Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

SÁÁ sendi gríðarlegt magn af „tilhæfulausum reikningum“

Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands segja að ekk­ert í svör­um SÁÁ breyti þeirri nið­ur­stöðu að sam­tök­in hafi sent gríð­ar­legt magn af til­hæfu­laus­um reikn­ing­um. SÍ hafi lengi ver­ið í „al­geru myrkri“ um til­urð þeirra og eðli og þeir því ver­ið greidd­ir í góðri trú. Þá sé með­ferð SÁÁ á sjúkra­skrám „aug­ljós brot á lög­um“.

SÁÁ sendi gríðarlegt magn af „tilhæfulausum reikningum“
Sjúkratryggingar segja að ekkert í svörum SÁÁ breyti niðurstöðu eftirlits SÍ Mynd tekin af heimasíðu samtakanna

Sjúkratryggingar Íslands segja SÁÁ hafa sent stofnuninni gríðarlegt magn tilhæfulausra reikninga, sem sé grunnurinn að 175 milljóna króna kröfu stofnunarinnar á hendur samtökunum. Ekkert hafi komið fram í svörum SÁÁ við rannsókn Sjúkratrygginga (SÍ) sem breyti þeirri niðurstöðu. Stofnunin hafi greitt reikninga SÁÁ í góðri trú en hafi verið í myrkri um starfsemina. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tíu blaðsíðna bréfi sem stofnunin sendi SÁÁ með niðurstöðum úr rannsókn sinni. Stundin fékk bréfið afhent hjá Sjúkratryggingum síðdegis. Í bréfinu er málið reifað, niðurstaðan kynnt og svör SÁÁ vegna athugasemda stofnunarinnar birt. Ari Matthíasson, deildarstjóri eftirlitsdeildar SÍ, segir í skriflegu svari til Stundarinnar að æðstu stjórnendur Sjúkratrygginga Íslands hafi komið að málinu.  

Niðurstaðan er sú að Sjúkratryggingar Íslands fara fram á að SÁÁ greiði stofnuninni til baka rétt tæpar 175 milljónir króna „vegna tilhæfulausra reikninga og vanefnda á þjónustu og þjónustumagni“.

Í bréfinu segir að Sjúkratryggingar hafi kallað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eyþór Dagur skrifaði
    „tilhæfulausrar lokunar fyrir staðþjónustu á tímabilinu október til desember 2020“. Bíð spenntur eftir því að ríkissjóður hjóli í leikhúsin, ríkisstarfsmenn sem unnu heima og heilbrigðisstarfsmenn sem mættu ekki í vinnuna frá Október til Des 2020. Spennó! Glæpamenn allt með tölu. Ætli foreldrar eigi ekki eftir að fá heimsókn frá barnavernd, sem sendu ekki börnin í skólann?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Stjórnendur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfsfólkið segir forstjóri SÍ
Fréttir

Stjórn­end­ur SÁÁ bera ábyrgð á þjón­ust­unni en ekki starfs­fólk­ið seg­ir for­stjóri SÍ

María Heim­is­dótt­ir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga seg­ir að nið­ur­staða í máli SÁÁ sé feng­in eft­ir ít­ar­lega skoð­un og SÍ hafi ver­ið skylt að til­kynna mál­ið til hér­aðssak­sókn­ara. Ábyrgð á þjón­ust­unni sé al­far­ið stjórn­enda SÁÁ en ekki ein­stakra starfs­manna. Hún seg­ir af­ar ómak­legt að Ari Matth­ías­son, starfs­mað­ur Sjúkra­trygg­inga hafi ver­ið dreg­inn inn í um­ræð­una og sak­að­ur um ómál­efna­leg sjón­ar­mið.
Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til framkvæmdastjórnar SÁÁ
Fréttir

Stjórn SÁÁ lýs­ir fullu trausti til fram­kvæmda­stjórn­ar SÁÁ

Auka­fundi stjórn­ar SÁÁ sem boð­að var til vegna nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Ís­lands lauk rétt í þessu. Á fund­in­um var lýst yf­ir fullu trausti á fram­kvæmda­stjórn SÁÁ, stjórn­end­ur og starfs­fólk sam­tak­anna. Í álykt­un sem sam­þykkt var seg­ir með­al ann­ars, sam­kvæmt heim­ild­um Stund­ar­inn­ar, að að­gerð­ir SÍ gegn SÁÁ hafi ver­ið yf­ir­drifn­ar og rýri traust al­menn­ings á sam­tök­un­um.
Segja yfirlýsinguna ekki í nafni alls starfsfólks SÁÁ
Fréttir

Segja yf­ir­lýs­ing­una ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yf­ir­lýs­ing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki bor­in und­ir allt starfs­fólk sam­tak­anna áð­ur en hún var send til fjöl­miðla í gær, sam­kvæmt heim­ild­um Stund­ar­inn­ar. „Hún var skrif­uð fyr­ir okk­ar hönd án okk­ar vit­und­ar,“ seg­ir starfs­mað­ur sem Stund­in ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðr­ir sögð­ust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyr­ir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

Íslendingar þurfi að ákveða hvar þeir staðsetja sig: „Þetta eru mjög válegir tímar“
4
ViðtalBandaríki Trumps

Ís­lend­ing­ar þurfi að ákveða hvar þeir stað­setja sig: „Þetta eru mjög vá­leg­ir tím­ar“

Pól­skipti hafa átt sér stað í vest­rænu varn­ar­sam­starfi með skyndi­legri stefnu­breyt­ingu Banda­ríkj­anna í ut­an­rík­is­mál­um, seg­ir Erl­ing­ur Erl­ings­son hern­að­ar­sagn­fræð­ing­ur. Hætta geti steðj­að að Ís­landi en Banda­rík­in hafi sýnt að þau séu óút­reikn­an­leg og beri ekki virð­ingu fyr­ir leik­regl­um al­þjóða­kerf­is­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Einn og hálfur tími á bráðamóttöku: Sjálfsskaði, hjartastopp og hnífstunga
4
Á vettvangi

Einn og hálf­ur tími á bráða­mót­töku: Sjálfsskaði, hjarta­stopp og hnífstunga

Eitt orð má aldrei nota á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans og það er orð­ið ró­legt. Nán­ast um leið og Jón Ragn­ar Jóns­son bráða­lækn­ir hef­ur orð á að það sé óvenju ró­legt á næt­ur­vakt eina helg­ina dynja áföll­in á. Hann hef­ur rétt kom­ið manni til lífs þeg­ar neyð­ar­bjall­an hring­ir á ný. Síð­an end­ur­tek­ur sama sag­an sig.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár