Lýstu Eimskipskæru Umhverfisstofnunar sem herferð gegn Samherja

Baldvin Þor­steins­son, stjórn­ar­for­maður Eim­skipa­fé­lags Íslands, tók undir með sam­starfs­manni sínum að umfjöllun um og rann­sókn á förgun fyr­ir­tæk­is­ins á tveimur gáma­skipum á Indlandi væri hluti af her­ferð gegn Samherja. Þá hafði hann enga trú á að málið myndi leiða til ein­hvers ann­ars en frá­vísun.

Lýstu Eimskipskæru Umhverfisstofnunar sem herferð gegn Samherja
Hafði ekki trú á rann­sókn­inni Baldvin Þor­steins­son, stjórn­ar­for­maður Eimskipa, hafði ekki trú á öðru en að rann­sókn á hendur fyr­ir­tæk­inu yrði vísað frá.

„Hún er í tómu tjóni,“ skrif­aði Baldvin Þor­steins­son, stjórn­ar­for­maður Eim­skipa­fé­lags Íslands, í skila­boðum til sam­starfs­manns síns á síð­asta ári um Umhverf­is­stofnun og kæru hennar til lög­reglu á förgun tveggja risa­stórra gáma­flutn­inga­skipa fyr­ir­tæk­is­ins. Ljóst er að stjórn­ar­for­mað­ur­inn hafði ekki trú á rann­sókn á meintum brotum fyr­ir­tæk­is­ins því hann hélt áfram og sagði: „Engin rann­sókn eða neitt. Óskuðu ekki gagna etc Svo tekur 3 ár að fella þetta niður.“

Skila­boðin, sem Stundin hefur séð, voru send í kjöl­far umfjöll­unar Kveiks um förgun skip­anna, Laxfoss og Goðafoss, sum­arið 2020. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem tók við kæru Umhverf­is­stofn­unar, fram­kvæmdi hús­leit á skrif­stofum fyr­ir­tæk­is­ins um miðjan mán­uð­inn í tengslum við rann­sókn máls­ins og er rann­sóknin yfir­stand­andi. 

Létu sjálf vita af húsleit

Eim­skipa­fé­lagið lét sjálft vita um aðgerðir hér­aðs­sak­sókn­ara í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar. Þar sagði meðal ann­ars að „Eimskip þykir málið mjög leitt og lítur það alvar­legum augum enda leggur félagið, stjórn­endur þess og starfs­fólk mikla áherslu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár