Stefnir í harða baráttu norskra um eignarhaldið á Arctic Fish á Ísafirði

Tvö norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki berj­ast nú um yfir­ráðin yfir Norway Royal Salmon, móð­ur­fé­lagi Arctic Fish á Ísafirði. Móð­ur­fé­lag Arnarlax á Bíldudal, Salmar, er með pálmann í hönd­unum eftir að stjórn Norway Royal Salmon mælti með þeirra til­boði í dag. Til gæti orðið langstærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki lands­ins með sam­ein­ingu Arnarlax og Arctic Fish.

Stefnir í harða baráttu norskra um   eignarhaldið á Arctic Fish á Ísafirði
Berjast um Norway Royal Salmon Þeir Gustav Witzoe og Helge Gaso berj­ast nú um yfir­ráðin yfir Norway Royal Salmon. Mynd: Samsett

Stjórn norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Norway Royal Salmon (NRS), móð­ur­fé­lags íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish á Ísafirði, telur að til­boð norska lax­eld­is­ris­ans Salmar AS í félagið sé betra en til­boð norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins NTS. Bæði félögin hafa boðið í Norway Royal Salmon, NTS bauð 240 norskar krónur á hlut í félagið ánn 11. ágúst síð­ast­lið­inn en Salmar yfir­bauð svo NTS um 30 krónur norskar og bauð 270 hlut í síð­ustu viku. Mat stjórn­ar­innar hjá Norway Royal Salmon kemur fram í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­innar. 

Eins og Stundin greindi frá í síð­ustu viku lagði Salmar fram til­boð upp á 166 millj­arða króna, 11,8 millj­arða norskra króna, í Norway Royal Salmon í síð­ustu viku. 

Mikilvægi Íslands

Salmar er meiri­hluta­eig­andi stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tækis Íslands, Arnarlax, og er talað um það í fréttum um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár