680. spurningaþraut: Spurt er um Afríku!

680. spurningaþraut: Spurt er um Afríku!

Þessi þraut snýst um sögu Afríku í víðum skiln­ingi.

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Eyjan Sansíbar út af strönd Austur-Afríku var lengi aðsetur íslamskra soldána og mið­stöð þræla­versl­unar. Síðan komst Sansíbar undir stjórn Breta. Á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar varð Sansíbar hluti af nýju ríki og sér þess raunar merki í nafni þessa nýja ríkis. Hvað var þetta nýja ríki nefnt?

2.  Borgin Karþagó í Afríku var á sínum tíma keppi­nautur Róma­borgar um verslun við Mið­jarð­ar­haf. Í hvaða núver­andi Afr­íku­ríki var Karþagó?

3.  Í hvaða ríki Afríku kall­ast trúflokkur krist­inna manna Koptar?

4.  En í hvaða Afr­íku­ríki hefur kristni lengst verið rík­is­trú?

5.  Hvaða ríki Afríku var stofnað af fyrr­ver­andi þrælum frá Banda­ríkj­unum?

6. Ellen Johnson Sirleaf varð for­seti í til­teknu Afr­íku­ríki 2006, fyrsta konan sem var kosin þjóð­höfð­ingi í álf­unni. En í hvaða ríki?

7.  Hvað heitir útbreiddasta afríska tungu­málið?

8.  Borgin Salé í Marokkó teng­ist Íslandi á ákveð­inn hátt. Hvernig?

9.  Gull­ströndin eða Gold Coast var ein af nýlendum Breta í Afríku en fékk sjálf­stæði árið 1957 og hefur síðan kall­ast ... hvað?

10.  Á 14. öld ríkti kon­ungur að nafni Mansa Musa í Afr­íku­landi einu og er talið að hann hafi verið einn rík­asti maður sög­unnar, bæði fyrr og síðar. Hann fór í fræga píla­gríms­för og eyddi í för­inni svo miklu gulli að gull­verð hrap­aði og var lengi að ná sér. Í hvaða landi var Mansa Musa kon­ungur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hún var stundum kölluð Mama Africa. Hvað hét hún?

*** 

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  TanSANía.

2.  Túnis.

3.  Egifta­landi.

4.  Eþíópíu.

5.  Líbería.

6.  Líberíu.

7.  Svahílí.

8.  Þaðan kom hluti sjó­ræn­ingj­anna sem frömdu hið svo­nefnda „Tyrkja­rán“.

9.  Gana.

10.  Malí.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Desmond Tutu erki­biskup í Suður-Afríku.

Á neðri mynd­inni er söng­konan Miriam Makeba, einnig frá Suður-Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár