Sólveig Anna lýsir málflutningi Guðmundar Baldurssonar sem „óbærilega ógeðslegum“

Krafa Guð­mundar Bald­urs­sonar um að Agnieszka Ewa Ziólkowska víki sem vara­for­maður Eflingar er yfir­gengi­lega fárán­leg að mati Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur fyrr­ver­andi for­manns.

Segir Guðmund eiga að skammast sín
Segir Guðmund eiga að skamm­ast sín Sólveig Anna segir Guðmund Bald­urs­son eiga að skamm­ast sín en telur reynsl­una sýna að það kunni hann ekki.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, fer hörðum orðum um Guðmund Bald­urs­son stjórn­ar­mann í stétt­ar­fé­lag­inu í færslu á Facebook. Kveikjan að skrifum Sól­veigar eru við­tal við Guðmund í Kast­ljósi Rík­is­út­varps­ins í gær­kvöldi þar sem hann lýsti því að eðli­legt væri að Agnieszka Ewa Ziólkowska vara­for­maður félags­ins segði af sér. Sólveig Anna segir fárán­leika þeirrar kröfu Guð­mundar yfir­gengi­legan „en auð­vitað fyrst og síð­ast svo óbæri­lega ógeðs­legur.“

Sem kunn­ugt er sagði Sólveig Anna af sér sem for­maður Eflingar og til­kynnti um það með færslu á Facebook síð­ast­liðið sunnu­dags­kvöld. Ekki hefur náðst í Sólveigu Önnu til að inna hana betur eftir mála­vöxtum en hún hefur þó sett inn fleiri færslur á Facebook þar sem hún tjáir sig um þróun mála í Eflingu. Agnieszka Ewa er kjörin vara­for­maður stjórnar stétt­ar­fé­lags­ins og ætti hún því að taka við for­mennsku við brott­hvarf Sól­veigar Önnu. Í Kast­ljósi í gær sagði Guð­mundur að hann teldi ábyrgð Agniezku Ewu ekki minni en Sól­veigar Önnu og Viðars Þor­steins­sonar fram­kvæmda­stjóra Eflingar, í þeim deilum sem geisa nú innan Eflingar. Hún ætti því einnig að segja af sér.

„Ég myndi leggja til að hann skamm­að­ist sín en ég veit af mik­illi reynslu að það kann ekki“
Sólveig Anna Jóns­dóttir
fyrr­ver­andi for­maður Eflingar

Þetta þykir Sólveigu Önnu svo yfir­gengi­legt að hún gat ekki annað en hlegið, skrifar hún, þó henni sé fjarri því hlátur í huga. Agnieszka Ewa hafi verið valin af félögum sínum til að gegna stöðu vara­for­manns og það hafi hún gert með sóma. Hún sé fyrsta konan af pólskum upp­runa sem gegni svo mik­il­vægu hlut­verki í íslenskri verka­lýðs­hreyf­ingu og fyrsti raun­veru­legi full­trúi aðflutts verka­fólks í verka­lýðs­bar­átt­unni.

„Hún þekkir allt það sví­virði­lega rugl sem við­gengst gagn­vart aðfluttu verka­fólki á eigin skinni. Allt. Hún hefur, ásamt mér og þeim í stjórn sem raun­veru­lega hafa viljað bæta hag alls vinnu­aflsins, ekki bara hag þeirra sem líta út og tala eins og þeir sjálfir, leitt stór­kost­lega umbóta vinnu innan félags­ins þegar kemur að því að tryggja að okkar aðfluttu félagar eigi rétt á nákvæm­lega sömu þjón­ustu og þau okkar sem fædd eru hér.“

Sólveig Anna bendir á að um það bil helm­ingur félags­fólks Eflingar sé aðflutt fólk og nú sé í fyrsta skipti í ábyrgð­ar­hlut­verki mann­eskja sem til­heyrir þeim hópi. „Og svo dirf­ist ein­hver maður að segja henni að láta sig hverfa. Ég myndi leggja til að hann skamm­að­ist sín en ég veit af mik­illi reynslu að það kann ekki.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Afsögn Sólveigar Önnu

FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna full­yrðir að nýr vara­for­seti ASÍ verði „einn af dygg­ustu liðs­mönnum gömlu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar og fyrr­ver­andi vara­for­seti ASÍ, segir að næsti vara­for­seti verði Halldóra Sveins­dóttir. Með skipun Halldóru muni á ný hefj­ast vinna við að koma SALEK-sam­komu­lag­inu á kopp­inn og „taka alla lýð­ræð­is­lega stjórn kjara­mála úr höndum launa­fólks sjálfs“.
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna segir lög­fræð­ing ASÍ lýsa stuðn­ingi við mann sem hafi hótað henni

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, gagn­rýnir Magnús M. Norðdahl lög­ræð­ing ASÍ harð­lega fyrir athuga­semd sem hann skrif­aði við færslu hjá Tryggva Mart­eins­syni, sem vikið var úr starfi kjara­full­trúa Eflingar í gær. Umræddur Tryggvi er að sögn Sól­veigar Önnu mað­ur­inn sem hót­aði að beita hana ofbeldi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár