Þótt heimsviðburðir kalli nú á alla athygli og alla sorg og alla manns bölsýni, þá megum við þó ekki gleyma því sem er að hjá okkur sjálfum.
Og tíðindin úr íslensku réttarkerfi þessa dagana eru svo alvarleg að framhjá þeim verður ekki horft.
Frumhlaup
Æ fleira kemur nú á daginn um frumhlaup lögreglustjórans á Norðurlandi eystra við rannsókn á ... ja, ég veit eiginlega varla hverju. Um hvað snýst þessi rannsókn Páleyjar Borgþórsdóttur?
Stuld á síma Páls Steingrímssonar? Orsakir veikinda hans?
Nú veit ég vissulega fátt um þau mál en það er þó augljóst – og fer alls ekkert milli mála – að enginn blaðamannanna fjögurra sem hafa stöðu sakbornings í þessari dularfullu rannsókn hefur neitt með símastuldinn að gera, hvað þá heldur veikindi Páls.
Blaðamenn í sálgæslu
Enda virðist staða þeirra sem sakbornings stafa af því að þeir hafa ef til vill hugsanlega kannski farið höndum um síma sem þeim var ef til vill hugsanlega kannski afhentur og ef til vill hugsanlega kannski ráku þeir þá augun í eitthvert myndefni af Páli sjálfum sem mig langar ekki að leiða frekar hugann að.
En hvers konar dómadags þvæla er þetta?
Ekki nóg með þetta, heldur fylgja með í greinargerð lögreglunnar skammir í garð blaðamannanna fyrir að hafa ekki gerst sálgæslumenn einhverrar persónu sem ef til vill hugsanlega kannski tók síma Páls – með klámi og öllu!
Þetta eiginlega gengur alls ekki.
Að skjóta blaðamönnum skelk í bringu
Það liggur æ betur í augum uppi, Snati minn, hve átakanlegt rugl þetta er.
Nema hvað tilgangurinn er samt augljós.
Tilgangurinn er – og getur ekki verið neinn annar – en að skjóta blaðamönnum skelk í bringu.
Og svo að grafa undan trúverðugleika þeirra, svo dómarar efist kannski frekar um ýmis gögn sem blaðamenn hafa grafið upp um Samherja og skæruliðadeild fyrirtækisins.
Og í leiðinni hikar Páley Borgþórsdóttir ekki við að misnota lög sem sett voru til varnar fórnarlömbum kynferðisbrota.
Er þetta hlutverk lögreglustjóra?
Er þetta hlutverk lögreglustjóra, Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri?
Að vera í þjónustu risafyrirtækis sem svífst einskis – það hefur Samherji margsannað – til að tryggja hagsmuni sína?
Finnst þér þetta sómasamlegt, Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra?
Og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, nú veit ég að það er trúaratriði í Valhöll að styðja Samherja fram í rauðan dauðann, enda hefurðu sjálfur sannað það síðustu daga, en hljótiði samt ekki að fylgja EINHVERJUM prinsipum?
Og getur þú látið líðast að þetta gerist á þinni vakt, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra?
Einfalt mál
Þetta er nefnilega svo einfalt mál, þótt giska skelfilegt sé það líka.
Það er verið að misnota íslenskt réttarfar og réttarkerfi í þágu þröngra hagsmuna stórfyrirtækis og til þess er notað lögregluembætti.
Það verður að draga mörk einhvers staðar, þetta gengur ekki.
Páley verður að fara, það er algjört lágmark til að við getum trúað því að réttarkerfi okkar sé ekki í þjónustu sérhagsmuna.
Athugasemdir (3)