Stigakóngur úr íslensku úrvalsdeildinni viðmælandi í mynd um landsfrægt veðmálasvindl í Bandaríkjunum

Banda­ríkja­mað­ur­inn Dwayne Lamore Fontana, sem lék með KFÍ á Ísafirði keppn­is­tíma­bilið 2000-2001, er við­mæl­andi í nýrri heim­ild­ar­mynd á Netflix um veð­mála­svindl í háskóla­bolt­anum þar í landi. Dwayne, sem var stiga­kóngur úrvals­deild­ar­innar á Íslandi, opnar sig um svindl tveggja liðs­fé­laga sinna í Arizona State-háskól­anum.

Stigakóngur úr íslensku úrvalsdeildinni viðmælandi í mynd um landsfrægt veðmálasvindl í Bandaríkjunum
Við­mæl­andi í heim­ild­ar­mynd Netflix Dwayne Lamore Fontana var leik­maður KFÍ á Ísafirði á árunum 2000 til 2001. Hann sést hér í leik með KFÍ gegn ÍR í Selja­skóla. Hann er einn helsti við­mæl­and­inn í heim­ild­ar­mynd Netflix um veð­mála­svind­lið í Arizona-háskól­anum. Myndin er tekin úr DV.

Banda­ríkja­mað­ur­inn Dwayne Lamore Fontana, sem spil­aði með liði KFÍ á Ísafirði árið 2000 til 2001, er við­mæl­andi í nýrri heim­ild­ar­mynd á streym­is­þjón­ust­unni Netflix um veð­mála­svindl í banda­ríska háskóla­körfu­bolt­anum árið 1994, nánar til­tekið í liði Arizona State.  Myndin um veð­mála­svind­lið í körfu­boltaliði Arizona State er hluti af sex mynda seríu á Netflix sem heitir Bad Sport og fjallar um svindl og glæpi í íþrótta­heim­inum. 

Dwayne lék háskóla­bolta með Arizona State á árunum 1990 til 1994, nokkrum árum  áður en hann kom til Íslands og KFÍ þar sem hann varð stiga­kóngur deild­ar­innar með 33 stig að með­al­tali í leik og tæp 14 frá­köst. 

Tók þátt í veð­mála­svindliSteven „Hedake“ Smith tók þátt í veð­mála­svindli í Banda­ríkj­unum og segir Dwayne Fontana, fyrrum liðs­fé­lagi hans og fyrr­ver­andi leik­maður KFÍ, að hann hafi enn ekki kom­ist yfir afleið­ingar svindls­ins.

Dæmdur í fangelsi fyrir svindlið

Myndin á Netflix fjallar um það hvernig stjarna Arizona State-liðs­ins, Steven „Hedake“ Smith, dróst inn í veð­mála­svindl ásamt einum með­spil­ara sinna. Svindlið  gekk út á það að Smith átti að sjá til þess að liðið myndi sigra eða tapa með ákveðið mörgum stigum. Fyrir þessa þjón­ustu sína fékk Smith greiddar upp­hæðir sem voru á bil­inu 10 til 20 þús­und doll­arar.

Maðurinn sem skipu­lagði svind­lið náði hins vegar að svindla út nokkrar millj­ónir doll­ara með þessum hætti áður en hann tap­aði öllu í einum leik þar sem Smith náði ekki að stýra leiknum þannig að hann næði að láta úrslitin verða eins og hann átti að gera. Í kjöl­farið komst upp um svind­lið enda hafði aðal­skipu­leggj­and­inn gengið á milli hót­ela í Las Vegas og veðjað á leik­inn fyrir alls fimm millj­ónir doll­ara og vakti þetta grun­semdir í borg­inni. 

Smith, og liðs­fé­lagi hans sem vann með honum að hluta, og tveir af þeim sem skipu­lögðu svind­lið og græddu mest á því voru dæmdir í fang­elsi. 

Í mynd­inni er rætt um það að Smith hafi í kjöl­farið ekki verið val­inn af neinu liði í NBA-deild­inni árið 1994 en árlega fer fram svo­kallað NBA-draft þar sem bit­ist er um bestu leik­menn­ina í banda­ríska háskóla­bolt­anum. Þar kemur fram að fyrir veð­mála­hneykslið hafi fast­lega verið búist við því að Smith yrði val­inn í NBA-deild­ina.

„Þetta hvíldi yfir mér eins og svart ský í mörg ár.“
Dwayne Lamore Fontana

Í stað NBA-deild­ar­innar fór Smith til Evrópu og spil­aði með nokkrum liðum í ýmsum löndum. Smith átti nokkrum áður síðar, 1997, eftir að gera skamm­tíma­samn­ing við Dallas Mavericks í NBA-deild­inni og spila nokkra leiki fyrir liðið þar sem hann var með 1,8 stig að með­al­tali. Hann hélt svo aftur til Evrópu og spil­aði fyrir lið í Frakk­landi, Búlgaríu og Rúss­landi áður en hann lagði skóna á hill­una árið 2008. 

Dwayne segist ekki hafa jafnað sig á svindlinu 

Ennþá reiðurDwayne Fontana, fyrr­ver­andi leik­maður KFÍ, seg­ist ennþá vera reiður út af veð­mála­svindlinu.

Dwayne Fontana segir að hann hafi ekki ennþá jafnað sig til fulls á veð­mála­svindlinu.

Á Facebook-síðu sinni segir hann um málið: „Ég hef fengið mikil við­brögð og pæl­ingar við þætti á Netflix sem ég var við­mæl­andi í sem snérist um stiga­svindl sem háskóla­liðið mitt í körfu­bolta tengd­ist. Ég hef eig­in­lega áttað mig á einu loks­ins: Ég er ennþá dálítið reiður yfir því. Ég hélt að þetta til­heyrði for­tíð­inni en ég hef ekki kom­ist yfir þetta 100 pró­sent. Þegar ég horfði á þetta aftur minnti það á mig hversu oft ég hef þurft að svara spurn­ingum um ein­hvern skít sem ég kom ekki nálægt og sem ég vissi ekk­ert um. Þetta hvíldi yfir mér eins og svart ský í mörg ár.“

Lof­sam­leg orð um Dwayne FontanaBenedikt Guð­munds­son, lands­liðs­þjálfir kvenna­lands­liðs­ins, þjálf­ari Njarð­víkur í úrvals­deild karla og fyrr­ver­andi þjálf­ari KR og fleiri liða, var íþrótta­blaða­maður á DV árið 2000-2001 og skrif­aði mikið um körfu­bolta, meðal ann­ars leiki hjá KFÍ og fer hann lof­sam­legum orðum um Dwayne Fontana.

Benedikt: „Ísafjarðar-Barkley“

Íþrótta­blaða­menn á Íslandi nefndu Dwayne Fontana reglu­lega sem einn af betri leik­mönnum deild­ar­innar enda var töl­fræði hans líka þannig þó svo KFÍ-liðið hafi kol­fallið um deild þetta árið með aðeins þrjá sigra. Í einni af greinum sínum um leiki með KFÍ sagði þáver­andi íþrótta­f­rétta­maður DV og  sig­ur­sæll körfu­bolta­þjálf­ari, Benedikt Guð­munds­son, að Dwayne Fontana þyrfti aðeins að bæta varn­ar­leik­inn: „Ef Fontana myndi bæta varn­ar­leik­inn þá væri hann einn besti erlendi leik­maður deild­ar­innar.“

„Ég skil ekki í mér að hafa ekki kallað hann Ísa­fjarðar-Barkley á sínum tíma þegar ég var að skrifa um leiki liðs­ins.“
Benedikt Guð­munds­son

Aðspurður segir Benedikt, sem í dag er þjálf­ari Njarð­víkur í úrvals­deild­inni, að hann hafi verið mjög hrif­inn af Dwayne Fontana sem leik­manni.

Benedikt segir að hann hafi minnt sig á banda­ríska köfu­bolta­mann­inn Charles Barkley sem er ein af helstu goð­sögnum NBA-deild­ar­innar síð­ast­liðna ára­tugi: „Ég var mjög hrif­inn af Fontana sem leik­manni á sínum tíma og það kom mér alls ekki á óvart hversu góður hann var með KFÍ. Hann kom úr góðum háskóla í USA þar sem hann stóð sig því­líkt vel og var stundum líkt við Charles Barkley. Hann var bæði lík­am­lega sterkur og ofboðs­lega fjöl­hæfur. Þrátt fyrir að vera ekki hár í loft­inu miðað við körfu­bolta­mann þá var hann frá­bær frá­kast­ari. Þá var hann óstöðv­andi skor­ari með KFÍ því vopna­búrið var svo fjöl­breytt eins og hjá Barkley. Hann var algjör­lega sér­snið­inn fyrir íslensku deild­ina. Ég skil ekki í mér að hafa ekki kallað hann Ísa­fjarðar Barkley á sínum tíma þegar ég var að skrifa um leiki liðs­ins.“

Umrædda mynd má sjá hér.

Fyr­ir­vari um tengsl: Blaða­maður Stund­ar­innar spil­aði körfu­bolta með Dwayne Lamore Fontana í KFÍ keppn­is­tíma­bilið 2000-2001. Blaða­maður bjó auk þess fyrir ofan Dwayne í blokk sem kennd er við Múlaland á Ísafirði og keyrði með honum á körfu­bolta­æf­ingar og í heima­leiki í sjálf­skiptum Saab, árgerð 1988.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár