Landsvirkjun neitar að tjá sig um af hverju mál Helga var ekki skilgreint sem kynferðisleg áreitni

Rík­is­fyr­ir­tækið Lands­virkjun vill ekki greina frá því af hverju fyr­ir­tækið skil­greindi mál Helga Jóhann­es­sonar, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ings félags­ins, ekki sem kyn­ferð­is­lega áreitni. Atvika­lýs­ing máls­ins virð­ist samt rúm­ast innan skil­grein­ingar Lands­virkj­unar sjálfrar á kyn­ferð­is­legri áreitni.

Landsvirkjun neitar að tjá sig um af hverju mál Helga var ekki skilgreint sem kynferðisleg áreitni
Hegðunin rímar við kyn­ferð­is­lega áreitni Samkvæmt við­bragðs­á­ætlun Lands­virkj­unar er varðar kyn­ferð­is­lega áreitni er ekki annað að sjá en að hegðun Helga rími við skil­grein­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á kyn­ferð­is­legri áreitni. Mynd: Landsvirkjun / Samsett

Lands­virkjun vill ekki greina frá því af hverju fyr­ir­tækið skil­greindi mál Helga Jóhann­es­sonar, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ings Lands­virkj­unar, ekki sem „kyn­ferð­is­lega áreitni“ heldur sem óæski­lega eða óvið­ur­kvæmi­lega hegðun. 

Líkt og Stundin greindi frá fyrir skömmu fékk Helgi áminn­ingu í starfi fyrir hegðun sína gagn­vart kven­kyns starfs­manni Land­virkj­unar og lét af störfum hjá fyr­ir­tæk­inu undir lok síð­asta mán­aðar.  Lands­virkjun sagði aldrei berum orðum opin­ber­lega að áminn­ing Helga hefði ekki verið vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni í garð kon­unnar en Stundin hefur heim­ildir fyrir þessu. 

Í svörum Lands­virkj­unar við spurn­ingum Stund­ar­innar kemur fram að fyr­ir­tækið vill ekki til­greina af hverju mál Helga og áminn­ingin sem hann fékk í starfi var ekki skil­greint sem kyn­ferð­is­leg áreitni. „Ég ítreka fyrra svar, að Lands­virkjun tjáir sig aldrei um mál ein­stakra starfs­manna,“ segir í svari Lands­virkj­unar við spurn­ingum Stund­ar­innar. 

Eins og kom fram í svari Lands­virkj­unar til Stund­ar­innar fyrir skömmu þá fór málið í far­veg innan fyr­ir­tæk­is­ins í sam­ræmi við skil­greinda við­bragðs­á­ætlun fyrir grein­ingu og úrvinnslu mála, í sam­ræmi við reglu­gerð um aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni eða ofbeldi.

Eftir að Stundin greindi frá mál­inu var annað mál tengt Helga og meintri kyn­ferð­is­legri áreitni hans gagn­vart annarri konu til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. 

Strauk kinn konunnar

Eins og Stundin greindi frá þá var alvar­leg­asta atvikið sem konan til­kynnti Helga fyrir þess eðlis að konan mun hafa upp­lifað hegðun Helga sem ógn­andi.

Konan bar því við að Helgi hafi króað hana af  við vinnu­stöð hennar og strokið kinn hennar, gegn vilja hennar. Þetta gerð­ist í kjöl­far þess að Helgi hafði tjáð starfs­mann­inum það ítrekað að hún væri les­b­íu­leg vegna þess að hún var með snögg­klippt hár. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar vildi Helgi biðja kon­una afsök­unar þegar hann ræddi við hana við starfs­stöð hennar. Helgi mun hafa boðið kon­unni að klípa sig í rass­inn eftir að hann hafði strokið vanga hennar svo hún gæti launað honum í sömu mynt vegna þess að hann hafði kallað hana les­b­íu­lega. 

Konan til­kynnti hátt­erni Helga til yfir­stjórnar Lands­virkj­unar í vor og eftir nokk­urra mán­aða ferli innan fyr­ir­tæk­is­ins varð lend­ingin sú að Helgi sagði upp sem yfir­lög­fræð­ingur þess. Konan sem til­kynnti Helga lét einnig af störfum um síð­ustu mán­aða­mót. 

Virðist vera kynferðisleg áreitni samkvæmt viðbragðsáætlun

Athygli vekur að þó að Helgi hafi ekki verið áminntur fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni þá virð­ist hátt­ernið sem var undir í mál­inu vera kyn­ferð­is­leg áreitni sam­kvæmt við­bragðs­á­ætlun Lands­virkj­unar. Í áætl­un­inni er kyn­ferð­is­leg áreitni skil­greind með eft­ir­far­andi hætti: 

„Kyn­ferð­is­leg áreitni: Hvers kyns kyn­ferð­is­leg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann til­gang eða þau áhrif að mis­bjóða virð­ingu við­kom­andi, einkum þegar hegð­unin leiðir til ógn­andi, fjand­sam­legra, nið­ur­lægj­andi, lít­il­lækk­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi aðstæðna. Hegðunin getur verið orð­bundin, tákn­ræn og/eða lík­am­leg.“

Svo segir enn frekar í verk­lags­regl­unum um skil­grein­ingu hug­tak­anna kyn­ferð­is­leg eða kyn­bundin áreitni:  „Hugtakið kyn­ferð­is­leg/kyn­bundið áreitni og ofbeldi nær yfir breitt svið hátt­semi en eft­ir­far­andi eru nokkur dæmi um athæfi sem eru sér­stak­lega ámæl­is­verð: Óvel­komnir kyn­ferð­is­legir til­burðir, til­boð eða kyn­ferð­is­legar/kyn­bundnar athuga­semdir, ummæli eða klúrt orða­lag t.d. um klæða­burð. Þetta á einnig við sam­skipti í gegnum miðla eins og sam­fé­lags­miðla og tölvu­póst.  Óvel­komin kyn­ferð­is­leg hegðun svo sem snert­ingar, klíp, klapp, káf, þukl eða strokur. Fara inn fyrir per­sónu­legt rými ein­stak­lings, m.a. með því að standa eða sitja of nálægt, halla sér að við­kom­andi eða króa af.“

Samkvæmt þeirri atvika­lýs­ingu sem Stundin hefur birt um alvar­leg­asta til­vikið sem konan til­kynnti Helga fyrir þá rímar það við þessa skil­grein­ingu. Konan bar því við að Helgi hefði króað sig af, snert kinn sína og boðið henni að klípa sig í rass­inn. 

Þrátt fyrir þetta var hátt­semi Helga samt ekki skil­greind sem kyn­ferð­is­leg áreitni og áminn­ingin sem hann fékk var ekki þess eðlis. Af hverju þetta var liggur ekki fyrir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár