Bjarni Benediktsson sem forsætisráðherra er fyrsta tilboð Sjálfstæðisflokksins

Birgir Ármans­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svarar fyrir stefnu og feril flokks­ins í Kosn­inga­stund­inni. Hann ver ráð­herra flokks­ins, heitir áherslu á skatta­lækk­anir og segir kosn­inga­lof­orðin fjár­magn­ast með hag­vexti. Flokk­ur­inn mun gera upp­haf­lega kröfu um að for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son verði for­sæt­is­ráð­herra í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

„Okkar fyrsta til­boð er auð­vitað alltaf að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé for­sæt­is­ráð­herra,“ segir Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í við­tali við Kosn­inga­stund­ina. Hann segir að flokk­ur­inn sé opinn fyrir hvers kyns sam­starfi en að fyrsti mögu­leik­inn sé að Bjarni Bene­dikts­son sé for­sæt­is­ráð­herra. „Það er auð­vitað okkar fyrsta útspil. Hins vegar þá höfum við ekki úti­lokað að taka þátt í þessu stjórn­ar­sam­starfi undir for­ystu Katrínar [Jak­obdsóttur] og við myndum aldrei úti­lokað aðra slíka mögu­leika.“

 Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist langstærsti flokkur lands­ins í skoð­ana­könn­unum og hefur lengst af gjarnan mælst með tvö­falt meira fylgi en næsti flokkur á eftir.

Birgir segir að kosn­inga­lof­orð flokks­ins, eins og aukin útgjöld og skatta­lækk­anir, verði fjár­mögnuð með því að kakan stækki, að umsvif hag­kerf­is­ins auk­ist. „Við byggjum okkar stefnu á því að hér verði áfram hag­vöxtur,“ segir hann.

Lýsa yfir „þjóðarskömm“

Í kosn­inga­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að biðlistar og tvö­falt heil­brigð­is­kerfi séu „þjóð­ar­skömm“. Aðspurður hvers vegna flokk­ur­inn hafi ekki breytt þessu í þau átta ár sem flokk­ur­inn hefur verið sam­fellt í rík­is­stjórn og þar af mestan tím­ann með fjár­mála­ráðu­neytið segir Birgir: „Á sviði heil­brigð­is­mála hafa verið nún­ings­fletir innan þessa stjórn­ar­sam­starfs.“

Birgir segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn vilja láta reyna meira á einka­rekstur, þótt opin­bera kerfið verði áfram hryggjar­stykkið í heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi.

Baráttan gegn biðlist­unum og lægri skattar eru tvö af kjarna­málum Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar. Flokk­ur­inn stóð við að lækka tekju­skatta á kjör­tíma­bil­inu og fór lægsta þrep tekju­skatts niður í 31,45% árið 2021 úr 36,94% árið 2017, þótt per­sónu­af­sláttur hafi lækkað lít­il­lega á sama tíma. Þriðja höf­uð­málið er nýt­ing inn­lendrar orku í stað olíu. Birgir Íslend­inga nú þegar hafa for­skot.

„Við erum að tala um að halda okkur á pari við Evr­ópu­þjóðir hvað varðar losun fyrir ann­ars vegar 2030 og hins vegar 2050. Þannig að við teljum okkur standa vel að vígi að þessu leyti, sér­stak­lega þegar horft er til þess að í alþjóð­legum sam­an­burði verðum við að horfa til þess að stærstu los­un­ar­vanda­málin í nágranna­lönd­unum eru mál sem leyst­ust fyrir ára­tugum hér vegna nýt­ingar á umhverf­is­vænni orku.“

Varðandi það hvernig flokk­ur­inn hyggst ná fram mark­mið­unum segir Birgir tækni­fram­farir munu áorka miklu, en að nú þegar hafi verið beitt „skatta­legu hag­ræði til þess að það væri auð­veld­ara fyrir fyr­ir­tæki að fjár­festa í nýrri tækni á þessu sviði“. Hann vill þó engar rót­tækar breyt­ingar í stefnu gagn­vart stór­iðj­unni og losun hennar, enda sé „tækni­þró­unin að gefa okkur tæki til að draga úr þessu með með árang­urs­ríkum hætti“. 

Vilja selja meira í Íslandsbanka

Í kosn­ingastenfu Sjálf­stæð­is­flokks­ins kemur fram að salan á Íslands­banka hafi verið vel heppnuð. „Ég held líka að það sé jákvætt að halda áfram sölu á hlutum í Íslands­banka,“ segir Birgir en vill bíða með sölu Lands­bank­ans. 

Birgir segir að auknir styrkir til stjórn­mála­flokka og rík­is­fram­lög til einka­rek­inna fjöl­miðla „orki tví­mælis“. Hann segir þó enga umræðu um að lækka aftur styrki til stjórn­mála­flokka, sem fóru úr 286 millj­ónum árið 2017 í 728 millj­ónir í fyrra. Aukning á fram­lög­unum hafi verið til að koma til móts við tekju­tap flokk­anna þegar þrengt var að fjár­fram­lögum fyr­ir­tækja til stjórn­mála­flokka árið 2007. Hann hefur ekki áhyggjur af fjár­fram­lögum auð­manna og hags­muna­að­ila til fjöl­miðla. „Ég held að ég, ég held að alls staðar í öllum vest­rænum ríkjum þá eru eig­endur fjöl­miðla af ýmsu tagi og ég held að það sé í sjálfu sér ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af því hér á landi frekar en ann­ars staðar.“

Þrír flokkar útiloka Sjálfstæðisflokk

Spurður hvers vegna Sam­fylk­ingin og Píratar, ásamt Sós­í­alistum, úti­loka sér­stak­lega sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum segir Birgir að flokk­arnir séu að reyna að höfða til kjós­enda. „Ég held að þessir flokkar skil­greini sig svo­lítið út frá því að vera á móti okkur,“ segir hann.

Í við­tal­inu ver Birgir ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­rýni. Hann segir að brot ferða­mála­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra á sótt­varna­reglum séu skilj­an­leg og að beðist hafi verið afsök­unar. „Ég held að allir geti sett sig í þau spor að að þú getur lent í svona aðstæðum, að þetta ger­ist á óvart og það er ekki ein­hver ein­beittur brota­vilji þar á bak­við.“

Óréttmæt gagnrýni á Kristján Þór

Birgir segir Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hafa sætt órétt­mætri gagn­rýni vegna tengsla sinna við Samherja. „Mér finnst hann í raun og veru hafa sætt mjög órétt­mætri gagn­rýni út frá þessu vegna þess að það sem er verið að gagn­rýna hefur ekki með nokkrum hætti tengsl við neinar ákvarð­anir sem hann hefur verið að taka á neinu stigi. Hann komst aldrei í þá stöðu að þurfa að taka afstöðu eða ákvörðun um eitt eða neitt sem snertir þessi mál. Og ekki gagn­vart Samherja umfram önnur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í land­inu.“ 

Kristján Þór hefur mælst með lang­minnst traust allra ráð­herra í rík­is­stjórn­inni og er ekki í fram­boði fyrir þing­kosn­ing­arnar sem verða laug­ar­dag­inn 25. sept­em­ber.

Þið bjóðið núna fram undir slag­orð­inu Land tæki­fær­anna. Eitt af ykkar kosn­inga­málum er að hækka frí­tekju­mark atvinnu­tekna hjá eldri borg­urum upp í 200 þús­und krónur úr 100 þús­und. Hvers vegna hafið þið ekki lagt áherslu á að Ísland verði og hafi verið land tæki­fær­anna fyrir þetta fólk, að þetta fólk þurfi ekki að sæta 80% skerð­ingu á sínum tekjum, eða allt að því, þennan tíma sem þið hafið verið við völd?

„Við tókum þátt í því á síð­asta kjör­tíma­bili að hækka þetta frí­tekju­mark úr, ef ég man rétt, 25 þús­und í 100 þús­und þannig að við vorum að stíga skref í átt­ina. Veru­leik­inn hefur líka breyst að því leyti að þeir sem eru að fara á eft­ir­laun í dag eru almennt hress­ari, við betri heilsu, og hafa hugs­an­lega meira starfs­þrek heldur en áður var, þannig að þetta er í raun og veru að verða raun­hæf­ara við­fangs­efni. Fyrir síð­ustu kosn­ingar komu fram­má­menn í Félagi eldri borg­ara að máli við okkur og reyndar aðra flokka líka og lögðu tölu­verða áherslu á þetta. Það má segja að það hafi svona svo­lítið komið þessu á dag­skrá hjá okkur og öðrum í póli­tík­inni. Við hins vegar teljum að reynslan af því að fara með þetta upp í hund­rað þús­und sé bara býsna góð.“ 

Lofuðu eldri borgurum afnámi tekjutenginga

Þannig að ykkur fannst þetta vera nóg? Grái her­inn, sam­tök eldri borg­ara, er alger­lega ósam­mála. Fyrir átta árum, fyrir kosn­ing­arnar 2013, þegar þið komust í rík­is­stjórn, sendi for­maður flokks­ins, bréf á eldri borg­ara þar sem sagði meðal ann­ars orð­rétt: „Fái Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn umboð til að leiða næstu rík­is­stjórn munum við setja eft­ir­far­andi mál í önd­vegi: Við ætlum að afnema tekju­teng­ingar elli­líf­eyris. Stjórn­völd eiga að hlúa að öldruðum en ekki að íþyngja þeim með ósann­gjarnri skatt­lagn­ingu. Finnst ykkur þið hafa staðið ykkur nægi­lega vel í þessu máli og staðið við það sem þið hafið boðað?

„Við getum alltaf gert betur og á þessu sviði eins og öðrum. Við hins vegar fórum árið 2016 í tölu­vert mikla end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi eft­ir­launa­kerf­is­ins sem í raun og veru beind­ist fyrst og fremst að því að bæta kjör þeirra sem höfðu engar aðrar tekjur en greiðslur frá almanna­trygg­ingum. Það var sett í for­gang á þeim tíma og leiddi til tölu­vert mik­illar útgjalda­aukn­ingar hjá rík­inu. Núna fyrir þessar kosn­ingar segjum við; það er kom­inn tími til að taka skref aftur, skref í að end­ur­skoða þetta kerfi og í því sam­bandi þá höfum við meðal ann­ars lagt áherslu á það að draga enn frekar úr skerð­ingum sem við teljum að séu of stífar, það er að segja að mörkin séu of lág í skerð­ingar, þær bíta of snemma í skerð­ing­unum. Þannig að við erum að hugsa um ákveðna kerf­is­breyt­ingu, sem felur í sér það sem við köllum líf­eyr­is­upp­bót sem felur í sér að þeir sem ekki hafa nægi­lega góða stöðu í líf­eyr­is­sjóðum, að þeir fái það bætt upp af hinu opin­bera. Það sem menn fá ann­ars staðar, það verði þá ekki skert. Við eigum eftir að útfæra þetta nánar. Og eigum eftir að eiga sam­töl við aðra flokka og við hags­muna­sam­tök eldri borg­ara um þetta.“ 

Betri kjör þingmanna í æðri tilgangi

Horfum á þessi líf­eyr­is­mál aftur í tím­ann. Þú hefur verið á þingi frá árinu 2003 og ert þá einn reynd­asti þing­mað­ur­inn. Árið 2003 voru eft­ir­launa­lög þing­manna sam­þykkt. Nú er það þannig að fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins þíns, Davíð Oddsson, þiggur bæði full eft­ir­laun og fullar atvinnu­tekjur og er yfir­leitt efstur á lista yfir tekju­hæstu fjöl­miðla­menn lands­ins. Hvað finnst þér um þá stöðu út frá rétt­læti og gild­is­mati almennt?

„Án þess að maður vilji tala um ein­hver ein­stök dæmi þá nátt­úr­lega er það þannig að kerfið sem var sett á 2003 fól í sér að það var vissu­lega verið að bæta eft­ir­launa­kjör, sér­stak­lega þeirra sem höfðu verið ráð­herrar og þeirra sem höfðu verið lengi í póli­tík. Hins vegar höfum við farið í gegnum alla vega tvær ef ekki þrjár breyt­ingar á þessu systemi síðan. Útkoman fyrir okkur í dag er sú að þing­menn og aðrir ráða­menn eru með sömu eft­ir­launa­kjör og opin­berir starfs­menn almennt, borga reyndar meira í líf­eyr­is­sjóð­inn en fá það sama úr honum. Það voru mjög margir sem duttu inn í þetta kerfi á þeim tíma sem það var við lýði. En hug­myndin var auð­vitað sú að það væri verið að búa til mögu­leika fyrir fólk að hætta í stjórn­málum án þess að það væri endi­lega verið að finna ein­hverjar opin­berar stöður fyrir þá eða eitt­hvað annað þess háttar, eins og hafði kannski tíðkast.“  

„Hug­myndin var auð­vitað sú að það væri verið í raun og veru að búa til mögu­leika fyrir fólk að hætta í stjórn­málum án þess að að það væri endi­lega verið að finna ein­hverjar opin­berar stöður fyrir þá“

Framlög til flokka og fjölmiðla orki tvímælis

Nú eruð þið sá flokkur sem talar mest fyrir minni rík­is­út­gjöldum og hafið mælt með aðhaldi í rekstri rík­is­ins og tak­mark­aðri skatt­heimtu og svo fram­vegis. Engu að síður ákváðuð þið, á þessu kjör­tíma­bili, að fram­lög til stjórn­mála­flokka yrðu aukin úr 286 millj­ónum árið 2017 í 728 millj­ónir í fyrra. Hvernig sam­ræm­ist þetta þess­ari almennu stefnu? 

„Þetta var nið­ur­staða af sam­eig­in­legri vinnu allra flokk­anna ...“  

Þið komið ykkur saman um að auka fram­lög til ykkar sjálfra?

„Já, já, og það var gert með þeim hætti að það var horft til þeirrar stöðu sem var 2007 þegar það voru settar veru­legar skorður við því hvaða styrkir flokkar gætu fengið frá öðrum aðilum. Hug­myndin var sú 2007 að gera flokk­ana minna háða fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og öðrum aðilum. Þegar þessi fjár­hæð var fundin út á þessu kjör­tíma­bili þá var horft til þess hver staðan var hjá flokk­unum 2007, hvaða styrki þeir voru að fá á þess tíma verð­lagi og það var reynt að jafna það upp í því með því móti.“ 

Ef við tökum annað sam­bæri­legt dæmi, það eru fjöl­miðlar. Nú var ákvæði í stjórn­ar­sátt­mál­anum að styrkja einka­rekna fjöl­miðla með ein­hverjum hætti. En sam­flokks­menn þínir hafa lagst gegn því að greiða úr rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla. Samt sam­þykkja þeir þetta. Er ein­hver ástæða fyrir því að það er þessi munur á við­horfi til fjár­fram­laga til stjórn­mála­flokka, og þar með ykkar sjálfra?

„Ég get alveg sagt frá mínum bæj­ar­dyrum séð, að hvort tveggja orkar tví­mælis. En hins vegar þá var horft á það á sínum tíma að með því að tak­marka mjög mögu­leika flokk­anna til að fjár­magna sig með öðrum hætti, þá væri rétt með ein­hverjum hætti að koma til móts við þeirra kostnað með fram­lögum úr rík­is­sjóði. Það er veru­legt umhugs­un­ar­efni en þetta var nið­ur­staðan varð­andi fjöl­miðl­ana til að greiða.“  

Kemur til greina af þinni hálfu að lækka þessar greiðslur aftur til stjórn­mála­flokka?

„Ég myndi ekki treysta mér til að svara því. Það hefur ekki átt sér stað nein umræða um það. En á hinn bóg­inn, ef við horfum á fjöl­miðl­ana, þá er engin laun­ung á því að við, margir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vildum frekar, heldur en að fara í beina styrki til fjöl­miðla, fara þá leið að bæta starfs­um­hverfið eða rekstr­ar­um­hverfið, meðal ann­ars með því að taka Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði og fleira þess háttar. Leita síðar leiða til að koma til móts við þá með skatta­legum hætti eins og til dæmis hefur verið gert í bóka­út­gáfu.“

Áhyggjulaus yfir áhrifum hagsmunaaðila á fjölmiðla

Nú liggur til dæmis alveg fyrir að vel stæðir og auð­ugir hags­muna­að­ilar hafa lagt millj­arða króna í einka­rekna fjöl­miðla á síð­ustu árum, sem mætti horfa á sem nið­ur­greiðslur af ein­hverju tagi. Hefurðu engar áhyggjur af því að hags­muna­að­ilar hafi áhrif á þjóð­fé­lags­um­ræð­una þannig? 

„Ég held að ég, ég held að alls staðar í öllum vest­rænum ríkjum þá eru eig­endur fjöl­miðla af ýmsu tagi og ég held að það sé í sjálfu sér ekki ástæða til að hafa áhyggjur af því hér á landi frekar en ann­ars staðar.“ 

En þú hafðir áhyggjur af stjórn­mála­flokk­unum? 

„Ég reyndar sat hjá þegar þessi lög voru sam­þykkt á sínum tíma af því mér fannst þetta vera svona svo­lítið ómark­viss nið­ur­staða.“

„Ég gæti alveg hugsað mér að það væri með ein­hverjum hætti rýmkað fyrir styrki frá fyr­ir­tækjum“

Þannig að þú gætir stutt að aft­ur­kalla ...

„Já, já, ég gæti alveg hugsað mér að það væri með ein­hverjum hætti rýmkað fyrir styrki frá fyr­ir­tækjum en hins vegar er grund­vall­ar­at­riði í sam­bandi við styrki til stjórn­mála­starf­semi að það sé gagn­sætt. Það var auð­vitað líka breyt­ing sem átti sér stað þarna 2006, 2007. Það var gerð krafa um að meg­in­drætt­irnir í bók­haldi stjórn­mála­flokka, þar á meðal um styrki, að það væri gert opin­bert. Það finnst mér í raun og veru miklu mik­il­væg­ara heldur en að setja ein­hver fjár­hæð­ar­mörk eða eitt­hvað þess háttar. Að fólk viti hverjir eru að styrkja flokk­ana.“

Útgjöldin fjármagnist með hagvexti 

Tölum aðeins um stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Aug­ljós­lega hefur flokk­ur­inn verið meg­in­val­kostur fólks sem hefur þá skoðun að ríkið ætti að vera með minni umsvif og skattar ættu að vera lágir, enda er flokk­ur­inn að mæl­ast með 24-25 pró­sent fylgi, tvö­falt meira en næstu flokkar, yfir­leitt. En í stefnu­skránni er til­tölu­lega opið hvernig eigi að útfæra þetta. Í nafni gagn­sæis, hvers vegna birtið þið ekki hvernig þið ætlið að gera þetta og hvað eigi að skera niður á móti í kostn­aði?  

„Þetta eru kannski tvær spurn­ingar. Fyrri spurn­ingin er sú: hvers vegna erum við ekki með útfærðar til­lögur að þessu leyti? Við höfum lagt áherslu á það að meg­in­stefnan hjá okkur í þessum efnum er skýr. Við stefnum að því að lækka tekju­skatt ein­stak­linga. Við stefnum að því að lækka trygg­inga­gjald. Við höfum náð ákveðnum árangri í því og við viljum halda því áfram. Þá kemur að hinni spurn­ing­unni, og hún snýst um það að það er ekki endi­lega þannig að það þurfi að skera niður á móti. Við nátt­úr­lega byggjum okkar stefnu á því að hér verði áfram hag­vöxtur, að hér verði öfl­ugt atvinnu­líf sem stendur undir skatt­tekjum til rík­is­sjóðs þannig að við auð­vitað leggjum höf­uð­á­herslu á það að stækka kök­una. Jafnvel þó að kakan stækki er ekki þar með sagt að hið opin­bera þurfi að stækka sem því svarar.“ 

Núningur vegna heilbrigðismála

Þið ætlið að lækka skatta en þið eruð líka að lofa ýmsum útgjöldum sem eru ekki útfærð. Nú mætti grípa inn í heil­brigð­is­stefn­una ykkar þar sem segir: „Langir biðlistar og tvö­falt heil­brigð­is­kerfi eru þjóð­ar­skömm í vel­ferð­ar­sam­fé­lagi.“ Þið hafið nátt­úr­lega verið við völd í átta ár, eini flokk­ur­inn sem hefur verið sam­fellt við völd allan þennan tíma. Þið hafið verið með fjár­mála­ráðu­neytið nán­ast allan tím­ann. Hvernig stendur á því að þið hafið ekki náð að vinna á þess­ari þjóð­ar­skömm?

„Á sviði heil­brigð­is­mála hafa verið nún­ings­fletir innan þessa stjórn­ar­sam­starfs“

„Við höfum sagt sem svo og alveg við­ur­kennt það að á sviði heil­brigð­is­mála hafa verið nún­ings­fletir innan þessa stjórn­ar­sam­starfs. Við skulum orða það þannig, til að vera sann­gjörn í allra garð, að menn hafi ekki komið sér saman um aðferð­ina. Í okkar huga er það þannig að hið opin­bera hlýtur áfram að verða – og við höfum ekki hug­myndir um annað – en að hið opin­bera verði áfram leið­andi í því að reka heil­brigð­is­þjón­ustu. Við sjáum ekki fyrir okkur annað heldur en að það sé þörf á að efla Land­spít­al­ann og styrkja þá starf­semi sem þar er. Heilsu­gæslan er að stórum hluta og verður áfram í opin­berum rekstri. Við höfum hins vegar sagt: Við þurfum að vera með opin augun fyrir öðrum rekstr­ar­formum og þar þurfum við fyrst og fremst að hugsa um það hvernig við getum tryggt sem besta þjón­ustu við sjúk­ling­ana eða þá sem þurfa á heil­brigð­is­þjón­ustu að halda og ef það er hægt að gera það með samn­ingum við einka­að­ila um að fram­kvæma aðgerðir eða að sinna til­teknum þáttum þjón­ust­unnar, þá erum við fylgj­andi því.“ 

Nú hafa verið tak­mark­anir á frelsi fólks vegna bágrar stöðu heil­brigð­is­kerf­is­ins, alla­vega þannig að Land­spít­al­inn hefur ekki náð að sinna verk­efnum sínum. Hvernig mynduð þið leysa þetta ef þið fengjuð fullt umboð til? 

„Ef við fengjum fullt umboð þá sé ég fyrir mér að við myndum reyna að efla fyrst og fremst Land­spít­al­ann.“

Með meira fjár­magni?

„Já, við höfum aldrei hafnað því að það verði þörf á meira fjár­magni.“

En hefur ein­hver staðið í vegi fyrir því?

„Nei, nei. En það sem við höfum hins vegar sagt er að við þurfum um leið að horfa á það hvernig fjár­magnið er nýtt. Við þurfum að sjá það að þeir auknu pen­ingar, sem er verið að setja í heil­brigð­is­kerfið, að þeir nýt­ist til að ná raun­veru­legum árangri.“ 

Þið hafið gagn­rýnt að það sé ekki næg skil­virkni í kerf­inu. 

„Ekki bara við. Utan­að­kom­andi ráð­gjafar sem hafa verið að fara yfir þetta, tala um að það mætti auka fram­leiðni og annað þess háttar. Við sjáum líka að það eru svona ákveðnar stíflur í kerf­inu sem gera það að verkum að við erum hugs­an­lega að spara eyr­inn en kasta krón­unni í ein­hverjum til­vikum, eins og það þegar eldra fólk sem er búið að missa heils­una, liggur í sjúkra­hús­rúmum en ætti í raun og veru frekar að fara á hjúkr­un­ar­heim­ili. Það eru alls konar þættir í þessu sam­bandi sem þarf líka að skoða, sam­spil milli mis­mun­andi kerfa og sam­spil milli mis­mun­andi stofn­ana sem vinna á þessu sviði. Það hafa auð­vitað verið aukin mjög veru­lega fram­lög til heil­brigð­is­mála á þessu kjör­tíma­bili. Það birt­ist í því að að laun heil­brigð­is­starfs­manna hafa hækkað veru­lega. Það birt­ist í því að við erum að ráð­ast í stærstu fram­kvæmd á sviði heil­brigð­is­mála, upp­bygg­ingar heil­brigð­is­mála, með bygg­ingu nýs með­ferð­ar­kjarna og ann­arra bygg­inga og háskóla á Land­spít­ala­svæð­inu. En það hafa líka verið aukin fram­lög umfram það. Heil­brigð­is­málin eru annar stærsti útgjalda­liður rík­is­sjóðs á eftir bóta­kerf­inu, eða til­færslum í almanna­trygg­inga­kerf­inu, og það er auð­vitað þannig að þörfin er þar, hún er ekk­ert að minnka, hún eykst, fólk lifir lengur og það þarf dýr­ari lyf þar, ný tæki og þess háttar.“

Höfum ekki staðið okkur nægilega vel

Ef við tökum bara stöð­una núna. Þá hafið þið verið við völd í átta ár. Og starfs­menn tala um að spít­al­inn sé eins og ham­fara­svæði, þeir eru að hrekj­ast úr starfi, glíma við kulnun. Þið talið um þjóð­ar­skömm. Finnst þér þið hafa staðið ykkur nægi­lega vel í þessum mála­flokki?

„Nei, við höfum alveg örugg­lega ekki staðið okkur nægi­lega vel. Það má alltaf gera betur. En í þess­ari umræðu má hins vegar ekki gleyma því að það hefur þó verið bætt veru­lega í fjár­muni á þessu sviði og við sjáum ekki annað fyrir okkur heldur en að það þurfi að gera áfram. Við viljum hins vegar, eins og ég sagði áðan, reyna að ganga þannig frá því að við sjáum það að við séum að nýta fjár­mun­ina með sem hag­kvæmustum hætti. Í ein­hverjum til­vikum getur það þýtt það að það verði samið við einka­að­ila um ein­hverja til­tekna þætti. Í öðrum til­vikum kann að leiða til ein­hverra kerf­is­breyt­inga eða skipu­lags­breyt­inga varð­andi verka­skipt­ingu mis­mun­andi þátta í kerf­inu.“ 

Er eitt­hvað eitt sem þú myndir vilja breyta núna? 

„Ég held að það sé alveg svig­rúm til að auka einka­rekstur og ég held að það sé eðli­legt að skoða mögu­leika á því. Við höfum líka, margir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnt að þjón­usta sem hefur verið hjá einka­að­ilum sé að fær­ast til rík­is­ins. Þannig að þetta er ekki bara spurn­ing um sókn heldur líka vörn hvað það varðar. Í dag eru gróft séð tutt­ugu pró­sent heil­brigð­is­starf­semi í land­inu í rekstri hjá einka­að­ilum og það eru sér­fræði­læknar, sjálfs­eign­ar­stofn­anir og ein­hver fyr­ir­tæki sem eru að starfa á þessu sviði. Við getum alveg séð fyrir okkur að það sé hægt að auka þetta að því gefnu að það skili okkur betri þjón­ustu og auk­inni hag­kvæmni.“  

Vilja vera á pari við Evrópuþjóðir í loftslagsmálum

Skiptum yfir í umhverf­is­málin, sem virð­ast vera eitt af meg­in­kosn­inga­mál­unum í ár, í það minnsta þegar maður horfir á stefnu­skrá flokk­anna. Hér hafa verið mót­mæli ungs fólks vegna lofts­lags­breyt­inga. Þið talið um að þið ætlið að „halda áfram að vera í for­ystu í lofts­lags­málum“. Ungir umhverf­is­sinnar gáfu ykkur 21 stig af 100 mögu­legum fyrir lofts­lags­stefnu ykkar, á meðan Píratar eru með 81 stig og Vinstri græn 80. Finnst þér þetta vera til marks um að þið séuð í for­ystu í þeim málum?

„Ég held að eins og á mörgum sviðum þá get­urðu fundið ein­hverja hjá öðrum flokkum sem eru til­búin að yfir­bjóða okkur í ein­hverjum efnum hvað þessa þætti varðar. Við hins vegar höfum verið að vinna ásamt öðrum flokkum í rík­is­stjórn að ákveð­inni lofts­lags­stefnu stjórn­valda sem við stöndum við og hún felur í sér að mínu mati raun­hæf mark­mið, mark­mið sem er hægt að ná. Við erum að tala um að halda okkur á pari við Evr­ópu­þjóðir hvað varðar losun fyrir ann­ars vegar 2030 og hins vegar 2050. Þannig að við teljum okkur standa vel að vígi að þessu leyti, sér­stak­lega þegar horft er til þess að í alþjóð­legum sam­an­burði verðum við að horfa til þess að stærstu los­un­ar­vanda­málin í nágranna­lönd­unum eru mál sem leyst­ust fyrir ára­tugum hér vegna nýt­ingar á umhverf­is­vænni orku. Þegar við erum að tala við kollega okkar, hvort sem er hérna, hvort sem er í Evrópu eða ann­ars staðar, þá kemur alltaf þetta upp. Stóra málið er að hætta notkun kola. Stóra málið er að koma raf­orku­fram­leiðslu í umhverf­is­vænan eða grænan far­veg og þá horfa menn til okkar og segja: Hvernig getum við lært af ykkur í þessum efnum? Án þess að ég vilji nokkuð slaka á metn­að­ar­stig­inu út af þessu er þetta samt sem áður ákveð­inn veru­leiki sem við verðum að horfa til.“

Tækni og meðvitund neytenda hjálpa í loftslagsmálum

Lofts­lags­stefnan hjá ykkur, eins og reyndar mörgum öðrum flokkum, er örlítið loft­kennd. Það er ekki skýrt hvað þið ætlið raun­veru­lega að gera. En þið talið sér­stak­lega um að þið viljið ekki skatt­leggja ykkur frá vand­anum. Þið viljið nota hvata. Ef við tökum eitt atriði úr stefnu­skránni ykkar: „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill að Ísland stígi skrefið til fulls, sé leið­andi í orku­skiptum á heims­vísu, með metn­að­ar­fullum aðgerðum, og verði fyrst þjóða óháð jarð­efna­elds­neyti.“  En hvernig nákvæm­lega ætlið þið að gera þetta án þess að beita boðum eða bönnum eða skatt­lagn­ingu?

„Það sem við höfum séð ger­ast bara fyrir örfáum árum er alveg gríð­ar­leg breyt­ing til dæmis bara varð­andi bíla­flot­ann. Ég held að við getum haldið áfram á sömu braut. Hins vegar er bæði tæknin að hjálpa okkur og með­vit­und neyt­enda. Ég heyri af því að í flug­inu eru menn á fullu að hanna raf­magns­flug­vélar og við vitum ekki hvenær þær verða yfir­gnæf­andi.“ 

En hvað er það sem þið ætlið að gera?

„Við ætlum að ýta undir nýsköpun á þessu sviði. Við höfum verið að beita alls konar skatta­legu hag­ræði til þess að það væri auð­veld­ara fyrir fyr­ir­tæki að fjár­festa í nýrri tækni á þessu sviði.“ 

Eruð þið sam­þykk því að banna dísel­bif­reiðar á ein­hverjum tíma­punkti, eins og hefur verið talað um? 

„Það er nátt­úr­lega verið að tala um og í raun og veru búið að lög­festa það að bílar sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti verða ekki fluttar inn hérna eftir 2030. Við tókum þátt í því að sam­þykkja lög­gjöf þó að það væru vissu­lega skiptar skoð­anir í okkar röðum um það hvort þetta væri eitt­hvað sem við ættum að gera með þessum hætti, hvort við ættum að beita bann­inu eða hvort við ættum að ýta frekar undir þá þróun sem raun­veru­lega á sér stað í því að raf­magns­bílar, fyrst tvinn­bílar en nú full­komnir raf­magns­bílar, eru að taka við af bílum sem eru knúnir með jarð­efna­elds­neyti.“

Enga meiri skatta á stóriðjuna

Nú eru sam­göng­urnar einn hluti af útblæstri Íslands. Og svo komum við að stór­iðj­unni, sem er nátt­úr­lega veru­legur hluti. Hvað eruð þið til­búin að gera gagn­vart stór­iðj­unni?

„Stór­iðjan hefur auð­vitað verið í sér­stöku kerfi, þessu lofts­lagskvóta­kerfi og við sjáum ekki fyrir okkur að það verði neinar rót­tækar breyt­ingar hvað það varðar.“ 

Þið viljið ekki setja henni neinar hömlur eða skatt­lagn­ingu?

„Ekki neitt umfram það. En ég held hins vegar líka að maður verði að horfa á það að jafn­vel í stór­iðj­unni þá eru tækni­fram­farir að valda því að útblástur er að minnka. Sama á við um mörg önnur svið, að tækni­þró­unin er að gefa okkur tæki til að draga úr þessu með með árang­urs­ríkum hætti.“

Þegar við tölum um græna skatta, eru ein­hverjir skattar sem þið eruð til­búin til að hækka til að leiða til þess að hvatar til að menga verði minni?

„Við höfum auð­vitað í dag skatta sem bíta í sam­bandi við elds­neyti. Við höfum ekki talað fyrir því að hækka þá en þeir eru býsna háir. Við erum með  hæstu elds­neyt­is­sköttum í Evrópu. Menn gleyma því stundum í þess­ari umræðu. Við erum þegar í raun og veru, þó að til­gang­ur­inn hafi kannski verið annar í upp­hafi, þá erum við í raun og veru að gera jarð­efna­elds­neyti dýr­ara með mik­illi skatt­heimtu. Síðan nátt­úr­lega eru aðrir þættir. Ég meina, við sjáum að í greinum eins og land­bún­aði eru menn líka að skoða mögu­leika á því hvernig er hægt að draga úr útblæstri. Við sjáum fyrir okkur að þar geti náðst tölu­verður árangur. En síðan er þetta spurn­ing líka um mót­væg­is­að­gerðir og þar eru Íslend­ingar að prófa sig áfram með nýja tækni sem getur skilað ein­hverju, bara eins og er verið að gera hérna í Carbfix uppi á Hell­is­heiði, að binda koltví­sýr­ing, og síðan eru auð­vitað – og það er auð­vitað umdeilt mál gagn­vart land­bún­að­inum – það að fylla í skurði hjálpar okkur í þessu sam­bandi. Það að end­ur­heimta vot­lendi, eins ogg við tölum um. Það skiptir máli. Skógrækt skiptir líka máli. Við höfum verið jákvæðir gagn­vart því að ýta undir skóg­rækt, meðal ann­ars til að vega upp á móti kolefn­is­spor­inu.“

Ný rör fara í taugarnar

Ef við tökum stefnu ykkar gagn­vart plast­mengun, þá segið þið: „Ráðast þarf í mark­vissar aðgerðir til að draga úr plast­mengun á landi sem og í sjó, án boða og banna. Hvatar til breyttrar umgengni um plast eru hvað áhrifa­rík­astir.“ Nú er búið að banna plast­rör og svo fram­vegis ...  

„Já, já. Það fer í taug­arnar á mér í ljósi per­sónu­legrar reynslu. Mér finnst hin rörin mjög léleg og ómögu­leg. En nei, nei. Við erum að segja að það þurfi að leita leiða til þess að gera þetta.“ 

Yfir­leitt eru hvatar skattar. 

„Já, það er stundum hægt að nota gul­rót líka. Það þarf ekki bara að nota vönd­inn. Bæði fram­leið­endur hér og ann­ars staðar eru líka að breyta sinni fram­leiðslu til að koma til móts við sjón­ar­mið að þessu leyti. Það er auð­veld­ara í dag að fá bara almennar neyt­enda­vörur í öðrum umbúðum heldur en plasti. Þó að plastið sé enn þá mjög mikið. Hins vegar er stóri ávinn­ing­ur­inn kannski sá, ef það er hægt að skoða hvað er að ger­ast í atvinnu­líf­inu. Það er mjög mikið af plasti sem kemur í sjó­inn frá sjáv­ar­út­vegi, plast­mengun í sjó, reyndar auð­vitað alþjóð­legt vanda­mál og höfin eru alþjóð­leg, þannig að við leysum kannski ekki allt en við getum lagt okkar af mörkum.“ 

Þið viljð ekki boð og bönn, en viljið jákvæða hvata, en kannski erfitt að festa fingur á það hverjir þeir hvatar eru, nema stefnan sé meira útfærð. Þið talið líka um að smá­salar, fram­leið­endur og neyt­endur geti minnkað mat­ar­sóun um helm­ing á næstu tíu árum með jákvæðum hvötum. Geturðu útskýrt hvernig það myndi eiga sér stað, hvernig þeir hvatar myndu mynd­ast?

„Er það ekki bara að klára af disk­inum? Nei, án þess að ég þekki það nákvæm­lega hvernig menn vinna í því. Það þekkja það allir í sínu heim­il­is­haldi hvað mikið af mat endar í rusl­inu þannig að það er auð­vitað æski­legt að reyna að draga úr því sem allra, allra mest.“  

Fyrsta tilboð að Bjarni verði forsætisráðherra

Þið hafið verið í rík­is­stjórn með Vinstri grænum sem er sá flokkur sem hefur mest gert út á umhverf­is­málin og margar þessar breyt­ingar sem þú nefnir eru af þeirra hvötum. Þið hafið gefið eftir í ein­hverjum málum til þess að leyfa fram­gang slíkra mála. En ef við förum í ástand stjórn­mál­anna akkúrat núna: Þið eruð að mæl­ast með 24 til 25 pró­sent fylgi nokkuð stöðugt á meðan sam­starfs­flokk­ur­inn, sem var með 17 pró­sent í kosn­ing­unum síð­ast, hefur verið að mæl­ast allt niður í 10 pró­sent. Finnst þér sann­gjarnt ef kosn­ing­arnar færu svona að Katrín Jak­obs­dóttir verði áfram for­sæt­is­ráð­herra, með ykkar flokk tvö­falt stærri? 

„Okkar fyrsta til­boð er auð­vitað alltaf að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé for­sæt­is­ráð­herra.“

„Við auð­vitað myndum alltaf segja: Okkar fyrsta til­boð er auð­vitað alltaf að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé for­sæt­is­ráð­herra. Það er auð­vitað okkar fyrsta útspil. Hins vegar þá höfum við ekki úti­lokað að taka þátt í þessu stjórn­ar­sam­starfi undir for­ystu Katrínar og við myndum aldrei úti­loka aðra slíka mögu­leika. Við þurfum hins vegar bara að vera raunsæ þegar það er talið upp úr kjör­köss­unum, hvers konar stjórn­ar­form er raun­hæft, hvaða flokkar geta unnið saman og hvaða flokkar eru lík­legir til þess að geta unnið saman að þeim málum sem við leggjum mesta áherslu.“ 

Nú er rík­is­stjórnin með 55% stuðn­ing* í síð­ustu könnun Gallup. En flokk­arnir sem mynda rík­is­stjórn­ina ná ekki meiri­hluta lengur sam­kvæmt þeim könn­unum. Kæmi að þínu leyti ekki mest til greina að fá Viðreisn inn í stjórn­ar­sam­starfið, eða eitt­hvað slíkt?

*Rík­is­stjórnin mæld­ist síðar með 57% stuðn­ing í nýrri könnun Gallup

„Ég vil ekki fara í þann sam­kvæm­is­leik. Við hljótum bara að meta það eftir kosn­ingar.“  

Hver er mun­ur­inn á ykkur og Viðreisn að þínu viti?

„Grund­vall­ar­mun­ur­inn og grund­vallará­grein­ing­ur­inn liggur kannski á sviði Evr­ópu­mála. Mér finnst þau ekki vera á dag­skrá. Viðreisn og Sam­fylk­ing eru að reyna að taka þessi mál á dag­skrá. Þessi ágrein­ingur stóð ekki í vegi fyrir því að þessir flokkar gætu tekið saman um að mynda rík­is­stjórn 2016. Það er ekk­ert úti­lokað í því. Við auð­vitað hljótum að meta stöð­una út frá því hvaða flokkar hafa ann­ars vegar mögu­leika út frá frá þing­styrk til að vinna saman og svo hins vegar mögu­leika á að ná saman mál­efna­lega. Ég dreg ekk­ert úr því að það er flókið mál þegar svona margir flokkar eru á vell­inum.“

„Þessi ágrein­ingur stóð ekki í vegi fyrir því að þessir flokkar gætu tekið saman um að mynda rík­is­stjórn 2016“

Nú vill hvorki Sam­fylk­ingin né Píratar mynda rík­is­stjórn með ykkur, sér­stak­lega. Þau hafa bara gefið það út að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hann komi ekki til greina í rík­is­stjórn. 

„Og Sós­í­alista­flokk­ur­inn er á sömu línu líka.“

Já, það kemur kannski ekki á óvart ... Hvers vegna held­urðu að það sé? 

„Ég held að þessir flokkar skil­greini sig svo­lítið út frá því að vera á móti okkur, það sé kannski grund­vallar ... Þeir hafa kannski rétti­lega metið það þannig að sá kjós­enda­hópur sem þeir eru helst að reyna að höfða til stendur til­tölu­lega langt frá Sjálf­stæð­is­flokknum mál­efna­lega, þannig að þeir eru auð­vitað að reyna að höfða til ein­hverra kjós­enda með þessu.“ 

„Þeir verða að svara fyrir það af hverju þeir vilja ekki vinna með okkur.“

Þetta eru umhverf­is­vernd­ar­sinn­aðir flokkar. Þeir vilja hækka frí­tekju­mark öryrkja og eldri borg­ara eins og þið. 

„Þeir verða að svara fyrir það af hverju þeir vilja ekki vinna með okkur. Ég ætla ekk­ert að fara að taka það neitt per­sónu­lega. En ég hins vegar segi bara sem svo: Ef ein­hver vill ekki vinna með þér þá er það bara þannig. Þú spilar þá úr þeim spilum sem þú hefur á hendi. En ég held hins vegar að allir sem í raun og veru sko eru sæmi­lega raun­sæir átti sig á því að ef það eru segjum níu flokkar, átta eða níu flokkar sem eiga full­trúa á þingi, þá auð­vitað er býsna flókið að raða saman brot­unum. Frá mínum bæj­ar­dyrum séð þá verða menn að vera til­búnir að skoða alla mögu­leika.“ 

Sam­fylk­ingin og Píratar hafa gagn­rýnt ykkur fyrir ýmis­legt og við komumst ekki yfir öll deilu­málin, en ef við tökum sem dæmi að dóms­mála­ráð­herr­ann ykkar var tal­inn hafa brotið lög, stjórn­sýslu­lög, við skipan dóm­ara. Hún sagði ekki af sér nógu fljótt af þeirra mati, hún var aftur valin dóms­mála­ráð­herra eftir þessar ákvarð­anir. Fannst þér hún hafa átt að segja af sér fyrr, hefði það gert eitt­hvað til að koma á móts við hina flokk­ana? 

„Nei, ég held það hafi ekki verið til­efni til þess og ég veit ekki hvort þetta mál sem slíkt var neinn úrslita­þáttur þegar við horfum til sam­starfs okkar, mögu­legs sam­starfs við Pírata eða Sam­fylk­ingu. Ég held að það sé ekki.“ 

Þykir gagnrýni á Kristján Þór óréttmæt

En það hafa komið upp álita­mál varð­andi ekki bara stefnu­mál heldur hags­muna­á­rekstra, sið­ferð­is­spurs­mál og svo fram eftir göt­unum. Sem annað dæmi: Langóvin­sæl­asti ráð­herr­ann í rík­is­stjórn­inni er Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Nú hafa margir gagn­rýnt að hann hafi ekki hrein­lega sagt af sér vegna þess að hann er með tengsl við eitt­hvert stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, Samherja, sem er til rann­sóknar vegna mútu­greiðslna. Hann hitti þessa meintu mútu­þega á fundi, án þess að efni fundar hafi átt að vera eitt­hvað slíkt. Hann hringdi í for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, sem er góður vinur hans, og spurði hann um líðan hans eftir að málið kom upp. Myndir þú, sem stjórn­mála­maður, eiga svona sím­tal, vera áfram sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra með tengsl við stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem er í þessum málum?

„Ég held að þarna verða menn bara að horfa á hvar raun­veru­lega er fyrir hendi van­hæfi. Hvar er fyrir hendi van­hæfi? Kristján Þór var ekki að taka neinar ákvarð­anir sem hafa neitt að gera með þetta mál.“ 

Þetta til­tekna mál. En aðrar ákvarð­anir varð­andi Samherja. Nánast allar ákvarð­anir hans tengj­ast Samherja.

„Já, með sama hætti og öll önnur útgerð­ar­fyr­ir­tæki í land­inu. Kristján Þór auð­vitað var í stjórn Samherja og for­maður stjórnar fyrir alda­mót og tengsl hans eða kunn­ings­skapur við Þorstein Má Bald­vins­son hefur auð­vitað legið lengi fyrir.“ 

En þetta hefur valdið tölu­verðu van­trausti á honum. Þér finnst hann ekki hafa átt að bregð­ast við van­traustinu sem slíku eða finnst þér van­traustið órétt­mætt?

„Mér finnst hann í raun og veru hafa sætt mjög órétt­mætri gagn­rýni út frá þessu vegna þess að það sem er verið að gagn­rýna hefur ekki með nokkrum hætti tengsl við neinar ákvarð­anir sem hann hefur verið að taka á neinu stigi. Hann komst aldrei í þá stöðu að þurfa að taka afstöðu eða ákvörðun um eitt eða neitt sem snertir þessi mál. Og ekki gagn­vart Samherja umfram önnur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í land­inu.“ 

Enginn ásetningur í Ásmundarsal

Nú eru nokkur önnur mál sem stjórn­ar­and­staðan og fleiri hafa rætt sér­stak­lega um varð­andi ráð­herrana. Ef ég nefni bara þrjú: Að dóms­mála­ráð­herr­ann fær far með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar í ákveðið einka­er­indi. Ferða­mála­ráð­herr­ann er á myndum í ákveðnu partístandi á sama tíma og almenn­ingur er beð­inn að halda fjar­lægð og vera ekki í slíkum aðstæðum. Og Bjarni for­maður var við­staddur það sem hefur verið flokkað sem sölu­sýn­ing á lista­verkum og þar sem tölu­verð áfeng­is­neysla var við hönd, á sama tíma og almenn­ingur átti ekki að við­hafa slíka hegðun. Heldurðu að þessi umræða um sið­ferð­is­mál eða gild­is­mat hafi nei­kvæð áhrif á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sam­starfsvilja ann­arra flokka með honum? 

„Ég veit ekk­ert um sam­starfsvilja en nei­kvæð umræða auð­vitað er alltaf nei­kvæð. Það segir sig sjálft. Þórdís Kolbrún baðst afsök­unar á þessum mis­tökum sínum og sama gerði Bjarni. Ég held að allir geti sett sig í þau spor að þú getur lent í svona aðstæðum, að þetta ger­ist óvart og það er ekki ein­hver ein­beittur brota­vilji þar á bak við.“ 

„Ég held að allir geti sett sig í þau spor að þú getur lent í svona aðstæðum, að þetta ger­ist á óvart“

En er hægt að tala um að lenda í ein­hvers konar partístandi? Kemurðu þér ekki í það? 

„Þú kemur á sölu­sýn­ingu og það er fullt af fólki í hús­inu. Það var opið þarna og það var ekki neinn ásetn­ingur til þess að fara í nein brot þarna.“ 

Myndirðu segja að það séu gerðar of miklar kröfur til fram­komu ráð­herr­anna eða ertu bara sam­mála þess­ari gagn­rýni?

„Ég held að í svona til­vikum þá verður bara hver að setja sig í þessi spor. Ég meina, það geta allir lent í þessu. Katrín Jak­obs­dóttir var inni á ein­hverjum fót­bolta­leik um dag­inn, grímu­laus þar sem var ein­hver grímu­skylda, þið vitið. Það er bara þannig að í þessu umhverfi þá geta menn mis­stigið sig og þegar menn biðj­ast afsök­unar er mál­inu að mínu mati lokið.“

Vill selja meira í Íslandsbanka

Ef við förum yfir í efna­hags­málin. Eitt kjarna­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins er að ríkið eigi ekki að vera í sam­keppn­is­rekstri. Núna í sumar kláruðuð þið að selja eða bjóða út 35% hlut í Íslands­banka. Daginn sem við­skipti hófust hækk­aði gengi bréf­anna um 20%. Fannst ykkur þetta raun­veru­lega vera vel heppnuð aðgerð að því leyt­inu til, fékk rík­is­sjóður og sam­eig­in­legur sjóður almenn­ings, fullt og besta verð fyrir eign­ina sína?

„Það að setja eign­ina með þessum hætti í sölu var nátt­úr­lega til þess að reyna að kalla fram eitt­hvert verð. Reyna að átta sig á því hvert verðið væri. Það voru meðal ann­ars notuð sem rök fyrir því að taka tak­mark­aðan hluta og selja í einu að það væri rétt að byrja með þessum hætti til að sjá hvaða gang­verð væri á þessu. Það var auð­vitað búið að fara í gegnum mat hjá fjölda­mörgum óháðum aðilum hvað væri rétt að setja sem við­miðun í þessu sam­bandi. Það eru ein­hverjar vænt­ingar sem þetta sýnir. Þetta er nátt­úr­lega bara eins og spurn­ingin um það, ef þú selur íbúð­ina þína, þú getur metið það að þú sért að fá hæsta mögu­lega verð á ein­hverjum tíma­punkti. Svo sérðu eftir mánuð að íbúðir hafa hækkað enn meira í verði.“ 

Þú myndir svekkja þig ef hún myndi koma aftur á sölu 20 pró­sent hærri. En þið ætlið að halda áfram sölu á hlutum í bönk­unum og með sama hætti, þið teljið þetta vel heppnað svona.  

„Já, já. Við teljum að þetta útboð hafi verið vel heppnað. Það var mikil eft­ir­spurn eftir bréf­unum og það voru líf­leg við­skipti með þetta og ég held að það sé jákvætt. Ég held líka að það sé jákvætt að halda áfram sölu á hlutum í Íslands­banka. Ég held að Lands­bank­inn, sem er seinni tíma mál og það er umdeild­ara, líka, póli­tískt.“ 

Óttast bólu á fasteignamarkaði

En þessi gríð­ar­lega hækkun hluta­bréfa á Íslandi sem kemur í kjöl­farið á vaxta­lækkun Seðla­bank­ans? Afleið­ing vaxta­lækk­un­ar­innar er að inn­láns­reikn­ingar eru ófýsi­legri og hvað þá skulda­bréf og svo fram­vegis. Peningar fær­ast yfir í hluta­bréfin. Hefurðu engar áhyggjur af bólu­myndun í hluta­bréfa­við­skiptum á Íslandi? 

„Ég held að það sé auð­vitað alltaf ákveðin hætta á bólu­myndun á öllum eigna­mörk­uðum, hvort sem er í hluta­bréfa­við­skiptum eða þess vegna á fast­eigna­mark­aðnum. Í raun og veru  hef ég kannski meiri áhyggjur í dag af bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum, bara ef við horfum á þró­un­ina síð­ustu mán­uði. Ræturnar þar eru kannski ann­ars eðlis en ég held að það, þegar það er tak­markað fram­boð eigna sem er til sölu, það auð­vitað ýtir undir verð þegar fjár­fest­ing­ar­mögu­leikar eru tak­mark­aðir, hvort sem er í hluta­bréfum eða í fast­eignum eða hvaða eignum sem er, þá ýtir það undir verð­hækk­anir. Það er alveg ástæða til að alla­vega að hafa var­ann á hvað það varðar. Seðla­bank­inn lækk­aði vexti í umhverfi þegar við sáum fram á mjög mik­inn sam­drátt og ég hugsa að það megi segja að partur af þeirri við­leitni Seðla­bank­ans var að reyna að tryggja að það yrði áfram líf í þessum mark­aði, vegna þess að eitt af því sem við höfðum áhyggjur af í fyrra­vor, þegar við vorum byrjuð að sjá áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, var að það yrði ein­hvers konar skarpur sam­dráttur eða hrun eða hvað við köllum það.“ 

Skattalækkanir verði tímasettar rétt

Sem varð í raun ekki á þessum mörk­uðum. En núna er heil­mikið líf, óvenju­lega mikið líf á hluta­bréfa­mark­aðnum og fast­eigna­mark­aðnum. En á sama tíma boðið þið skatta­lækk­anir, sem myndu vænt­an­lega hleypa enn meira lífi í þessa mark­aði. Þið boðið að skerð­ingar á tekjum öryrkjum og eldri borg­ara verði lækk­aðar. Þannig að vænt­an­lega, ef þið fáið fullt umboð, munu tölu­verðir pen­ingar flæða inn á þessa mark­aði. Þannig að ef það er bólu­myndun mun þetta ýta undir hana enn frekar.      

„Þarna skiptir máli í hvaða tímara­mma við erum að tala um hlut­ina. Erum við að tala um næstu mán­uði eða erum við að tala um kjör­tíma­bilið? Og ég er ekki viss um að skamm­tíma­bólu­myndun á fast­eigna­mark­aði eða skamm­tíma­bólu­myndun á hluta­bréfa­mark­aði sé eitt­hvað sem verður við­var­andi. Ég held hins vegar að for­senda þess að við getum staðið við fyr­ir­heit okkar er að það verði aftur upp­gangur í atvinnu­líf­inu. Og upp­gangur í atvinnu­líf­inu, hann felur auð­vitað með ein­hverjum hætti í sér þenslu­myndun en það hins vegar skiptir máli að það sé verð­mæta­sköpun sem er raun­veru­leg en ekki bara ein­hver papp­írs­gróði.“ 

Í forgangi að búa atvinnulífinu rétt umhverfi

Ef það væri eitt­hvað eitt sem þú gætir áorkað eða breytt með þátt­töku þinni í stjórn­málum. Hvað væri það og hvernig mynd­irðu gera það?

„Þegar menn er búinn að vera lengi í póli­tík þá nátt­úr­lega hefur maður snert á ýmsum málum. Þannig að ég á bágt með að til­taka eitt­hvað eitt í þessu sam­bandi. Ég hins vegar vil fyrst og fremst leggja mitt af mörkum til að það verði hérna for­sendur til þess að getum náð efna­hagnum upp og það er eitt­hvað sem ég álít að sé for­gangs­mál fyrir okkur. Að búa atvinnu­líf­inu þannig umhverfi að það geti skapað meiri verð­mæti, skapað fleiri störf og staðið undir öllu því góða sem við viljum gera á öðrum sviðum sam­fé­lags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningastundin

Guðmundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn
FréttirKosningastundin

Guð­mundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra gengur sáttur frá borði þótt Vinstri græn hafi ekki náð mik­il­vægum mál­efnum í gegn. Helst sér hann eftir mið­há­lend­is­þjóð­garð­inum en mun halda bar­átt­unni áfram og segir lofts­lags­málin vera stærstu verk­efnin á kom­andi kjör­tíma­bili. Þar þarf að grípa til aðgerða í atvinnu­líf­inu og friða bæði hluta af landi og hafi.
Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði einhvers konar samfélagsrof“
ViðtalKosningastundin

Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði ein­hvers konar sam­fé­lags­rof“

Kristrún Frosta­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður, segir að hún hafi alltaf verið jafn­að­ar­maður í hjarta sínu þó hún hafi starfað fyrir Við­skipta­ráð og fjár­mála­fyr­ir­tæki. Hún segir að mik­il­vægt sé að efna­mikið fólk greiði meira til sam­fé­lags­ins og rök­styður stór­eigna­skatta sem rétt­læt­is­mál og góða hag­stjórn.
„Auðvaldið verður aldrei okkar samstarfsmaður“
ViðtalKosningastundin

„Auð­valdið verður aldrei okkar sam­starfs­maður“

Katrín Bald­urs­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík Suður, segir að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sé búinn að reikna út hversu miklar tekjur hann þarf til þess að standa við lof­orð sín og hvernig hann ætlar að nálg­ast slíkar tekjur en vill hins vegar ekki gefa upp hver upp­hæðin er, það væri „fárán­legt“. Hún segir Sós­í­alista­flokk­inn ætla að byggja upp sinn eigin fjöl­miðil, leggja af styrki til fjöl­miðla í gegnum rit­stjórnir og styrkja frekar blaða­menn í að fjalla um það sem flokknum finnst „þess virði“. Þá ætlar flokk­ur­inn sér einnig að setja á fót and-spill­inga­stofnun.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár