Hvað hefði gerst ef Hitler hefði verið drepinn 1938?

Það hefði sennilega orðið niður­staðan ef Neville Chamberlain hefði ekki látið Hitler blekkja sig upp úr skónum í München. Og heimurinn hefði orðið óþekkj­an­legur.

Kvik­myndin Munich – The Edge of War hefur vakið töluverða eftirtekt í sjónvarps­heimum upp á síðkastið, hér á Íslandi sem annars staðar. Þar er lýst fundi nokkurra Evrópu­leiðtoga í München haustið 1938 þar sem lagt var á ráðin um morðið á hinu nýfrjálsa ríki Tékkóslóvakíu.

Myndin snýst þó ekki síst um þá staðreynd að ef leiðtogar Breta og Frakka hefðu staðið í lappirnar, neitað að beygja sig fyrir land­vinninga­kröfum Hitlers og foringi Þýska­lands þar af leiðandi hafið innrás í Tékkóslóvakíu, þá voru hátt­settir menn innan þýska hersins tilbúnir til að fremja valdarán, setja Hitler af og/eða drepa hann.

Svo sann­færðir voru þeir um að stríð á þeim tíma­punkti væri feigðarflan fyrir Þýskaland.

Valda­ránið átti að hefjast um leið og Hitler fyrir­skipaði innrás í Tékkóslóvakíu. En vegna þess að hann fékk Súdetahéruðin í Tékkóslóvakíu baráttu­laust kom ekki til þess að foringinn gæfi þá skipun, og samsærið féll um …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár