80 ár í dag frá Wannsee-fundinum — hverjir sátu þennan skelfilega fund?

80 ár í dag frá Wannsee-fundinum — hverjir sátu þennan skelfilega fund?
Wannsee-höllin — á þessum frið­sæla stað voru skipu­lögð fjöldamorð af ískaldri og vél­rænni nákvæmni eins og um hver önnur skrif­stofu­störf væri að ræða.

Það gerð­ist fyrir sléttum 80 árum.

Fimmtán karlar á miðjum aldri komu saman á ráð­stefnu í svo­lít­illi höll við Wannsee-vatn spöl­korn suð­vestur af Berlín. Við vatnið voru og eru Berlín­ar­búar vanir að hafa það huggu­legt og njóta úti­lífs en þá var hávetur og ekki margir á ferli sem fylgd­ust með hverri svartri límús­ín­unni af annarri renna að höll­inni aft­an­verðri og ganga inn með skjala­töskur sínar.

En þeir fáu sem fylgd­ust með bíl­unum koma hefðu sjálf­sagt ekki getað ímyndað sér hvað var að hefj­ast þennan þriðju­dags­morgun 20. jan­úar 1942.

Fund­ur­inn var hald­inn undir merkjum SS-sveit­anna sem voru þá orðnar alls­ráð­andi í þýskri stjórn­sýslu.

Þarna voru sex hátt­settir SS-menn og stýrði sá æðsti þeirra fund­inum, ill­mennið Reinhard Heydrich, sér­legur aðstoð­ar­maður Heinrichs Himmlers yfir­manns SS og auk þess yfir­maður sam­einaðrar örygg­is­lög­reglu rík­is­ins, RSHA.

Níu full­trúar rík­is­ins voru mættir, aðstoð­ar­ráð­herrar eða ráðu­neyt­is­stjórar í helstu ráðu­neytum.

Og fund­ar­efnið var ein­falt:

Að skipu­leggja morð á millj­ónum manna.

Allt frá því að nas­istar náðu völdum í Þýska­landi 1933 höfðu þeir ofsótt Gyðinga, eins og þeir höfðu reyndar lofað hátíð­lega árum saman að þeir myndu gera. Ofsókn­irnir stig­mögn­uð­ust með hverju árinu og urðu grimmi­legri og ofsa­fengn­ari. Æ fleiri létu lífið, þótt það færi að mestu leynt fyrstu árin.

Þegar árás­ar­stríð Þjóð­verja inn í Pólland hófst í sept­em­ber 1939 sendu Þjóð­verjar á hæla her­sveita sinna sér­sveitir sem höfðu þann eina til­gang að smala saman og drepa Gyðinga. Sama varð upp á ten­ingnum og í mun rík­ari mæli þegar inn­rásin í Sov­ét­ríkin hófst sum­arið 1941.

Þá mátti heita ljóst að fjöldamorð á Gyðingum voru bein­línis stefna Þjóð­verja. Og hér nægir ekki að tala ein­göngu um Nas­ista­flokk­inn því þegar inn­rásin hófst hafði her­inn gengið fús­lega til sam­starfs við SS-sveit­irnar og sér­sveit­irnar um að Gyðinga skyldi drepa.

Þetta var hins vegar ekki við­ur­kennt opin­ber­lega og stjórn Hitlers var nokkuð lengi að ákveða hvernig skyldi standa að Gyð­ingamorð­unum. Hitler sjálfur mun um tíma hafa verið hlynntur því að flytja þá alla á staði skammt að baki víg­lín­unnar í Rúss­landi og skjóta þá þar og full­yrða að um væri að ræða skæru­liða — eða hryðju­verka­menn.

Það var hins vegar varla ger­legt að halda upp miklum járn­braut­ar­ferðum svo langt austur, og því var loks ákveðið að setja upp sér­stakar útrým­ing­ar­búðir — ekki síst í Póllandi eða „Generalgouvornement“ — og myrða þar á færi­bandi.

Það var ekk­ert smá­ræð­is­verk að skipu­leggja útrým­ingu millj­óna manna.Hér má sjá fanga­búðir Þjóð­verja í seinni heims­styrj­öld. Rauðu depl­arnir eru hinar eig­in­legu dauða­búðir sem fóru á fullt eftir fund­inn í Wannsee. En í þeim öllum var fjöldi fólks tek­inn af lífi.

Og til þess að skipu­leggja þau fjöldamorð var fund­ur­inn í Wannsee hald­inn.

Þar átti að skipu­leggja „loka­lausn­ina“ á „Gyð­inga­vanda­mál­inu“.

Rétt er að geta þess að í sjálfu sér var ekk­ert nýtt ákveðið í Wannsee. Það var búið að marka stefn­una og að stefnt skyldi að útrým­ingu allra Gyðinga, og líka í stórum dráttum um hvernig það skyldi gert.

Það var til dæmis búið að semja við þýsku járn­braut­irnar um aðkomu þeirra að fjölda­flutn­ingum Gyðinga austur á bóg­inn og í útrým­ing­ar­búð­irnar. Þess vegna var eng­inn full­trúi þeirra í Wannsee.

Og það var líka löngu búið að tryggja fulla sam­vinnu hers­ins, eins og ég nefndi áðan.

Þess vegna voru heldur engir her­for­ingjar í Wannsee.

En þegar 15-menn­ing­arnir fóru frá Wannsee seinni­part­inn var allt klappað og klárt og allir vissu nú hvaða hlut­verki þeir áttu að gegna í morð­vél­inni sem svo mal­aði allt til stríðsloka.

Löngu eftir að stríðs­gæfan sner­ist gegn Þjóð­verjum og það hefði verið miklu væn­legra fyrir þá að hætta að eyða orku og kröftum í að drepa Gyðinga, en ein­beita sér að vörnum rík­is­ins, þá hélt vélin frá Wannsee samt áfram að mala og raunar nán­ast fram á síð­asta dag.

Að drepa Gyðinga var mik­il­væg­ara fyrir nas­ista en að vernda líf Þjóð­verja.

Margt hefur mað­ur­inn á sam­visk­unni en eitt það allra skelfi­leg­asta hlýtur að vera fund­ur­inn í Wannsee. Að þar komi saman 15 óvit­lausir menn að mestu og eyði í það deg­inum að skipu­leggja í smá­at­riðum morð á millj­ónum kvenna, karla, barna — og svo er kaffi­hlé og haldið áfram — það er ein­hvern veg­inn skelfi­legra en orð fá lýst.

Og sýnir út í hvaða myrkviði manns­sálin getur leiðst ef hún gætir sín ekki.

Hverjir voru mættir?

Heydrich

Reinhard Heydrich — yfir­maður RSHA. Jafn­framt öðrum störfum var hann land­stjóri Þjóð­verja í Prag og þar var hann myrtur af tékk­neskum útsend­urum frá London í júní 1942.

Otto Hofmann — yfir­maður kyn­þátta­skrif­stofu SS. Árið 1948 var hann dæmdur í 25 ára fang­elsi fyrir aðild sína að útrým­ingu Gyðinga en lát­inn laus 1954. Ekki hef ég skýr­ingar á þeirri mildi. Hann starf­aði síðan sem skrif­stofu­maður og lést 1982.

Heinrich Müller — yfir­maður Gestapo og innsti koppur í búri í Gyð­ingamorð­unum. Hann hvarf í stríðs­lok og lík­lega féll hann á loka­dög­unum í Berlín eða nágrenni. Ýmsar sögur eru þó til um að hann hafi kom­ist undan og lifað vel og lengi síðan.

Adolf Eichmann — yfir­maður Gyð­inga­deildar SS. Þá und­ir­maður Müllers en gegndi æ stærra hlut­verki við skipu­lagn­ingu morð­anna. Hand­samaður af ísra­elskum leyni­þjón­ustu­mönnum í Argent­ínu 1960 og tek­inn af lífi eftir dauða­dóm 1962.

Schöngarth

Karl Eberhard Schöngarth — yfir­maður morð­sveita í Póllandi og víðar. Bar per­sónu­lega ábyrgð á dauða þús­unda Gyðinga en var tek­inn af lífi 1948 fyrir morð á enskum flug­manni í Hollandi 1944.

Rudolf Lange — hátt­settur í RSHA og sér­sveitum SS. Annaðist meðal ann­ars morð á lett­neskum Gyðingum. Féll eða framdi sjálfs­morð í Poznan í Póllandi í febrúr 1945 þegar her­sveitir Rauða hers­ins lögðu undir borg­ina.

Gerhard Klöpfer — var í SS en mætti til Wannsee sem næstæðsti emb­ætt­is­maður Rík­is­kansl­ara­skrif­stof­unnar á eftir Martin Bormann. Klöpfer var hand­tek­inn eftir stríðið og ákærður fyrir stríðs­glæpi en lát­inn laus vegna skorts á sönn­unum. Hann gerð­ist lög­fræð­ingur og dó 1987, síð­astur þeirra sem sátu Wannsee-fund­inn.

Freisler

Roland Freisler — aðstoð­ar­ráð­herra í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og einn helsti dóm­ari Þýska­lands. Lét dæma til dauða fjölda and­stæð­inga Hitlers. Féll í loft­rás banda­manna á Berlín í febr­úar 1945.

Georg Leibbrandt — aðstoð­ar­ráð­herra hernumdu svæðnna í austri. Ákærður fyrir að eiga þátt í útrým­ingu Gyðinga en lát­inn laus 1950. Hann lést 1982.

Alfred Mayer — vann í sama ráðu­neyti. Hann svipti sig lífi rétt fyrir stríðs­lok.

Josef Bühler — aðstoð­ar­ráð­herra Pól­lands­mála. Hann féll í hendur Pólverja í stríðs­lok og þeir voru ekki jafn mis­kunn­samir og sumir dóm­stólar vestar í Evrópu. Bühler var tek­inn af lífi 1948.

Wilhelm Stuckart — inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Hann var dreg­inn fyrir dóm banda­manna eftir stríð en lát­inn laus 1949. Árið 1953 dó hann í bílslysi í Hannover. Grun­semdir eru um að útsend­arar ísra­elsku leyni­þjón­ust­unnar hafi svið­sett bílslysið en það hefur þó ekki sann­ast.

Erich Neumann — aðstoð­ar­ráð­herra áætl­ana­gerðar. Hand­tek­inn eftir stríð en lát­inn laus vegna heilsu­leysis 1948 og dó skömmu síðar.

Kritzinger

Friedrich Kritzinger — ráðu­neyt­is­stjóri í Rík­is­kans­ellínu. Rétt eftir Wannsee-fund­inn reyndi hann að segja af sér og hafa sumir talið að honum hafi blöskrað það sem þar fór fram. Engar sann­anir eru þó til um þá afstöðu. Honum var neitað um að láta af störfum og hélt þá áfram störfum, meðal ann­ars að málum sem lutu að nið­ur­stöðum Wannsee-fund­ar­ins. Eftir stríð lýsti hann því yfir að hann skamm­að­ist sín fyrir voða­verk nas­ista. Hann var þó dreg­inn fyrir dóm en lát­inn laus vegna heilsu­leysis og dó 1947.

Martin Luther — aðstoð­ar­ráð­herra í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Það er næsta kald­hæðn­is­legt að alnafni hins víðkunna sið­breyt­inga­manns Martins Luthers skuli hafa setið Wannsee-fund­inn, því sið­breyt­inga­mað­ur­inn var jú ákafur og stækur Gyð­inga­hat­ari.

Þessi Martin Luther var þó ekki svo vitað sé afkom­andi nafna síns af 16. öld, enda bæði „Martin“ og „Luther“ algeng nöfn.

Luther fékk það hlut­verk eftir Wannsee-fund­inn að sann­færa lepp­ríki Þýska­lands um að vera dug­leg við að senda Gyðinga í útrým­ing­ar­búð­irnar í Póllandi. Árið 1944 var hann sendur í fanga­búð­irnar Sachsenhausen eftir að hafa gert til­raun til að ryðja yfir­manni sínum Ribbentrop utan­rík­is­ráð­herra úr stóli. Hann var um síðir frels­aður (ásamt Leifi Müller og fleirum) af Rússum í apríl 1945 en dó fjórum vikum síðar eftir hjarta­á­fall.

Árið 1947 fannst í skjala­safni Luthers fund­ar­gerð frá Wannsee-fund­inum sem Heydrich hafði látið senda öllum þátt­tak­endum.

Þannig frétti umheim­ur­inn af fund­inum.

Skjal sem Eichmann lagði fram í Wannsee.Þarna eru tíundir allir Gyðingar sem átti að drepa, einnig í löndum sem Þýska­land hafði ekki enn náð yfir­ráðum yfir. 11 millj­ónir skyldu myrtar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bjorn Hilmarsson skrifaði
    Á maður sem sagt ekki að kalla fólk Nazista sem maður er ósammála?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár