und­ir­staða allrar þjóð­ar­innar og bætir okkur upp borg­ara­lega minni­mátt­ar­kennd­ina. Áróð­ur­inn sem streymir frá Kreml ráðskast ekki aðeins með vit­und almenn­ings heldur er um leið sið­blinda á þjóð­ar­skala.

Atvinnu­leysi, efna­hag­söng­þveiti, fátækt? — En við erum mikil þjóð!

Efna­hag­ur­inn að mol­ast undir efna­hags­þving­unum? — En allur heim­ur­inn er hræddur við okkur!

Erum við í 91. sæti yfir lífs­kjör í heim­inum, milli Guatemala og Laos? — En Rússland fer sínar eigin leiðir!

Er heil­brigð­is­kerfið fyrir almenn­ing næstum komið að fótum fram og til að greiða lækn­is­þjón­ustu fyrir börnin okkar, þá þurfum við að ganga um með betlistaf­inn? — En rúss­neski her­inn er ekk­ert slor!

Undir „stöð­ug­leika­stjórn“ Pútins hafa streymt til Rúss­lands 3,5 trilljónir olíu­doll­ara en eng­inn veit inni á hvaða reikn­ingum þessi auð­hæfi hafa lent. Auðmýkt þjóðin er rænd af sinni eigin elítu en leitar sér hugg­unar í heims­velda­stefnu og hern­að­ar­tali.

Þunglynt raunsæi

Richard Nixon sagði sem svo að einn doll­ari sem lagður væri í áróður skil­aði meiri árangri en tíu doll­arar sem varið væri til her­gagna­kaupa vegna þess að vopnin eru ekki alltaf notuð, en áróð­ur­inn er að störfum hvert sek­úndu­brot. Pútin hefur sýnt og sannað að Nixon hafði rétt fyrir sér.

Þeir fáu [hér í Rúss­landi] sem gera sér fulla grein fyrir því ástandi sem við búum við eru kall­aðir „þung­lyndir raun­sæ­is­menn“ — en það er notað um ein­stak­linga sem líta raun­sætt á málið og trúa ekki áróðri yfir­valda og þess vegna er erf­ið­ara að ráðskast með þá.

Það er ekki auð­velt að vera þung­lyndur raun­sæ­is­maður — það er miklu auð­veld­ara að vera ham­ingju­samt fífl.

Hvernig líður þung­lyndum raun­sæ­is­manni þegar hann horfir upp á vini Pútins dæla millj­örðum í banka á Vest­ur­löndum og kaupa lysti­snekkjur sínar og glæsi­hallir? Hann finnur vænt­an­lega fyrir bjarg­ar­lausri og von­lausri gremju. En slíkar til­finn­ingar gera ekki annað en skemma hug­ann og auka á þján­ing­arnar. Þess vegna reyna raun­sæ­is­menn­irnir að finna sér ein­hverja skyn­sam­lega vörn, ein­hverja rök­rétta skýr­ingu á því hvernig komið er.

Þegar búið er að loka síðustu fæðingardeildinni

Venju­legt fólk endar svo oft á því að dást að elít­unni og telur sér trú um að þau gríð­ar­legu auð­æfi sem stjórn­mála­menn, kaup­sýslu­menn og emb­ætt­is­menn hafa rakað til sín séu merki um ótrú­lega hæfi­leika þeirra.

Jafnvel þótt ein­hver bóf­inn hafi keypt sér snekkju fyrir millj­arð doll­ara en þú átt ekki aura fyrir lækn­is­að­gerð og jafn­vel þótt eig­in­kona ein­hvers ráð­herra hafi leigt sér heilt hótel í Evrópu undir veislu­höld en það er búið að loka síð­ustu fæð­ing­ar­deild­inni í heimabæ þínum, þá get­urðu ekki látið sjóða í þér reið­ina alveg stöðugt.

Það eru tak­mörk fyrir því hve miklar til­finn­ingar maður ræður við. Það er miklu ein­fald­ara og sál­rænt séð mun þægi­legra að sætta sig við ástandið og við­ur­kenna bara að þú sért ann­ars flokks mann­eskja.

Ef elítan er nógu sniðug til að vekja hatur óvin­ar­ins, þá dugar það vel til að breiða yfir hina skammar­legu stað­reynd að að fram­kvæmda­stjóri rík­is­fyr­ir­tækis skuli fá á mán­uði meira í laun en læknir vinnur sér inn á heilli starfsævi.

Og ef for­set­inn okkar er svo valda­mik­ill að allur heim­ur­inn skelfur af ótta frammi fyrir honum, þá er þrælslundin í okkur ekki alveg eins skammar­leg.

Hógværð vestrænna leiðtoga vekur hæðni

Þess vegna vekja hóg­vær­leg hús vest­rænna stjórn­mála­manna háðs­yrði Rússa um ves­al­dóm þeirra og fátækt. Við erum stolt af því að elítan okkar eigi stærri hús, stærri snekkjur og yngri hjá­konur. Fátæk­ling­arnir okkar fyll­ast stolti yfir því að sveit­ar­stjór­inn í okkar hér­aði hafi meira umleikis en þing­maður á Evr­ópu­þing­inu.

Við tengjum okkur við elít­una af því hún er rúss­nesk og styður við mýt­una um hvað Rússar séu merki­legir, og hjálpar til við að lina þján­ingar okkar vegna þeirrar per­sónu­legu auð­mýk­ingar sem við þurfum að þola.

Rúss­neska elítan heldur „partí í plág­unni“ eins og Púskin orð­aði það. Elítan skamm­ast sín ekk­ert fyrir að ota auði sínum að almenn­ingi sem glímir við fátækt og efna­hags­örð­ug­leika. Lífsmáti elít­unnar er í engu sam­ræmi við föð­ur­landspratið í orð­ræðu hennar.

Það er nán­ast eins og elítan vilji prófa hve mikið venju­legt fólk láti bjóða sér. Elítan hefur sadíska ánægju af því að að veifa sínu ljúfa lífi framan í blá­fá­tækan almúg­ann — það er ekki nóg með að hún sé að hreykja sér, heldur er hún í raun að aug­lýsa algjör yfir­ráð sín yfir hinum örfá­tæku.

En í sadóma­sókísku sam­bandi nýtur masókist­inn sín ekki síður en sad­ist­inn.

Helgur tilgangur þjáningarinnar

Í Rúss­landi upp­hefjum við og leitum að helgum til­gangi í þján­ingum okkar. Þjóð­ern­islitt­er­a­túr jafnt og kenn­ingar rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar eru sneifa­fullar af þessum hug­myndum:

Rússar eru písl­ar­vottar og pínu­berar, þol­in­móðir og hóg­værir, María guðs­móðir heldur vernd­ar­hendi sinni yfir þeim, en á sama tíma þurfa þeir að þola píslir fyrir þær syndir sem drýgðar voru þá sjö ára­tugi sem Sov­ét­ríkin voru við lýði. Af því stafar þeirra djúpa trú, jafn­vel mein­læta­trú, og vax­andi áhrif presta sem pré­dika iðrun og auð­mýkt.

Sadóma­sókískt sam­fé­lag eyðir and­stöðu innan frá og neyðir and­ófs­menn út. Það möl­brýtur þá sem sitja uppi innan þess og sam­einar þá í beisk­leika og bit­urð. Þannig streit­ist Rússland á móti póli­tísku and­ófi, þrátt fyrir stöðugar krísur bæði af efna­hags­legum og menn­ing­ar­legum ástæðum. Hinir and­legu komp­lexar þjóð­ar­innar eru frjór jarð­vegur fyrir harð­stjóra, árás­ar­gjarna hern­að­ar­stefnu og þjóð­ern­is­fantasíur um ímynd­aða hefnd.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigga Svanborgar skrifaði
    það er nú margt sem minnir mann á ísland þarna í þessari frásögn.
    1
  • Ingimar Sævarsson skrifaði
    Skyldulesning fyrir þá sem vilja skilja rússneskan hugsunarhátt. Misnotkun elítunnar á fjölmiðlum er lykilatriði fyrir þessari skoðanakúgun sem heldur rússneskri alþýðu niðri.
    2
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    140 milljón manna fangelsi.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár