535. spurningaþraut: Hver á kátan granna?

Fyrri auka­spurning:

Hvað heitir Bítla­platan sem myndin hér að ofan prýðir albúmið á?

***

Aðal­spurningar:

1.  Forsætis­ráðherrann í landi einu heitir Scott Morrison. Hvaða land er það?

2.  Í Þjóð­leikhúsinu er nú verið að sýna leikritið Ástu um íslenska listakonu sem var áberandi upp úr miðri öldinni. Hvað hét hún fullu nafni?

3.  Hver leikur Ástu í leik­ritinu?

4.  Leik­stjóri og höfundur leik­gerðar er þraut­reyndur leik­húsmaður, sem hefur áður búið til leikrit um Bubba Morthens og Ellý Vilhjálms. Hvað heitir leik­húsmaðurinn?

5.  Í hvaða landi er drykkurinn gin upprunninn?

6.  Hvaða flokkur var í þriðja sæti að heildar­atkvæða­magni í kosningunum í september?

7.  Í eðlis­fræðinni er talað um fjóra krafta sem haldi veröldinni saman. Þeir eru kallaðir — í stafrófsröð: Aðdráttar­aflið, Rafsegul­krafturinn, Sterki krafturinn, Veiki krafturinn. Hver þessara krafta er VEIKASTUR?

8.  Land eitt heitir Éire á frummáli innbyggjaranna, þótt í daglegu tali sé nú yfirleitt annað nafn notað. Hvaða land er Éire?

9.  Hvaða íslenski rithöfundur sendi árið 2015 frá sér skáld­söguna Stóri skjálfti?

10.  Hverrar þjóðar var Genghis Khan?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er granni þessa karls? Þeir hittast gjarnan á samliggjandi svölum sínum og dreypa jafnvel á konjakki.

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Ástralíu.

2.  Ásta Sigurðar­dóttir.

3.  Birgitta Birgis­dóttir.

4.  Ólafur Egill.

5.  Hollandi.

6.  VG.

7.  Aðdráttar­aflið.

8.  Írland.

9.  Auður Jóns­dóttir.

10.  Mongólskur.

***

Svör við auka­spurningum:

Efri myndin prýðir umslagið á plötunni Help.

Granni karlsins á neðri myndinni er Martin Beck, sænskur rannsóknar­lögreglu­maður í óteljandi bíómyndum sem heita einu nafni Beck. Þeir Beck og granni hans hittast að minnsta kosti einu sinni í hverri mynd, oftar en ekki úti á samliggjandi svölum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár