533. spurningaþraut: Hvað er að gerast á þessari mynd?

533. spurningaþraut: Hvað er að gerast á þessari mynd?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét höf­undur bókanna um Múmínálf­ana?

2.  Múmínálfarnir áttu góðan vin sem þurfti þó stundum að vera út af fyrir sig og fór til dæmis alltaf suður á haustin í stað þess að leggj­ast í dvala með Múmínálf­unum. Þessi vinur spil­aði líka lista­vel á munn­hörpu og hét ... hvað?

3.  Árið 1997 urðu þeir Björn Ólafsson, Einar Stef­áns­son og Hall­grímur Magn­ús­son fyrstir Íslend­inga til að vinna ákveðið afrek. Síðan hefur um tugur landa vorra end­ur­tekið afrek þetta, sem var að ... gera hvað?

4.  Í hvaða landi eru Fiat bílar upp­runnir?

5.  Kuala Lumpur er höf­uð­borg hvaða ríkis?

6.  Hótel eitt var stofnað í Reykja­vík árið 1965. Það þótti þá eitt allra mesta lúx­us­hótel í Reykja­vík og er það kannski enn, hvað veit ég, ég hef aldrei gist þar. Hótelið er lítið, ekki nema um 40 her­bergi, en er líka frægt fyrir vandað safn af lista­verkum sem er þar upp um alla veggi, ekki síst á barnum. Hvað heitir hót­elið?

7.  Hvar störf­uðu vær­ingjar fyrst og fremst fyrir 1000 árum?

8.  Afi minn fór eitt sinn í stutt ferða­lag og fór ríð­andi. Hvað hét hest­ur­inn hans? 

9.  Hversu mörgum þing­mönnum tap­aði VG í kosn­ing­unum í sept­em­ber?

10.  En hversu marga þing­menn vann Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr sést á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tove Jansson.

2.  Snúður.

3.  Klífa Everest.

4.  Ítalíu.

5.  Malasíu.

6.  Holt.

7.  Í Mikla­garði eða Kon­stant­ínópel. Þótt Istanbul sé í raun­inni ekki rétt svar, þar eð borgin hét það alls ekki þegar vær­ingjar voru þar í líf­verði keis­ar­ans, þá var þetta nú samt borgin og ég gef því rétt fyrir það svar líka. En ekki búast við svona lin­kind fram­vegis!

8.  Rauður.

9.  Þremur.

10.  Fimm.

***

Á efri mynd­inni má sjá stríðs­glæpa­rétt­ar­höldin í Nürnberg, þar sem réttað var yfir leið­togum þýskra nas­ista.

Á neðri mynd­inni er otur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár