Íslenska kjötsúpan er besti matur sem Tucci hefur borðað á tökustað

Banda­ríski leik­ar­inn Stanley Tucci segir að íslensk kjöt­súpa sé besti matur sem hann hefur borðað á setti við tökur. Hann fjallar um þetta í nýjum æviminn­ingum sínum. Tucci borð­aði kjöt­súp­una góðu þegar hann var staddur á Aust­ur­landi við tökur á sjón­varps­þátt­unum Fortitude fyrir nokkrum árum.

Íslenska kjötsúpan er besti matur sem Tucci hefur borðað á tökustað
Kjöt­súpan fyrir austan stendur upp úr Banda­ríski leik­ar­inn, Stanley Tucci, segir í nýjum æviminn­ingum sínum að kjöt­súpa sem hann borð­aði við tökur á þátt­unum Fortitude á Aust­ur­landi sé besti matur sem hann hafi borðað á setti. Hann sést hér á kynn­ing­ar­mynd fyrir Fortitude ásamt með­leik­urum sínum.

„Þessi kjöt­súpa var svo frá­bær að ég varð sjálfum mér til skammar þegar ég fékk mér þriðja skammt­inn af henni. Enn þann dag í dag er þetta besti matur sem ég hef fengið við tökur á kvik­mynd, allt frá Suð­ur­pólnum að Norð­ur­heim­skaut­inu og á öllum stöðum þar á milli,“  segir banda­ríski leik­ar­inn Stanley Tucci í nýjum æviminn­ingum sínum Taste: My Life Through Food, þar sem hann meðal ann­ars fjallar um mat­ar­upp­lif­anir sínar frá Íslandi.

Kápa bókar Stanley Tucchi

Bókin kom út nú í nóv­em­ber og fjallar, eins og nafnið ber með sér, fyrst og fremst um mat og minn­ingar Tucchi um það sem hann hefur borðað á ólíkum tíma­punktum í lífi sínu. 

Stundin sendi Stanley Tucci beiðni um við­tal um bók­ina en leik­ar­inn hafði ekki svarað þegar umfjöll­unin var birt. 

Besta lambakjötið

Tucci var staddur hér á landi við tökur á sjón­varps­þátt­unum Fortitude árið 2015 og dvaldi þá á Aust­ur­landi í tæpar vikur. Hann bjó á Icelandair-hót­el­inu á Egils­stöðum og lýsir því í bók­inni hversu smeykur hann hafi verið um að mat­ur­inn á Íslandi yrði honum ekki að skapi. Tucci pakk­aði því meðal ann­ars dósa­súpum og kexi fyrir ferð­ina til Íslands svo hann yrði ekki hung­ur­morða. 

En áhyggjur Tucci reynd­ust vera óþarfar, eins og hann komst að í fyrstu mál­tíð­inni sem hann fékk á Icelandair-hót­el­inu á Egils­stöðum. „Svo kom lambið mitt, og enn þann dag í dag er þetta besta lamba­kjöt sem ég hef borðað. Það var óað­finn­an­lega eldað með dálitlum grill­röndum að utan, mjúkt og bleikt að innan; bragðið ein­kennd­ist af sölt­uðum sæt­leika og það brán­aði í munn­inum á mér [...] Eftir þetta hlakk­aði ég alltaf til kvöld­mat­ar­ins á ein­falda, litla hót­el­inu okkar.“

Maðurinn sem elskar kjöt­súpaStanley Tucchi elskar íslenska kjöt­súpu og ver rúmum tveimur blað­síðum í matar­æviminn­ingum sínum í að tala um hana. Mynd úr bók­inni.

Stóra málið var kjötsúpan

Stóra málið í umfjöllun Stanley Tucci um ver­una á Íslandi snýst  um kjöt­súp­una sem hann fékk á ótil­greindum stað á Aust­ur­landi einn dag­inn við tökur á þátt­unum. Tucci ræðir um íslensku kjöt­súp­una og töfra hennar á rúmum tveimur blað­síðum bók­inni og lýsir því svo af mik­illi inn­lifun hvernig það var að borða hana: 

„Einn fal­legan, sól­ríkan morgun keyrðum við í um 45 mín­útur á stað þar sem var fjall­lend­ara til að taka upp þann dag­inn. [...] Við gripum plast­skál­arnar okkar og stóðum í röð til að bíða eftir því að fá það sem ég fékk að vita að væri þjóð­leg íslenska kássa sem heitir kjöt­súpa. Eftir að skálin mín hafði verið fyllt náði ég mér í brauð­bita, gekk aftur út í sterkt sól­ar­ljósið sem blind­aði mig, tyllti mér í snjó­inn með félögum mínum og borð­aði. Það eina sem ég gat sagt er að ég veit ekki hvort það var vegna umhverf­is­ins, nánd­ar­innar sem getur orðið til í öfga­fullum aðstæðum í óbyggðum, eða vegna þess að mat­reiðslu­menn­irnir báru þessa sögu­legu kássu fram með svo miklu þjóð­arstolti, en þetta var ein­fald­lega frá­bær mál­tíð.“

Eigendur matreiðslufyrirtækisins stoltir af einkunninni

Tucchi séntil­maðurSnorri Þórisson, for­stjóri fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Pegasus, segir að banda­ríski leik­ar­inn Stanley Tucchi hafi verið mik­ill séntil­maður.

Fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Pegasus skipu­lagði tök­urnar á þátt­unum hér á landi og segir for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Snorri Þórisson, að það sé gaman að heyra hvað Tucci var ánægður með mat­inn. Hann segir að banda­ríski leik­ar­inn hafi verið mik­ill séntil­maður. „Mat­ar­málin voru greini­lega í lagi hjá okkur. Þetta var dag­far­sprúður og fínn náungi og það voru engir stjörnu­stælar í honum, ekki til,“ segir Snorri um Stanley Tucci. 

Fyr­ir­tækið sem sá um að elda ofan í leik­ara og aðstand­endur þátt­ar­ins heitir Lostæti-Aust­ur­lyst og hefur það meðal ann­ars séð um mötu­neyti Alcoa-Fjarða­áls á Reyð­ar­firði í gegnum árin. Stanley Tucci talar í bók­inni mjög vel um mat­inn sem hann fékk á töku­stað þátt­anna sem yfir­leitt var reiddur fram í mötu­neyti sem komið hafði verið upp í gömlu frysti­húsi á Reyð­ar­firði. 

„Mér finnst þetta bara vera alveg æði.“
Val­mundur Árnason, eig­andi Lostætis

Eigandi Lostætis, Val­mundur Árnason, segir um ein­kunn Tucci á matnum á töku­staðnum: „Mér finnst þetta bara vera alveg æði. Þetta þýðir að við erum að gera eitt­hvað rétt. Mér finnst æðis­legt að fá svona komment.“

Annar starfs­maður Lostætis, sonur Val­mundar, Árni Val­mund­ar­son, sem sá um mat­inn fyrir leik­ara- og tökulið Fortitude, segir a hann muni ekki nákvæm­lega eftir því þegar Stanley Tucci og félagar borð­uðu kjöt­súp­una þar sem nokkur ár séu liðin en að frá­sögnin sé gleði­leg.  „Því miður man ég ekki eftir þessu nákvæm­lega því við gáfum þeim svo mik­inn og fjöl­breyttan mat. Við erum með nokkra mat­reiðslu­menn í vinnu sem hafa bara töfrað fram þessa kjöt­súpu fyrir þennan góða hóp,“ segir Árni. „Mér heyr­ist þetta almennt hafa heppn­ast mjög vel hjá okkur fyrst hann talar svona um þetta. Mér finnst bara æðis­legt að heyra þetta og ég er mjög stoltur af þessu.“

Hval­kjötið á Grill­mark­aðnumStanley Tucchi ræðir mest um þrjá rétti sem hann borð­aði á Íslandi: Grillað lamba­kjöt, kjöt­súpu og hval­kjötið á Grill­mark­aði Hrefnu Sætran.

Matarupplifunin á Íslandi var opinberun

Stanley Tucci ræðir einnig um mat­aruplifun sína á veit­inga­staðnum Grill­mark­aðnum í Reykja­vík, sem er í eigu Hrefnu Sætran. Þar borð­aði hann tvo rétti sem hann hafði ekki smakkað áður: lunda og hval­kjöt - hrefnu.

Tucci fannst ekk­ert svo mikið til lund­ans koma þar sem reyk­ingin á fugl­inum hafði að hans mati „ofþurrkað kjötið“ þannig að þetta hefði getað verið kjötið af nán­ast hvaða litla fugli sem er og við  „ættum ekki að drepa“.

Öðru máli gegndi um hrefnu­kjötið sem var hafði „mikið og djúpt bragð sem minnti á Kobe-steik nema að það var flókn­ara þar sem kjötið var einnig með fisk­bragð sem minnti á tún­fisk sem not­aður er í sushi“. Tucci segir að hann myndi gjarnan vilja panta sér hrefnu­kjöt aftur. 

„Svo reynd­ist mat­ar­upp­lifun mín á Íslandi þvert á móti vera hið gagn­stæða: Hún var opin­berun.“
Stanley Tucci

Þegar banda­ríski leik­ar­inn tekur saman mat­ar­upp­lifun sína á Íslandi í bók­inni segir hann ein­fald­lega að hún hafi verið honum „opin­berun“: „Ég var svo ánægður með að upp­haf­legu áhyggjur mínar af matnum á Íslandi voru algjör­lega byggðar á sandi og ég skamm­að­ist mín einnig vegna þess að þær byggðar á ósann­gjörnum for­dómum mínum. Ég hélt að ég myndi þurfa að borða skyr og kæstan hákarl í hvert mál. Svo reynd­ist mat­ar­upp­lifun mín á Íslandi þvert á móti vera hið gagn­stæða: Hún var opin­berun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Sammála honum með kjötsúpuna, hún er alltaf góð.
    Þeir mega vera ánægðir með hólið kokkarnir fyrir austan
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár