599. spurningaþraut: Hvaða ríki réði Mósambik í fjórar aldir, svarið því!

Fyrri auka­spurning:

Hver er konan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hver er stærst og fjölmennust Kanarí­eyja?

2.  Nafnið á einni fínustu stein­tegund jarðar er líka notað um köku. Hver er þessi stein­tegund?

3.  Hvaða evrópska nýlendu­veldi réði Afríku­ríkinu Mósambik í fjórar aldir eða allt til 1975?

4.  Hvað heitir höfuðborg Mósambik?

5.  Hver skrifaði leikritið Óþelló?

6.  Hver er þriðji fjölmennasti þéttbýlis­staðurinn á Íslandi?

7.  Jón Þór Birgisson, Georg Hólm og Ágúst Ævar Gunnarsson stofnuðu hljómsveit árið 1994. Eftir ýmsar manna­breytingar eru þeir Jón Þór og Georg nú einu meðlimir hljóm­sveitarinnar. Hvað heitir hljóm­sveitin?

8.  Hvaða smáríki kúrir milli Sviss og Austur­ríkis?

9.  Hvaða hljómsveit sendi frá sér plötuna Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band fyrir löngu síðan?

10.  Hver er leik­stjóri nýrrar kvikmynda­útgáfu af söng­leiknum West Side Story sem frumsýnd var erlendis fyrir viku eða svo?

***

Seinni auka­spurning:

Hér má sjá lítinn hluta af auglýsinga­plakati fyrir fræga bíómynd. Hver er myndin?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Tenerife.

2.  Marmari.

3.  Portúgal.

4.  Maputo. Ef einhver man enn eftir gamla nafni borgarinnar frá því á nýlendu­tímanum, Lourenço Marques, þá gef ég líka rétt fyrir það.

5.  Shakespeare.

6.  Hafnar­fjörður.

7.  Sigur Rós.

8.  Liechtenstein.

9.  Bítlarnir.

10.  Spielberg.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni má sjá rithöfundinn Guðrúnu frá Lundi.

Á neðri myndinni er hluti af plakati kvikmyndinnar Forrest Gump frá 1994.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár