574. spurningaþraut: Hve margir voru borgarstjórar 2003-2010?

574. spurningaþraut: Hve margir voru borgarstjórar 2003-2010?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan sem prýddi þessa frægu aug­lýs­inga­mynd frá árinu 1976?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á þessum degi árið 1965 fædd­ist tón­list­ar­maður sem gaf út á sinni fyrstu hljóm­plötu lög eins og Fúsa hrein­dýr, Araba­dreng­inn og Búkollu. Hver er tón­list­ar­mað­ur­inn?

2.  Annar tón­list­ar­maður sendi hins vegar núna í sumar frá sér lagið Bad Habits sem náði gríð­ar­legum vin­sældum og nýtur jafn­vel enn. Hver er þessi mús­í­k­ant?

3.  Árið 1402 barst afar skæð sótt til lands­ins með skipi frá útlöndum. Sóttin drap þús­undir manna, en hvað var hún kölluð?

4.  En hvar barst hún að landi?

5.  Í hvaða borg er Louvre-safnið?

6.  Í annarri borg í Evrópu er hins vegar annað frægt safn, Gug­gen­heim-safnið, í frægri bygg­ingu sem opnuð var 1997. Hvaða borg er hér um að ræða?  

7.  Drykkj­ar­vöru­fram­leið­andi einn frá Aust­ur­ríki fram­leiðir vin­sælan orku­drykk með ensku nafni, en er líka þekkt fyrir að styrkja mjög mynd­ar­lega fjölda íþróttaliða í mörgum löndum, ekki síst í fót­bolta og kappakstri. Liðin, sem fyr­ir­tækið heldur úti, taka sér yfir­leitt nafn fyr­ir­tæk­is­ins. Hvað heitir drykk­ur­inn — og fyr­ir­tækið?

8.  Fang­elsið að Litla-Hrauni er í útjaðri hvaða þétt­býl­is­staðar?

9.  Tzatziki er ídýfa og/eða smá­réttur sem búinn er til úr hvít­lauk, agúrku, ólífu­olíu, dilli og stundum sítrónusafa. En hér vantar reyndar aðal­at­riðið í tzatziki, sem er ...?

10.  Árið 2003 lét Ingi­björg Sólrún af starfi sem borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Næstu árin kom fólk og fór í emb­ætti borg­ar­stjóra. Hve margir ein­stak­lingar gegndu borg­meist­ara­starf­inu þangað til Jón Gnarr tók við 2010?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Árið 1986 var myndin hér að neðan tekin á blaða­manna­fundi. Af hvaða til­efni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Björk.

2.  Ed Sheerean.

3.  Svarti dauði.

4.  Í Hval­firði.

5.  Í París.

6.  Bilbao.  

7.  Red Bull.

8.  Eyr­ar­bakka.

9.  Jógúrt.

10.  Sex — Þórólfur Árnason, Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, Vil­hjálmur Þ. Vil­hjálms­son, Dagur B. Egg­erts­son, Ólafur F. Magn­ús­son, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Farrah Fawcett.

Neðri myndin var tekin á blaða­manna­fundi sænsku lög­regl­unnar vegna morðs­ins á Olov Palme. Lög­reglu­mað­ur­inn sem veifar byss­unum tveim hét Hans Holmér en óþarfi er að muna nafn hans. „Morðið á Palme“ þarf að koma fram.

***

Hér að neðan eru hlekkir á fyrri þrautir, athugið það!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár