640. spurningaþraut um Katrínu miklu keisaraynju!

640. spurningaþraut um Katrínu miklu keisaraynju!

Það er komið að þema­spurn­ingum og því snú­ast spurn­ingar dags­ins allar um Katrínu miklu, keis­ara­ynju í Rúss­landi.

Myndin hér að ofan sýnir leikkonu í hlut­verki Katrínar í mynd­inni The Scarlet Empress frá 1934. Hver er leik­konan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á hvaða öld var Katrín uppi?

2.  Katrín var keis­ara­ynja í Rúss­landi, vissu­lega, en hún var ekki rúss­nesk, heldur var hún í allar ættir ... hverrar þjóðar?

3.  Langafi hennar í móð­ur­ætt hafði þó verið kóngur. Það var samt í öðru landi. Sá hét Friðrik og yfir hvaða landi hafði hann ríkt?

4.  Katrín gift­ist svo til Rúss­lands og inn í rúss­nesku keis­ara­ætt­ina sem kall­að­ist ... hvað?

5.  Hver var höf­uð­borg Rúss­lands á dögum Katrínar miklu?

6.  Katrín var að ýmsu leyti upp­lýstur þjóð­höfð­ingi miðað við sína tíma og átti til dæmis í heil­miklum bréfa­skriftum við einn helsta frömuð hinnar svoköll­uðu Upp­lýs­ingar. Hvað hét þessi franski penna­vinur keis­ara­ynj­unnar?

7. Þegar Katrín var við völd höfðu Rússar þegar lagt undir sig mikil svæði í Síberíu, Mið-Asíu og víðar, auk landa sinna í Evrópu. En hún varð fyrst rúss­neskra leið­toga til að næla í nýlendu utan Asíu eða Evrópu. Hvaða land­svæði var það?

8.  Undir lok stjórn­ar­tíðar sinnar í Rúss­landi átti Katrín þátt í því, ásamt Þjóð­verjum og Aust­ur­rík­is­mönnum, að lima sundur ríki eitt á svæð­inu, sem fyrrum hafði verið í hópi stór­velda. Nú hvarf þetta stóra ríki af landa­kort­inu í meira en heila öld uns það var sjálf­stætt á ný eftir fyrri heims­styrj­öld. Hvaða ríki var þetta?

9.  Miklar og til­hæfu­lausar kjafta­sögur voru sagðar af kyn­lífs­fíkn Katrínar og því var meira að segja haldið fram að hún hefði dáið, bein­línis sprungið, þegar hún átti sín síð­ustu mök. Sagan er ill­kvitt­inn þvætt­ingur, en með hverjum átti hún að hafa verið að eðla sig?

10.  Einn helsti ráð­gjafi Katrínar, og elsk­hugi um tíma, hann var gjarnan sagður hafa látið snyrta fram­hlið­ina á húsum í þeim þorpum, sem Katrín átti leið um í vagni sínum, svo hún héldi að þar væri allt í blóma. Slík „leik­tjöld“ til að fegra raun­veru­legt ástand eru síðan kennd við þennan ráð­gjafa. Hvað hét hann?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver leikur Katrínu hér í nýlegri sjón­varps­s­eríu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Átjándu öld.

2.  Þýsk.

3.  Danmörku.

4.  Romanov.

5.  Sánkti Pét­urs­borg.

6.  Voltaire.

7.  Alaska.

8.  Pólland.

9.  Hesti.

10.  Potemkin.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Marlene Dietrich í hlut­verki Katrínar.

Á neðri mynd­inni hefur Helen Mirren brugðið sér í hlut­verk hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár