Sólveig Anna fullyrðir að nýr varaforseti ASÍ verði „einn af dyggustu liðsmönnum gömlu verkalýðshreyfingarinnar“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar og fyrr­ver­andi vara­for­seti ASÍ, segir að næsti vara­for­seti verði Halldóra Sveins­dóttir. Með skipun Halldóru muni á ný hefj­ast vinna við að koma SALEK-sam­komu­lag­inu á kopp­inn og „taka alla lýð­ræð­is­lega stjórn kjara­mála úr höndum launa­fólks sjálfs“.

Sólveig Anna fullyrðir að nýr varaforseti ASÍ verði „einn af dyggustu liðsmönnum gömlu verkalýðshreyfingarinnar“
Segir Halldóru varð­mann gömlu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar Sólveig Anna spáir því að með skipun Halldóru Sveins­dóttur sem vara­for­seta ASÍ verði hafin vinna af fullum krafti við að koma SALEK-sam­komu­lag­inu aftur á kopp­inn. Mynd: ASÍ

Nýr vara­for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands verður kynntur í dag og segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, að það verði Halldóra Sveins­dóttir, for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins Bárunnar á Selfossi. Full­yrðir Sólveig Anna að með skipun Halldóru muni hafin vinna á fullum krafti við að end­ur­vekja SALEK-sam­komu­lagið.

„Halldóra er einn af dygg­ustu liðs­mönnum gömlu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, þeirrar sem leidd var af Gylfa Arn­björns­syni og studd af þáver­andi for­ystu Eflingar sem ég og B-list­inn sigruðum í kosn­ingum 2018,“ skrifar Sólveig Anna í færslu á Facebook-síðu sinni. Hún segir að stóri draumur þess­ara leið­toga gömlu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, eins og hún orðar það, hafi verið SALEK-sam­komu­lagið sem hafi verið endna­leg full­komnun þess verk­efnis að taka alla lýð­ræð­is­lega stjórnun kjara­mála úr höndum launa­fólks sjálfs og setja það í hendur sér­fræð­inga. „Ágrein­ingi milli verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og atvinnu­rek­enda yrði lokið í eitt skipti fyrir öll, sjálf­stæður samn­ings­réttur stétt­ar­fé­laga afnum­inn og verk­falls­vopnið aflagt.“

Unnið að SALEK-samkomulaginu

Í færsl­unni rekur Sólveig Anna að þrátt fyrir að miklar breyt­ingar hafi orðið á for­ystu Eflingar og VR, með til­heyr­andi breyttum áherslum og vinnu­brögðum, þá sé stað­reynd að verk­efnum hinnar gömlu for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafi aldrei verið hætt og þá sér­stak­lega ekki SALEK-verk­efn­inu. Áfram hafi verið unnið að því að koma því á kopp­inn inni á skrif­stofum ASÍ og í ráðu­neytum, af sér­fræð­ingum og starfs­fólki sem starfi án nokk­urs lýð­ræð­is­legs umboðs frá félags­fólki verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

„Gagnrýni Eflingar á Græn­bók­ar­vinn­una sem náði að stöðva verk­efnið í bili, vakti mikla úlfúð í verka­lýðs­hreyf­ing­unni“

„Rík­is­stjórnin sá þannig ekk­ert athygl­is­vert við það að reyna að smygla end­ur­vakn­ingu SALEK-sam­komu­lags­ins, undir nafn­inu „Grænbók“, inn í yfir­lýs­ingu sína vegna Lífs­kjara­samn­ing­anna árið 2019,“ skrifar Sólveig Anna og segir það hafa verið gert með sam­þykki ASÍ, undir for­ystu Hennýar Hinz, hag­fræð­ings sam­bands­ins. Henný hafi síðar farið til starfa í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu við fram­hald sama verk­efnis. Aldrei hafi verið rætt við Sólveigu Önnu sjálfa eða samn­inga­nefnd Eflingar um málið. Ef ekki hefði verið fyrir hávær mót­mæli Efl­ing­ar­fé­laga síð­asta vetur hefði tek­ist að end­ur­vekja SALEK-sam­komu­lagið.

Andstaðan vakti úlfúð

„Það hefur ekki farið hátt, en gagn­rýni Eflingar á Græn­bók­ar­vinn­una sem náði að stöðva verk­efnið í bili, vakti mikla úlfúð í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, sér­stak­lega frá varð­mönnum gömlu hreyf­ing­ar­innar. Þeir voru mjög reiðir yfir því að þessi vinna hafi ekki fengið að rúlla áfram. Fremst í flokki þess­ara varð­manna var Halldóra Sveins­dóttir,“ skrifar Sólveig Anna enn fremur. Greinir hún frá því að Halldóta hafi efnt til leyni­fundar í febr­úar síð­ast­liðnum þar sem fimmtán for­mönnum aðild­ar­fé­laga Starfs­greina­sam­bands­ins hafi verið boðið og umræðu­efnið hafi verið hvernig hægt væri að styðja við áfram­hald­andi vinnu við Græn­bók­ina, án þess að taka þyrfti til­lit til sjón­ar­miða þeirra sem and­vígir væru henni innan Starfs­greina­sam­bands­ins. Sólveigu Önnu hafi ekki verið boðið á þann fund, þrátt fyrir að hafa á þeim tíma verið vara­for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins.

Sólveig Anna segir þá að eftir að Halldóra muni verða skipuð vara­for­seti ASÍ muni hún „að sjálf­sögðu“ hefja vinnu af fullum krafti við að end­ur­vekja SALEK-sam­komu­lagið. „Ef sú vinna verður ein­hvern tíma kynnt fyrir félags­fólki í hreyf­ing­unni þá spái ég því að það verði á formi glæru­kynn­ingar frá sér­fræð­ingi, en Halldóra víðs fjarri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Afsögn Sólveigar Önnu

FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna segir lög­fræð­ing ASÍ lýsa stuðn­ingi við mann sem hafi hótað henni

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, gagn­rýnir Magnús M. Norðdahl lög­ræð­ing ASÍ harð­lega fyrir athuga­semd sem hann skrif­aði við færslu hjá Tryggva Mart­eins­syni, sem vikið var úr starfi kjara­full­trúa Eflingar í gær. Umræddur Tryggvi er að sögn Sól­veigar Önnu mað­ur­inn sem hót­aði að beita hana ofbeldi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár