Kári svarar færslu Eddu um vændiskaupanda: „Ekki verið að tala um mig“

Kári Stef­ánsson segist ekki vera maðurinn sem Edda Falak vísar til sem vændis­kaupanda, en segist vera með tárum yfir því hvernig komið sé fyrir SÁÁ. Hann hafi ákveðið að hætta í stjórn samtak­anna vegna aðdróttana í sinn garð. Edda segist hafa svarað SÁÁ í hálf­kæringi, enda skuldi hún engum svör.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar

Kári Stef­ánsson segist hundrað prósent viss um að það sé ekki hann sem Edda Falak sé að vísa í á samfélags­miðli þegar hún nefnir þjóð­þekktan mann sem hafi keypt vændi af konu. Edda segist í samtalið við Stundina ekki ætla að greina frá því hver maðurinn sé. Svar hennar til núverandi stjórn­anda og fyrr­verandi stjórn­anda hjá SÁÁ sem spurðu um þessi skrif hennar hafi verið innihalds­laust enda sé hún alltaf fyrst og fremst að huga að trúnaði við þolanda. 

Edda FalakÆtlar ekki að greina frá því hver mað­ur­inn sé. Hennar trún­aður sé fyrst og fremst við þol­and­ann.

Edda Falak birti í gærmorgun eftir­farandi færslu inn á Baráttu­hópi gegn ofbeldis­menningu á Facebook. Hópurinn er öllum opinn sem eru á Facebook en hann telur um 6.500 meðlimi: 

 

 Sem fyrr segir birti Edda Falak þessa færslu í hópnum í gærmorgun. 

 

„Mér er sagt að gerandinn sé Kári Stefánsson“

Síðdegis átti að fara fram formanns­kjör í SÁÁ en Einar Hermannsson fyrr­verandi formaður sagði af sér formennsku fyrir rúmri viku eftir að upp komst að hann hefði fyrir nokkrum árum keypt vændis­þjónustu af konu sem var í mikilli fíkniefna­neyslu og skjólstæðingur SÁÁ. Sigurður Friðriksson sem var vara­formaður í tíð Einars Hermanns­sonar er einnig hættur.  Síðastliðinn mánudag tilkynnti Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upplýsinga­fulltrúi Íslenskrar erfða­greiningar að hún ætlaði að bjóða sig fram til formanns SÁÁ á fundinum sem halda átti í dag.

„Mér hefur verið sagt að ger­and­inn sé Kári Stef­áns­son. Getur þú stað­fest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?“
Arnþór Jónsson

Skömmu fyrir hádegi í dag sendi Arnþór Jónsson, fyrr­verandi formaður SÁÁ og núverandi stjórnar­maður í SÁÁ  Þóru Kristínu bréf sem 48 manna stjórn SÁÁ fékk afrit af. Í bréfinu birtir Arnþór skjáskot af færslu Eddu Falak frá því deginum áður og spyr:  „Mér hefur verið sagt að gerandinn sé Kári Stef­ánsson. Getur þú staðfest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?“ 

Stundin hefur ekki upplýsingar um hvort Þóra svaraði bréfinu en Edda Falak segir í samtali við Stundina að hún hafi átt samtöl bæði við Arnþór og konu úr núverandi framkvæmda­stjórn SÁÁ og þau hafi spurt hvort hún væri að tala um Kára.

Edda segir í samtali við Stundina að hún hafi svarað þeim báðum af hálf­kæringi því hún hafi ekki haft í hyggju að opinbera nafn mannsins við fólk út í bæ því hennar trúnaður sé við þolandann. 

„Ég svar­aði konu úr stjórn SÁÁ og þessum fyrr­ver­andi for­manni SÁÁ í hálf­kær­ingi, þetta var inni­halds­laust svar af því að ég þarf ekki að svara fyrir neitt“
Edda Falak

„Ég ætla ekki að greina frá því hver þessi maður er. Ég svaraði konu úr stjórn SÁÁ og þessum fyrr­verandi formanni SÁÁ í hálf­kæringi, þetta var innihalds­laust svar af því að ég þarf ekki að svara fyrir neitt, enda er ég fyrst og fremst bundin trúnaði gagnvart þolandanum og í öðru lagi hef ég engan áhuga á að taka þátt í einhverri pólitík innan SÁÁ,“ segir Edda Falak í samtali við Stundina. 

Hætti við formannsboð eftir fyrirspurnina 

Rúmum fjórum klukku­stundum eftir að Arnþór Jónsson sendi fyrir­spurn til Þóru Kristínar og afrit til allrar stjórnarinnar, eða á fjórða tímanum í dag, sendi Þóra Kristín frá sér yfir­lýsingu til aðal­stjórnar SÁÁ sem hún síðar birti á Facebook síðu sinni þar sem hún segist draga framboð sitt til formanns SÁÁ til baka og fari úr aðal­stjórn samtak­anna. Hún segir í yfir­lýsingunni að Kári Stef­ánsson segi sig einnig úr aðal­stjórninni.

Þóra Kristín segir að hún hafi fyrirfram vitað að það ríkti hálfgert stríðs­ástand í samtökunum og að hún hafi ekki farið varhluta af því þótt barist hafi verið að tjalda­baki. 

„Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einkalífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfengis­meðferð, lent á vegg í lífinu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af,“ skrifar hún og sakar fyrr­verandi stjórn­endur samtak­anna um að standa fyrir ófrægingar­herferð gegn Kára Stef­ánssyni á netinu.

„Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einka­lífi“
Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir

„Það er sýnu alvarlegra að fyrr­verandi stjórn­endur SÁÁ eru líka að hlaða í bálköst á samfélags­miðlum fyrir Kára Stef­ánsson yfirmann minn og náinn vin sem hefur einnig gert margt í sinni fortíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og situr líkt og ég í aðal­stjórn SÁÁ og er löngu hættur að drekka,“ skrifar hún. 

Sendi bréf á stjórnina

Í bréfi sem Frosti Logason, fjölmiðla­maður og stjórnar­maður í SÁÁ, sendi stjórn eftir að Þóra og Kári sögðu sig úr aðal­stjórn og vísir birti nú undir kvöld segir Frosti að Þóra Kristín og Kári Stef­ánsson hafi ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn samtak­anna vegna þeirrar „ofbeldis­hegðunar“ sem Arnþór Jónsson og félagar hafi verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum.

„Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur staðfest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stef­ánsson að ræða í þessum orðrómi um vændis­kaup sem hún var að fiska eftir á samfélags­miðlum. Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyði­leggja fyrir okkar ágætu samtökum og það er miður. Ég vildi bara hafa ykkur upplýst um þetta,“ segir í bréfi sem Frosti Logason sendi stjórn SÁÁ.

Sem fyrr segir sagði Edda í samtali við Stundina að ekkert hefði verið marktækt í svörum sínum, enda skuldi hún engum svör og ætli ekki að gefa upp hver maðurinn sé. 

Svekktur yfir stöðu samtakanna 

Stundin hafði samband við Kára Stef­ánsson, forstjóra Íslenskrar erfða­greiningar og spurði hann hvers vegna hann hefði sagt sig úr aðal­stjórn SÁÁ. Kári segir að það hafi hann gert vegna aðdróttana fyrr­verandi stjórn­enda SÁÁ í sinn garð.

Kári: „Þeir bjuggu til aðdróttanir í minn garð úr efni sem þeir fundu annars staðar.“

„Þeir bjuggu til aðdrótt­anir í minn garð úr efni sem þeir fundu ann­ars staðar“
Kári Stef­áns­son

Blm: Hvaða efni?

Kári: „Það sem Edda Falak setti inn á síðu á Facebook.“

Blm: Er hún að skrifa um þig?

Kári: „Ég er hundrað prósent viss um að það er ekki verið að tala um mig, öðruvísi en að fólk sé að skálda.“ 

Blm: Ertu að hætta þess vegna?

Kári: „Ég er að hætta vegna þess að í undir­búningi fyrir þennan fund þar sem kjósa átti nýjan formann er verið að draga fram skít um þá sem eru í þessari stjórn, til dæmis að ég ætlaði að taka yfir SÁÁ. Ég nenni ekki að standa í þessu þegar svona mikill órói er.“

Kári segist vera með tárum yfir hvernig komið sé fyrir samtökunum. „Ég hef hjálpað til að koma ótrúlega miklum fjölda fólks inn á Vog og hef haft mikið samband við sjúkra­húsið vegna aðstand­enda og mér þykir mjög vænt um SÁÁ.“

Stakk upp á framboði Þóru 

Kári segir einnig að hann hafi „borið ábyrgð“ á því að Þóra Kristín fór í framboð. „Ég stakk upp á því. Hún er röggsöm kona og ofboðs­lega klár og fylgin sér og ég held það hafi verið gott hjá henni að hætta við formanns­framboð. Nú getur fólkið í SÁÁ tekið skref aftur á bak og spurt: Hvað er að hjá okkur og hvað viljum við vera?“ segir Kári Stef­ánsson. 

Formanns- og vara­formanns­kjör í SÁÁ átti að fara fram síðdegis en eftir að Þóra Kristín hætti við formanns­framboð var fundi frestað til 14. febrúar næst­komandi.  

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    María Sigurðardóttir skrifaði
    Hvernig er hægt að "verða fyrir vændi"? bara þessi setning varð til þess að ég hætti að lesa!
    -1
  • Bylgja Jóhannsdóttir skrifaði
    "Það leitaði til mín kona sem varð fyrir vændi ...." ?????
    Þetta stingur í augun og hjartað líka .... verður fólk í dag "fyrir vændi"?????????
    Lenti þá þessi kona bara alveg óvart í því að verða fyrir þessu!!!!!????

    Spyr sá sem ekki veit?????
    -1
    • Eva Þórðardóttir skrifaði
      Vændi er kynferðisofbeldi. Er þá ekki best að orðanotkun spegli það?
      1
  • Larus Omar Gudmundsson skrifaði
    Ég sem fyrrverandi sjúklingur á sjúkrahúsinu Vogur er gráti næst yfir því ástandi sem er komin upp í samtökunum SÁÁ. Ég á líf mitt að þakka þeirri þjónustu sem veitt er á Vogi. Að pervertar og níðingar hafi náð inn í innsta kjarna þessara samtaka er þyngra en tárum taki. Ég hér með hætti mínum mánaðarlegu framlögum til samtakana þangað til að skikki verði komið á æðstu stjórn samtakana. Við erum öll þjáningarbræður/systur í sameiginlegri baráttu en einhverjir virðast hafa gleymt því og látið annarlegar hvatir eða pólitískan metnað stýra sínum gjörðum. Skammist ykkar, þið takið það til ykkar sem það eigið.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Eru stjórnarsetur einhver aflátsbréf fyrir gamla saurlífsseggi,jújú ég drakk svolítið í denn en núna er ég í stjórnini þar sem fræga fólkið kemur sér saman ,skamis þið ykkar
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár