„Auðvaldið verður aldrei okkar samstarfsmaður“

Katrín Baldurs­dóttir, oddviti Sósíalista­flokksins í Reykjavík Suður, segir að Sósíalista­flokkurinn sé búinn að reikna út hversu miklar tekjur hann þarf til þess að standa við loforð sín og hvernig hann ætlar að nálgast slíkar tekjur en vill hins vegar ekki gefa upp hver upphæðin er, það væri „fáránlegt“. Hún segir Sósíalista­flokkinn ætla að byggja upp sinn eigin fjölmiðil, leggja af styrki til fjölmiðla í gegnum ritstjórnir og styrkja frekar blaðamenn í að fjalla um það sem flokknum finnst „þess virði“. Þá ætlar flokkurinn sér einnig að setja á fót and-spillinga­stofnun.

Katrín Baldurs­dóttir, oddviti Sósíalista­flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi Suður, segir fylgi Sósíalista­flokksins gefa til kynna að kjósendur séu að kalla eftir sósíalisma. Sömuleiðis segir hún að ef Sjálfstæðis­flokkurinn og „nýfrjálshyggju hægri flokkarnir komist að“ muni þeir boða niður­skurð. Að hennar mati telst Sjálfstæðis­flokkurinn til „auðvaldsins“ og raunar Miðflokkurinn og Viðreisn líka. Af þeim sökum útilokar Sósíalista­flokkurinn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með þeim flokkum. 

„Auðvaldið verður aldrei okkar samstarfs­maður,“ segir Katrín í viðtali í Kosninga­stundinni. 

Sósíalisminn kæfður í kalda stríðinu

Að sögn Katrínar hefur sósíalismi ekki verið upp á borðum í nútíma stjórn­málum vegna þess að hann hafði verið „kæfður í kalda stríðinu“. „Hann var bara kæfður í kalda stríðinu. Það var bara út af þessum kalda stríðs árum þegar menn litu á austrið sem algjöran fjandmann... allt í einu mátti ekki segja orðið sósíalismi.“

Að mati Katrín og flokks­manna hennar tilheyra allir þeir flokkar sem nú sitja á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningastundin

60:59
FréttirKosningastundin

Guðmundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis­ráðherra gengur sáttur frá borði þótt Vinstri græn hafi ekki náð mikil­vægum málefnum í gegn. Helst sér hann eftir miðhálendis­þjóð­garðinum en mun halda barátt­unni áfram og segir loftslags­málin vera stærstu verkefnin á komandi kjör­tímabili. Þar þarf að grípa til aðgerða í atvinnu­lífinu og friða bæði hluta af landi og hafi.

27 mín. lestur

47:40
ViðtalKosningastundin

Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði einhvers konar samfélagsrof“

Kristrún Frosta­dóttir, oddviti Samfylk­ing­ar­innar í Reykjavík suður, segir að hún hafi alltaf verið jafnaðar­maður í hjarta sínu þó hún hafi starfað fyrir Viðskiptaráð og fjármála­fyrirtæki. Hún segir að mikilvægt sé að efnamikið fólk greiði meira til samfélagsins og rökstyður stór­eignaskatta sem réttlætismál og góða hagstjórn.

15 mín. lestur

49:02
FréttirKosningastundin

Bjarni Benediktsson sem forsætis­ráðherra er fyrsta tilboð Sjálfstæðis­flokksins

Birgir Ármansson, þing­flokks­formaður Sjálfstæðis­flokksins, svarar fyrir stefnu og feril flokksins í Kosninga­stundinni. Hann ver ráðherra flokksins, heitir áherslu á skatta­lækkanir og segir kosninga­loforðin fjár­magnast með hagvexti. Flokkurinn mun gera upphaf­lega kröfu um að formaðurinn Bjarni Benediktsson verði forsætis­ráðherra í stjórnar­myndunar­viðræðum.

31 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár