Dwayne Fontana, bandaríski körfuboltaleikmaðurinn sem var stigakóngur íslensku úrvaldsdeildarinnar árið 2000-2001 þegar hann spilaði með KFÍ á Ísafirði, segir að Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hafi hlerað símann hans og komið heim til hans til að spyrja hann um veðmálasvindlið sem tveir liðsfélagar hans í háskóla tóku þátt í og högnuðust á. Hann segir, í viðtali við Stundina, að FBI hafi gert þetta til að fá upplýsingar um það hvort hann hafi vitað af veðmálahneykslinu sem átti sér stað í liðinu sem hann var í, Arizona State, árið 1994. Dwayne var stigahæsti leikmaður íslensku úrvalsdeildarinnar árið 2000-2001 með 33 stig að meðaltali í leik.
„FBI hleraði símana mína. Ég gat heyrt í þeim á línunni þegar þeir voru að hlusta á símtölin mín, það heyrðust svona stöðug klikk í bakgrunninum. FBI kom svo heim til mín til að taka skýrslu af mér, þeir voru heima hjá mér í svona þrjá klukkutíma. Þeir vissu að ég hefði ekki tekið þátt í þessu en þeir vildu vita ef ég hefði vitað eitthvað um þetta og hvað ég vissi. En ég vissi ekki neitt um þetta,“ segir Dwayne.
Ekki nægilega nánir vinir
Eins og Stundin greindi frá fyrr í vikunni þá er Dwayne Fontana viðmælandi í nýrri heimildarmynd á streymisþjónustunni Netflix um veðmálasvindl í bandaríska háskólakörfuboltanum árið 1994. Myndin um veðmálasvindlið í körfuboltaliði Arizona State er hluti af sex mynda seríu á Netflix sem heitir Bad Sport og fjallar um svindl og glæpi í íþróttaheiminum. Myndin á Netflix fjallar um það hvernig stjarna Arizona State-liðsins, Steven „Hedake“ Smith, dróst inn í veðmálasvindl ásamt einum meðspilara sinna. Svindlið gekk út á að reyna að stýra því hvernig leikir liðsins enduðu. Liðsfélagar Dwayne, meðal annars „Hedake“, voru dæmdir í fangelsi fyrir svindlið
„Af hverju var ég að leggja svona hart að mér inni á vellinum þegar hann var að stunda svona svindl?“
Dwayne segir að jafnvel þó að hann og aðalmaðurinn í svindlinu í liði Arizone-skólans, „Hedake“ Smith, hafi verið á sama ári í háskóla þá hafi þeir ekki verið nægilega nánir og góðir vinir til að hann hefði sagt Dwayne frá því hvað hann var að gera. „Við erum í skólanum og liðinu saman í fjögur ár. Við vorum vinir en vorum ekki nægilega miklir vinir til að hann myndi segja mér eitthvað svona.“
Hann segist ennþá vera pirraður út í þennan fyrrum liðsfélaga sinn: „Af hverju var ég að leggja svona hart að mér inni á vellinum þegar hann var að stunda svona svindl? Hann eyðilagði árið hjá okkur. Þetta var vanvirðing við mig.“
Spurður um málið á Íslandi
Dwayne segir að myndin um veðmálahneykslið hafi vakið upp sterkar tilfinningar hjá sér. „Ég hafði komist yfir þetta loksins, þetta gerðist fyrir næstum því 30 árum. Ég hafði ekkert komist yfir þetta 10 árum eftir að þetta gerðist. En svo kallaði þessi mynd upp tilfinningar mínar út af þessu. Mér fannst þetta vera ósanngjart gagnvart mér; ég vissi ekki um þetta, ég var ekki hluti af þessu en ég þurfti samt stöðugt að svara spurningum um þetta,“ segir Dwayne.
Hann segir að hann hafi meðal annars verið spurður út í málið þegar hann kom til Íslands og Ísafjarðar; málið hafi verið það þekkt, meira að segja alþjóðlega. Dwayne vísar í orðum sínum til þáverandi formanns körfuboltadeildar Ísafjarðar, Guðjóns Þorsteinssonar; „Meira að segja á Íslandi. Þegar ég kom til Ísafjarðar spurði Gaui [Guðjón Þorsteinsson] mig að þessu veðmálasvindli af því þetta var á internetinu,“ segir Dwayne sem var orðinn vanur að fá slíkar spurningar hvar sem hann spilaði og jafnvel þó að hann hafi ekki komið neitt að því þá hafi málið fylgt honum um árabil.
Varð gráðugur og það varð honum að falli
Þegar Dwayne er spurður að því hvort hann telji að þetta veðmálasvindlsmál sé ástæðan fyrir því að „Hedake“ Smith hafi ekki verið valinn í NBA-deildina þá segist hann telja það. „Já, ekki spurning. Ef hann hefði ákveðið að fara í NBA-deildina eftir næstsíðasta árið sitt í háskóla þá hefði hann verið valinn: Hann var það góður. Hann fer svo út í þetta veðmálasvindl á síðasta árinu sínu og það hafði þau áhrif að hann var ekki valinn í NBA-deildina því NBA-liðin vissu að það var möguleiki á að hann yrði dæmdur fyrir þetta. Hann kastaði draumum sínum á glæ. En þetta er ákvörðun sem hann tók og hann vissi að hann var að gera eitthvað ólöglegt og þeir nöppuðu hann af því hann varð gráðugur. Hann hélt áfram að gera þetta. Hann tók áhættu og hann tapaði,“ segir Dwayne.
„Hedake“ Smith var dæmdur í fangelsi í eitt ár árið 1997. Dwayne segist ekki hafa verið í samskiptum við hann í meira en 20 ár.
Hvað áhrif hafði málið á feril Dwayne?
Dwayne segir, aðspurður um hvort og þá hvaða áhrif þetta mál hafi haft á feril hans sjálfs, að hann viti það ekki alveg en að málið hafi fylgt sér, samanber spurningar um málið á Íslandi. Mögulega hafi einhver lið veigrað sér við að semja við hann. „Málið fylgdi mér í mörg ár af því ég var tengdur við það. Kannski voru einhver lið sem sömdu ekki við mig vegna tengsla minna við þetta hneyksli,“ segir Dwayne.
Hann segir að hann telji að „Hedake“ Smith skuldi sér afsökunarbeiðni vegna málsins. „Mér finnst að hann skuldi mér afsökunarbeiðni eftir öll þessi ár. Þú veist: Maður á mann. Að hann segi: Ég biðst afsökunar, ég var ungur, ég vissi ekki hvaða afleiðingar þetta gæti haft og ég biðst afsökunar. Þetta myndi láta mér líða miklu betur.“
Snjórinn og kuldinn það fyrsta sem kemur upp í hugann
Eftir að Dwayne Fontana fór frá Íslandi hélt hann til Spánar og Lúxemborgar og spilaði þar í samtals nokkra mánuði, segir hann. Fljótlega eftir að hann flutti frá Ísafirði til meginlandsins hætti hann hins vegar í körfubolta, 28 ára gamall. „Ég var orðinn leiður á að vera á stöðugum ferðalögum og ég bað þá bara að senda mig heim frá Lúxemborg. Ég komst líka að því þarna úti í Lúxemborg að konan mín í Bandaríkjunum væri ólétt af syni okkar og þá vissi ég að þetta væri komið gott,“ segir Dwayne.
Aðspurður um hvað sé það fyrsta sem komi upp í hugann þegar hann hugsar tilbaka til Íslandsdvalarinnar þá nefnir hann snjóinn. „Þetta var í fyrsta skipti á ævinni sem ég sá snjó, það snjóaði allan tímann. Og svo var svo kalt, svo rosalega kalt.“ segir Dwayne, sem er uppalinn í borginni Oakland í Kaliforníu þar sem hann býr í dag ásamt konu sinni og þremur börnum.
„Samfélagið á Ísafirði var líka svo lítið og vinalegt að fólk fór út í búð, skildi bílinn eftir í gangi, skildi börnin sín eftir í bílnum og fór inn að versla. Ef þú myndir gera þetta í Oakland þá myndi einhver stela bílnum þínum, eða börnunum þínum. Allir þekktu alla; ég húkkaði mér far á hverjum degi til að fara út í búð og fólk keyrði mig hvert sem ég vildi. Allir voru svo vinalegir. Þetta var svo ólíkt Kaliforníu en ég vandist þessu og ég komst í gegnum þetta og kláraði þetta. Það var ekki bara að Ísafjörður væri svo ólíkur Kaliforníu heldur var Ísafjörður svo frábrugðinn Reykjavík. En þetta var góður tími, góður tími og ég naut hans.“
Fyrirvari um tengsl: Blaðamaður Stundarinnar spilaði körfubolta með Dwayne á Ísafirði árin 2000 til 2001.
Athugasemdir