Morðið á Rapa Nui

Upplýsinga­menn á 18. öld ímynduðu sér að hinn „göfugi villimaður“ lifði í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. En einmitt um þær mundir fundu þeir afskekkta eyju sem sýndi — ekki síður en vaxandi tækni­legur yfir­gangur Evrópu­manna við náttúruna — að maðurinn er einlægt samur við sig.

Einn afskekktasti staður Jarðar.
Einn afskekkt­asti staður Jarðar.

Í byrjun árs 1722 – um svipað leyti og Ísland var farið að jafna sig eftir stórubólu en Árni Magnússon var flúinn úr landi með handritin – þá sigldu þrjú hollensk skip suður fyrir suðurodda Ameríku og inn á Kyrrahaf. Leiðangurs­stjóri hét Arent Roggeveen, lögfræðingur sem vart hafði migið í saltan sjó fyrr á ævinni en var kominn inn á hafið endalausa til að uppfylla gamlan draum föður síns um að finna hið mikla meginland sem menn þóttust þá vita að væri sunnarlega í Kyrra­hafinu.

Fyrst var siglt upp með Tjíle-ströndum og síðan lagt út á hafið mikla og síðdegis þann 5. apríl, sem var páska­sunnudagur, komu útkikks­menn á fremsta skipinu auga á land fyrir stafni. Hollendingar vonuðu í fyrstu að þar væri komið Suður­landið mikla en sáu fljótt að þetta var bara fremur lítil eyja, heldur lágreist þótt nokkur fell mætti sjá við strendurnar, og gróður­lítil.

Reykur …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár