534. spurningaþraut: Hvíthærður öldungadeildarþingmaður, bakraddasöngkona, hryllingsmyndir

534. spurningaþraut: Hvíthærður öldungadeildarþingmaður, bakraddasöngkona, hryllingsmyndir

Fyrri auka­spurn­ing.

Karlinn hér að ofan hefur stillt sér upp og snyrt sig til að líkj­ast sem mest heims­frægum mál­ara — eins og málar­inn leit út á frægri sjálfs­mynd sem hann mál­aði. Hver var málar­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða borg er hæsta bygg­ing heims­ins?

2.  Til hvaða ríkis telst sú borg?

3.  Hvít­hærður öld­unga­deild­ar­þing­maður í Banda­ríkj­unum vakti mikla athygli í próf­kjörum Demókrata fyrir for­seta­kosn­ingar 2016 og 2020. Hvað heitir hann?

4.  En fyrir hvaða ríki í Banda­ríkj­unum situr hann á þingi?

5.  Raun­veru­leika­þættir hafa verið vin­sælir í sjón­varpi á Vest­ur­löndum og víðar, ekki síst þættir þar sem smalað er saman hópi fólks og fylgst með því leysa alls­konar verk­efni eða ein­fald­lega eiga í mis-nánum sam­skiptum sín á milli. Mörgum þáttum af því tagi er haldið úti í fleiri en einu landi. Grande Fratello heitir til dæmis ítalska útgáfan af þætti sem vin­sæll er víða. Hvað heita þeir þættir í ensku­mæl­andi löndum?

6.  Á Megasarplöt­unum Loftmynd og Höf­uð­lausnum (1987 og 1988) settu bak­raddir tveggja systra mik­inn svip á útkom­una. Önnur systirin heitir Inga og hefur ekki verið mjög áber­andi á tón­list­ar­braut­inni síðan. En hvað heitir hin systirin?

7.  Hver varð sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar snemma árs 2017?

8.  Hvað heitir unnusta Andrésar Andar?

9.  Árið 1996 var frum­sýnd í Banda­ríkj­unum hryll­ings­mynd sem þótti ansi blóðug en þó í gam­an­sömum tón. Þar reyndi grímu­klæddur morð­vargur að koma stúlku að nafni Sidney Prescott og vinum hennar fyrir katt­ar­nef. Myndin varð mjög vin­sæl, ekki síst meðal ungs fólks um heim mest­allan, og síðan hafa verið gerðar þrjár fram­halds­myndir, og fimmta myndin er víst vænt­an­leg á næsta ári. Mynd­irnar heita allar sama nafn­inu, bara með ólík númer. Og heiti þeirra er ...?

10.  Í tennis­í­þrótt­inni eru fjögur svokölluð risa­mót, sem helstu tennis­leik­arar heims­ins kepp­ast við að vinna. Grand slams eru þau kölluð á ensku. Í hvaða fjórum löndum eru þessi fjögur risa­mót haldin? Hér þarf að hafa þrjú rétt lönd til að fá stig. 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir per­sónan sem sést á mynd­inni hér að neðan? Altso per­sónan, ekki leik­konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Dubai.

2.  Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum.

3.  Bernie Sanders.

4.  Vermont.

5.  Big Brother.

6.  Björk.

7.  Þor­gerður Katrín.

8.  Andr­é­sína.

9.  Scream.

10.  Mótin eru haldin í Ástralíu, Frakk­landi, Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Ef þið hafið þrjú rétt, þá fáiði stig, þótt það fjórða kunni að vera rangt. 

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn á efri mynd­inni líkir eftir frægri sjálfs­mynd hol­lenska mál­ar­ans Vincents Van Goghs.

Eins og sjá má.

Á neðri mynd­inni má hins vegar sjá lög­reglu­mann­inn Hinriku.

Hana leikur Ilmur Krist­jáns­dóttir í þátta­röð­inni Ófærð.

***

Hér fyrir neðan eru svo hlekkir á fyrri þraut, og þá næstu er fram líða stundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár