Björn ætlar að hætta sem ráðgjafi Willums ef hann getur ekki sinnt því með forstjórastarfinu

Björn Zoëga, for­stjóri Karol­inska-sjúkra­húss­ins og nýr ráð­gjafi heil­brigð­is­ráð­herra á Íslandi, þarf að fá leyfi frá yfir­völdum í Stokk­hólmi til að sinna starf­inu á Íslandi. Hann segir að hann og heil­brigð­is­ráð­herra séu sam­mála um að hann hætti sem ráð­gjafi ef hann geti ekki sinn starf­inu sam­hliða for­stjóra­starf­inu.

Björn ætlar að hætta sem ráðgjafi Willums ef hann getur ekki sinnt því með forstjórastarfinu
Hættir ef hann getur ekki sinnt báðum störfumum Björn Zoëga, for­stjóri Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Svíþjóð, segir að hann muni sinna ráð­gjafa­starfi sínu á Íslandi sam­hliða starfi sínu sem ráð­gjafi heil­brigð­is­ráð­herra, Willums Þórs Þórs­sonar.

Björn Zoëga, for­stjóri Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Svíþjóð og ráð­gjafi nýs heil­brigð­is­ráð­herra, seg­ist ætla að hætta sem ráð­gjafi ef hann getur ekki sinnt starf­inu sam­hliða því að vera for­stjóri sænska sjúkra­húss­ins. Hann segir að hann sinni ráð­gjafa­starf­inu í frí­tíma sínum frá starfi sínu sem for­stjóri. Þetta kemur fram í við­tali við Björn í sænska blað­inu Dagens Nyheter. Ráð­gjafa­störf Björns á Íslandi sam­hliða for­stjóra­starf­inu hafa því vakið athygli þar í landi og er yfir­skrift frétt­ar­innar að for­stjór­inn fái auka­starf sem ráð­gjafi á Íslandi. 

Í frétt­inni í sænska blað­inu er haft eftir Birni, sem áður hefur starfað sem for­stjóri Land­spít­al­ans á Íslandi: „Það mun koma í ljós á næstu mán­uðum hvort það gengur að sinna báðum stör­f­unum sam­tímis. Ef það gengur ekki þá mun ég hætta að vera ráð­gjafi, það erum við heil­brigð­is­ráð­herr­ann sam­mála um.“

Tekur við lyklunumNýr heil­brigð­is­ráð­herra, Willum Þór Þórsson, sést hér taka við lyklunum í ráðu­neyt­inu af Svandísi Svav­ars­dóttur.

Líkti Birni við Leo Messi

Ráðning Björns sem ráð­gjafa heil­brigð­is­ráð­herra, Willums Þórs Þórs­sonar, var til­kynnt um miðjan des­em­ber á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni á Björn að aðstoða við breyt­ingar sem til stendur að gera á starf­semi Land­spít­al­ans. Um ráðn­ing­una sagði Willum Þór heil­brigð­is­ráð­herra:  „Ljóst er að Land­spít­al­inn er hryggjar­stykkið í okkar heil­brigð­is­kerfi. Spít­al­inn verður að geta sinnt sínu mik­il­væga hlut­verki nú og í fram­tíð­inni. Þá er gott sam­spil spít­al­ans við aðra þætti heil­brigð­is­kerf­is­ins lyk­il­at­riði. Umtals­verðar breyt­ingar á rekstri og yfir­stjórn Land­spít­al­ans munu eiga sér stað á næst­unni og því er gríð­ar­lega mik­il­vægt að sér­fróðir aðilar með þekk­ingu á rekstri slíkrar stofn­unar séu til að veita ráð við slíka vinnu.“ 

„Ég mun gera þetta í frí­tíma mínum og svo mun ég fara þangað ein­hverjar helgar“
Björn Zoëga

Eitt af því sem vakti nokkra athygli í frétta­flutn­ingi af ráðn­ingu Björns voru þau orð Willums Þórs að það að fá Björn til starfa á Íslandi væri eins og ef knatt­spyrnu­mað­ur­inn Leo Messi kæmi í íslensku fót­bolta­deild­ina. „Ætli þetta sé ekki eins og að fá Messi í Val og íslensku deild­ina,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herr­ann sem sjálfur er gam­all og lands­þekktur fót­bolta­þjálf­ari sem meðal ann­ars starf­aði í Þrótti og KR. 

Bíður eftir leyfi frá yfirvöldum

Í frétt sænska blaðs­ins Dagens Nyheter er haft Birni að hann muni sinna starf­inu á Íslandi um helgar og og í frí­tíma sínum. „Ég mun gera þetta í frí­tíma mínum og svo mun ég fara þangað ein­hverjar helgar. Ég hef ekki í hyggju að hætta á Karol­inska,“ segir hann og und­ir­strikar að hann sé ekki þátt­tak­andi í því ferli að ráða nýjan for­stjóra yfir Land­spít­al­ann. 

Í sænska blað­inu kemur einnig fram að Björn hafi í fyrra verið með mán­að­ar­lán upp á 241 þús­und sænskar krónur, tæp­lega 3.5 millj­ónir íslenskra króna, fyrir störf sín á spít­al­anum. Þá segir einnig að yfir­völd í Stokk­hólms­hér­aði, sem rekur Karol­inska-spít­al­ann, muni þurfa að taka afstöðu til þess hvort hann fái að sinna þessu auka­starfi eða ekki. Fram kemur að þessi ákvörðun muni liggja fyrir á næstu dögum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár