Þjófagengi í Vesturbænum athafnar sig á myndbandi

Íbúar á Granda­vegi 42 leita að upp­lýs­ingum um þjófa sem athöfn­uðu sig í mak­ind­unum í bíla­kjall­ara.

Innbrotsþjófar á Grandavegi Myndbandið er frá íbúum á Grandavegi 42 og er birt í Facebook-hópi Vesturbæjar.

Íbúar í nýlegum fjöl­býl­is­húsum á Granda­vegi 42 leita að upp­lýs­ingum um þjófa­gengi sem lét til skarar skríða í bíla­kjall­ara húss­ins. 

Granda­vegur 42Þjófarnir fóru um kjall­ara fjöl­býlis við Granda­veg 42 sem hér sést við sjáv­ar­síð­una.

Gengið, sem telur tvo karl­menn og eina konu, sést á mynd­bandi athafna sig í mak­indum sínum. Fólkið braut rúður í bif­reiðum og er meðal ann­ars sakað um að hafa stolið Macbook Pro far­tölvu, Louis Vuitton tösku og meiru frá fleiri en einum íbúa.

„Brotið var að sjálf­sögðu kært til lög­reglu og við höfum verið í dag­legum sam­skiptum við hana. Ég bið ykkur um að hafa augun opin fyrir þessum ein­stak­lingum og einnig þeim munum sem var stolið inná helstu sölu­síðum,“ segir íbúi í blokk­inni í Facebook-hópi Vest­ur­bæjar þar sem mynd­band­inu er dreift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár