681. spurningaþraut: Galisía er bæði hér og þar

Fyrri auka­spurning:

Hver er þetta?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvað hét erki­hertoginn sem var drepinn 1914 og markaði atburðurinn upphaf fyrri heims­styrjaldar?

2,  Í hvaða heimavistar­skóla gekk Harry Potter?

3.  Hvað heitir íþróttin sem þar er mjög stunduð á galdakústum?

4.  Í hvaða Suður-Ameríku­ríki er höfuð­borgin Bogotá?

5.  Hvað nefnist þéttbýlis­staðurinn í Patreks­firði syðst á Vestfjörðum?

6.  Á tveimur stöðum í Evrópu eru staðir sem heita Galisía. Önnur Galisían er nú á mótum nokkurra ríkja, en þó fyrst og fremst tveggja sem eru ... hver? Hér þarf að hafa bæði rétt!

7.  En önnur Galisía er innan landamæra annars ríkis. Hvaða ríki er það?

8.  Hverrar þjóðar er kvikmynda­leik­stjórinn Lars von Trier?

9.  Maximilien Robespierre var einn af forsprökkum ... hvers?

10.  Í hvaða landi var Netflix-serían Squid Game búinn til?

***

Seinni auka­spurning:

Skjáskotið sýnir brot af albúmi hljóm­plötu sem gefin var út fyrir meira en 50 árum. Hvað heitir sú hljóm­plata?

Og fyrir lárviðar­stig með eikar­laufi (því þetta er mjög erfið spurning): Það var erlendur kunningi hljóm­sveitar­meðlimanna sem hannaði þetta umslag. Hann hét ... hvað?

***

Svör við auka­spurningum:

1.  Franz Ferdinand.

2.  Hogwarts.

3.  Quidditch.

4.  Kólumbíu.

5.  Patreks­fjörður.

6.  Galísía er fyrst og fremst á mörkum Úkraínu og Póllands.

7.  Spánn.

8.  Danskur.

9.  Frönsku byltingarinnar.

10.  Suður-Kóreu.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Brigitte Macron. Seinna nafnið dugir.

Á neðri myndinni er hluti af albúmi Revolver með Bítlunum.

Og albúmið gerði vinur Bítlanna frá Þýska­landi, Klaus Voorman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár