Kári svarar færslu Eddu um vændiskaupanda: „Ekki verið að tala um mig“

Kári Stef­áns­son seg­ist ekki vera mað­ur­inn sem Edda Falak vísar til sem vændis­kaup­anda, en seg­ist vera með tárum yfir því hvernig komið sé fyrir SÁÁ. Hann hafi ákveðið að hætta í stjórn sam­tak­anna vegna aðdrótt­ana í sinn garð. Edda seg­ist hafa svarað SÁÁ í hálf­kær­ingi, enda skuldi hún engum svör.

Kári svarar færslu Eddu um vændiskaupanda: „Ekki verið að tala um mig“
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar

Kári Stef­áns­son seg­ist hund­rað pró­sent viss um að það sé ekki hann sem Edda Falak sé að vísa í á sam­fé­lags­miðli þegar hún nefnir þjóð­þekktan mann sem hafi keypt vændi af konu. Edda seg­ist í sam­talið við Stundina ekki ætla að greina frá því hver mað­ur­inn sé. Svar hennar til núver­andi stjórn­anda og fyrr­ver­andi stjórn­anda hjá SÁÁ sem spurðu um þessi skrif hennar hafi verið inni­halds­laust enda sé hún alltaf fyrst og fremst að huga að trún­aði við þol­anda. 

Edda FalakÆtlar ekki að greina frá því hver mað­ur­inn sé. Hennar trún­aður sé fyrst og fremst við þol­and­ann.

Edda Falak birti í gær­morgun eft­ir­far­andi færslu inn á Bar­áttu­hópi gegn ofbeld­is­menn­ingu á Facebook. Hópurinn er öllum opinn sem eru á Facebook en hann telur um 6.500 með­limi: 

 

 Sem fyrr segir birti Edda Falak þessa færslu í hópnum í gær­morgun. 

 

„Mér er sagt að gerandinn sé Kári Stefánsson“

Síðdegis átti að fara fram for­manns­kjör í SÁÁ en Einar Her­manns­son fyrr­ver­andi for­maður sagði af sér for­mennsku fyrir rúmri viku eftir að upp komst að hann hefði fyrir nokkrum árum keypt vænd­is­þjón­ustu af konu sem var í mik­illi fíkni­efna­neyslu og skjól­stæð­ingur SÁÁ. Sigurður Frið­riks­son sem var vara­for­maður í tíð Einars Her­manns­sonar er einnig hættur.  Síð­ast­lið­inn mánu­dag til­kynnti Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskrar erfða­grein­ingar að hún ætl­aði að bjóða sig fram til for­manns SÁÁ á fund­inum sem halda átti í dag.

„Mér hefur verið sagt að ger­and­inn sé Kári Stef­áns­son. Getur þú stað­fest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?“
Arnþór Jónsson

Skömmu fyrir hádegi í dag sendi Arnþór Jónsson, fyrr­ver­andi for­maður SÁÁ og núver­andi stjórn­ar­maður í SÁÁ  Þóru Kristínu bréf sem 48 manna stjórn SÁÁ fékk afrit af. Í bréf­inu birtir Arnþór skjá­skot af færslu Eddu Falak frá því deg­inum áður og spyr:  „Mér hefur verið sagt að ger­and­inn sé Kári Stef­áns­son. Getur þú stað­fest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?“ 

Stundin hefur ekki upp­lýs­ingar um hvort Þóra svar­aði bréf­inu en Edda Falak segir í sam­tali við Stundina að hún hafi átt sam­töl bæði við Arnþór og konu úr núver­andi fram­kvæmda­stjórn SÁÁ og þau hafi spurt hvort hún væri að tala um Kára.

Edda segir í sam­tali við Stundina að hún hafi svarað þeim báðum af hálf­kær­ingi því hún hafi ekki haft í hyggju að opin­bera nafn manns­ins við fólk út í bæ því hennar trún­aður sé við þol­and­ann. 

„Ég svar­aði konu úr stjórn SÁÁ og þessum fyrr­ver­andi for­manni SÁÁ í hálf­kær­ingi, þetta var inni­halds­laust svar af því að ég þarf ekki að svara fyrir neitt“
Edda Falak

„Ég ætla ekki að greina frá því hver þessi maður er. Ég svar­aði konu úr stjórn SÁÁ og þessum fyrr­ver­andi for­manni SÁÁ í hálf­kær­ingi, þetta var inni­halds­laust svar af því að ég þarf ekki að svara fyrir neitt, enda er ég fyrst og fremst bundin trún­aði gagn­vart þol­and­anum og í öðru lagi hef ég engan áhuga á að taka þátt í ein­hverri póli­tík innan SÁÁ,“ segir Edda Falak í sam­tali við Stundina. 

Hætti við formannsboð eftir fyrirspurnina 

Rúmum fjórum klukku­stundum eftir að Arnþór Jónsson sendi fyr­ir­spurn til Þóru Krist­ínar og afrit til allrar stjórn­ar­innar, eða á fjórða tím­anum í dag, sendi Þóra Kristín frá sér yfir­lýs­ingu til aðal­stjórnar SÁÁ sem hún síðar birti á Facebook síðu sinni þar sem hún seg­ist draga fram­boð sitt til for­manns SÁÁ til baka og fari úr aðal­stjórn sam­tak­anna. Hún segir í yfir­lýs­ing­unni að Kári Stef­áns­son segi sig einnig úr aðal­stjórn­inni.

Þóra Kristín segir að hún hafi fyr­ir­fram vitað að það ríkti hálf­gert stríðs­á­stand í sam­tök­unum og að hún hafi ekki farið var­hluta af því þótt barist hafi verið að tjalda­baki. 

„Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einka­lífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfeng­is­með­ferð, lent á vegg í líf­inu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af,“ skrifar hún og sakar fyrr­ver­andi stjórn­endur sam­tak­anna um að standa fyrir ófræg­ing­ar­her­ferð gegn Kára Stef­áns­syni á net­inu.

„Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einka­lífi“
Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir

„Það er sýnu alvar­legra að fyrr­ver­andi stjórn­endur SÁÁ eru líka að hlaða í bál­köst á sam­fé­lags­miðlum fyrir Kára Stef­áns­son yfir­mann minn og náinn vin sem hefur einnig gert margt í sinni for­tíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og situr líkt og ég í aðal­stjórn SÁÁ og er löngu hættur að drekka,“ skrifar hún. 

Sendi bréf á stjórnina

Í bréfi sem Frosti Logason, fjöl­miðla­maður og stjórn­ar­maður í SÁÁ, sendi stjórn eftir að Þóra og Kári sögðu sig úr aðal­stjórn og vísir birti nú undir kvöld segir Frosti að Þóra Kristín og Kári Stef­áns­son hafi ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn sam­tak­anna vegna þeirrar „ofbeld­is­hegð­unar“ sem Arnþór Jónsson og félagar hafi verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum.

„Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur stað­fest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stef­áns­son að ræða í þessum orðrómi um vændis­kaup sem hún var að fiska eftir á sam­fé­lags­miðlum. Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyði­leggja fyrir okkar ágætu sam­tökum og það er miður. Ég vildi bara hafa ykkur upp­lýst um þetta,“ segir í bréfi sem Frosti Logason sendi stjórn SÁÁ.

Sem fyrr segir sagði Edda í sam­tali við Stundina að ekk­ert hefði verið mark­tækt í svörum sínum, enda skuldi hún engum svör og ætli ekki að gefa upp hver mað­ur­inn sé. 

Svekktur yfir stöðu samtakanna 

Stundin hafði sam­band við Kára Stef­áns­son, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar og spurði hann hvers vegna hann hefði sagt sig úr aðal­stjórn SÁÁ. Kári segir að það hafi hann gert vegna aðdrótt­ana fyrr­ver­andi stjórn­enda SÁÁ í sinn garð.

Kári: „Þeir bjuggu til aðdrótt­anir í minn garð úr efni sem þeir fundu ann­ars staðar.“

„Þeir bjuggu til aðdrótt­anir í minn garð úr efni sem þeir fundu ann­ars staðar“
Kári Stef­áns­son

Blm: Hvaða efni?

Kári: „Það sem Edda Falak setti inn á síðu á Facebook.“

Blm: Er hún að skrifa um þig?

Kári: „Ég er hund­rað pró­sent viss um að það er ekki verið að tala um mig, öðru­vísi en að fólk sé að skálda.“ 

Blm: Ertu að hætta þess vegna?

Kári: „Ég er að hætta vegna þess að í und­ir­bún­ingi fyrir þennan fund þar sem kjósa átti nýjan for­mann er verið að draga fram skít um þá sem eru í þess­ari stjórn, til dæmis að ég ætl­aði að taka yfir SÁÁ. Ég nenni ekki að standa í þessu þegar svona mik­ill órói er.“

Kári seg­ist vera með tárum yfir hvernig komið sé fyrir sam­tök­unum. „Ég hef hjálpað til að koma ótrú­lega miklum fjölda fólks inn á Vog og hef haft mikið sam­band við sjúkra­húsið vegna aðstand­enda og mér þykir mjög vænt um SÁÁ.“

Stakk upp á framboði Þóru 

Kári segir einnig að hann hafi „borið ábyrgð“ á því að Þóra Kristín fór í fram­boð. „Ég stakk upp á því. Hún er rögg­söm kona og ofboðs­lega klár og fylgin sér og ég held það hafi verið gott hjá henni að hætta við for­manns­fram­boð. Nú getur fólkið í SÁÁ tekið skref aftur á bak og spurt: Hvað er að hjá okkur og hvað viljum við vera?“ segir Kári Stef­áns­son. 

Formanns- og vara­for­manns­kjör í SÁÁ átti að fara fram síð­degis en eftir að Þóra Kristín hætti við for­manns­fram­boð var fundi frestað til 14. febr­úar næst­kom­andi.  

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    María Sigurðardóttir skrifaði
    Hvernig er hægt að "verða fyrir vændi"? bara þessi setning varð til þess að ég hætti að lesa!
    -1
  • Bylgja Jóhannsdóttir skrifaði
    "Það leitaði til mín kona sem varð fyrir vændi ...." ?????
    Þetta stingur í augun og hjartað líka .... verður fólk í dag "fyrir vændi"?????????
    Lenti þá þessi kona bara alveg óvart í því að verða fyrir þessu!!!!!????

    Spyr sá sem ekki veit?????
    -1
    • Eva Þórðardóttir skrifaði
      Vændi er kynferðisofbeldi. Er þá ekki best að orðanotkun spegli það?
      1
  • Larus Omar Gudmundsson skrifaði
    Ég sem fyrrverandi sjúklingur á sjúkrahúsinu Vogur er gráti næst yfir því ástandi sem er komin upp í samtökunum SÁÁ. Ég á líf mitt að þakka þeirri þjónustu sem veitt er á Vogi. Að pervertar og níðingar hafi náð inn í innsta kjarna þessara samtaka er þyngra en tárum taki. Ég hér með hætti mínum mánaðarlegu framlögum til samtakana þangað til að skikki verði komið á æðstu stjórn samtakana. Við erum öll þjáningarbræður/systur í sameiginlegri baráttu en einhverjir virðast hafa gleymt því og látið annarlegar hvatir eða pólitískan metnað stýra sínum gjörðum. Skammist ykkar, þið takið það til ykkar sem það eigið.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Eru stjórnarsetur einhver aflátsbréf fyrir gamla saurlífsseggi,jújú ég drakk svolítið í denn en núna er ég í stjórnini þar sem fræga fólkið kemur sér saman ,skamis þið ykkar
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár