641. spurningaþraut: Katrín mikla að baki, hér eru venjulegar spurningar um hitt og þetta

Fyrri auka­spurning:

Hvað má sjá á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvað er H2O?

2.  Með hvaða landsliði í fótbolta spilar Cristiano Ronaldo?

3.  Ragn­heiður Ósk Erlends­dóttir var valin maður ársins 2021 af Stöð 2, Vísi og Bylgjunni fyrir framgöngu hennar við ... hvað?

4.  Í hvaða Araba­landi er höfuð­borgin Ríad?

5.  Hvaða höfundur skrifaði bókina Heimsljós?

6.  Hvað fékkst Cassius Clay við í lífinu — að vísu lengst af undir öðru nafni?

7.  Í hvaða borg voru Bítlarnir sprottnir upp?

8.  Vaíla Veinólínó er söngkona sem nokkrum sinnum við sögu í teiknimynda­sögubálki, þar sem aðal­persónan er ... hver?

9.  Eldfjallið Vesúvíus stendur nærri stórborg einni. Hver er hún?

10.  Hver fékk brons­verðlaun í stangar­stökki kvenna á ólympíu­leikunum 2000?

***

Seinni auka­spurning:

Hvaða fáni er hér fyrir neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Vatn.

2.  Portúgal.

3.  Bólu­setningar.

4.  Sádi-Arabíu.

5.  Halldór Laxness.

6.  Hnefa­leika.

7.  Liverpool.

8.  Tinni.

9.  Napólí.

10.  Vala Flosa­dóttir.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Apollo tunglfar Bandaríkja­manna. Þetta er Apollo 15. en ekki þarf að hafa númerið rétt.

Á neðri myndinni er gríski fáninn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KÓS
    Kristjana Ólöf Sigurðardóttir skrifaði
    Vatn er víst skrifað með tvistinn niður! Staðurinn sem er 2 er á er fyrir atómmassa og þá súrefni með atómmassan 2 sem gengur ekki alveg upp!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár