Tekjuhæsti Kópavogsbúinn: „Hlýtur að þurfa að skattleggja auðkýfinga eins og mig meira“

Kári Stef­áns­son er skatta­kóngur Kópavogs 2020. Hann er þeirra skoð­unar að eðli­legt hefði verið að hann borg­aði að minnsta kosti 70 millj­ónum króna meira í skatta. Auka þurfi sam­neysl­una með því að sækja fé til þeirra sem mikið eiga í stað þess að skatt­leggja hina fátæku.

Tekjuhæsti Kópavogsbúinn: „Hlýtur að þurfa að skattleggja auðkýfinga eins og mig meira“
Vill skatt­leggja auð­kýf­inga en ekki fátæk­linga Kári Stef­áns­son segir eðli­legt að sæka pen­inga þangað sem þá er að hafa til að auka sam­neysl­una. Mynd: Kristinn Magnússon

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar er skatta­kóngur Kópavogs árið 2020. Kári var jafn­framt tekju­hæstur allra Kópa­vogs­búa og 13. tekju­hæsti Íslend­ing­ur­inn á síð­asta ári. Að hans mati er glóru­laust að auð­kýf­ingar eins og hann sjálfur séu ekki skatt­lagðir hærra en raun ber vitni. „Ef það reyn­ist rétt að ég hafi haft 300 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur á síð­asta ári, hvernig í ósköp­unum stendur á að ég er að borga ein­hvern 22 pró­sent skatt af því frekar en að borga af því eins og eðli­legt væri sem hvern annan tekju­skatt?“

Samkvæmt álagn­ing­ar­skrá hafði Kári 309 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur á síð­asta ári og 410 millj­ónir króna í heild­ar­tekjur yfir árið. Af því greiddi hann 112 millj­ónir króna í skatta og þar af voru 68 millj­ónir fjár­magnstekju­skattur. Hefðu fjár­magnstekjur Kára verið skatt­lagðar eins og launa­tekjur hefði hann hins vegar greitt nálægt 142 millj­ónum króna í skatt af þeim, ríf­lega tvö­falt hærri upp­hæð.

Í sam­tali við Stundina segir Kári að hans launa­tekjur hafi berið óbreyttar síð­ustu níu ár, hann hafi verið í sömu vinnu með sömu laun þann tíma.  „Fjár­magnstekj­urnar hins vegar eru ekki raun­veru­legar fjár­magnstekjur heldur geng­is­hagn­aður. Það gerð­ist þannig að um mitt síð­asta ár, þegar gengi íslensku krón­unnar var sem lægst, þá komu ein­hver erlend skulda­bréf sem ég átti á gjald­daga og ég er skatt­lagður fyrir þann geng­is­hagnað. Fyrir lok árs­ins var hins vegar gengi íslensku krón­unnar komið á svip­aðan stað og áður þannig að þessi geng­is­hagn­aður minn stóð ekki mjög lengi. Ég borga sem sagt fjár­magnstekju­skatt af geng­is­falli íslensku krón­unnar, sem mér finnst alveg sjálf­sagt.“

„Ég er ekki endi­lega viss um að það séu mjög margir í mínum hópi sem myndu hoppa upp á sápu­kassa á götu­horni og hrópa þetta“
Kári Stef­áns­son
auð­kýf­ingur

Kári er þrátt fyrir þetta alls ekki á því að Íslend­ingar ættu að taka upp annan gjald­miðil. „Ég vil endi­lega að við séum áfram með íslenska krónu, sem mér þykir vænt um. Ég held að hún sé ein af ástæð­unum fyrir að við komum betur út í hrun­inu árið 2007 en ella.“

„Ber meira úr býtum en eðlileg mætti teljast“

Aftur á móti er Kári ein­dregið þeirrar skoð­unar að skatt­leggja ætti hann sjálfan og aðra auð­kýf­inga í meira mæli en gert er. „Það er alveg ljóst af þessum skatta­tekjum að ég ber meira úr býtum heldur en eðli­legt mætti telj­ast og það er líka alveg ljóst að það væri hægt að hafa tölu­vert út úr því fyrir ríkið að leggja á mig hærri skatt.“

Spurður hvort hann myndi borga hærri skatt mögl­un­ar­laust svarar Kári: „Ég mögla yfir öllu, meira að segja því sem mér þykir sann­gjarnt. En já, mér þætti það sann­gjarnt. Við þurfum að auka sam­neyslu í íslensku sam­fé­lagi og til þess að fjár­magna hana er eðli­legt að skatt­leggja þá sem eiga mikið í stað­inn fyrir að auka sam­neysl­una með því að skatt­leggja hina fátæku. Mér þykir það alveg gjör­sam­lega sjálf­sagt og ég held að það hljóti að vera öllum ljóst. Ef þú skoðar þann gíf­ur­lega mun sem er á þeim sem eiga og þeim sem ekk­ert eiga í íslensku sam­fé­lagi þá sérðu að ef þú ætlar að ná ein­hverju til að fjár­magna betra heil­brigð­is­kerfi, betra skóla­kerfi, betra hús­næð­is­kerfi og svo fram­vegis, þá hlýtur að þurfa að skatt­leggja auð­kýf­inga eins og mig meira. Ef það reyn­ist rétt að ég hafi haft 300 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur á síð­asta ári, hvernig í ósköp­unum stendur á að ég er að borga ein­hvern 22 pró­sent skatt af því frekar en að borga af því eins og eðli­legt væri sem hvern annan tekju­skatt? Ég fæ ekki annað séð en að sá munur sé bók­staf­lega settur þar til að menn eins og ég fitni meira á prik­inu.“

Þegar Kári er spurður hvort hann telji að hann eigi sér marga skoð­ana­bræður í þessum efnum, í hópi þeirra sem hæstar tekj­urnar hafa, svarar hann því til að hann telji að þeir séu fleiri en færri í þeim hópi sem ættu erfitt með að and­mæla þessu. „Ég er ekki endi­lega viss um að það séu mjög margir í mínum hópi sem myndu hoppa upp á sápu­kassa á götu­horni og hrópa þetta en ég er alveg viss um að það er fullt af fólki í þessum hópi sem gerir sér grein fyrir nauð­syn þess að auka tekjur rík­is­ins. Þú sækir ekki fé ann­ars staðar en það er til staðar og þarna er það helst að hafa.“

Guðmundur hefði greitt tvöfalt hærri skatt hefði Kári fengið að ráða

Næstur Kára í röð­inni yfir tekju­hæstu Kópa­vogs­bú­ana er Guð­mundur Breiðdal, tölv­un­ar­fræð­ingur og einn stofn­enda DK Hug­bún­aðar. DK Hug­bún­aður var selt á síð­asta ári til hol­lenska fyr­ir­tæk­is­ins TSS og er fyrr­ver­andi eig­endur þess að finna ansi víða og hátt á tekju­lista síð­asta árs. Guð­mundur hafði 400 millj­ónir króna í tekjur á síð­asta ári. Þar af voru 386 millj­óni fjár­magnstekjur. Guð­mundur greiddi 89 millj­ónir króna í skatt, þar af 84 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt. Hefði Guð­mundur hins vegar verið skatt­lagður á sama hátt og Kári leggur til, það er að fjár­magnstekjur hefðu verið skatt­lagðar sem launa­tekjur væru, hefði Guð­mundur greitt um 180 millj­ónir í skatta, ríf­lega tvö­falda þá upp­hæð sem hann greiddi.

Næstur á lista yfir tekju­hæstu Kópa­vogs­bú­ana er Gunnar Birg­is­son, stjórn­ar­for­maður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins G. Ingason og stjórn­ar­for­maður SLS eigna. Gunnar hafði 395 millj­ónir króna í tekjur á síð­asta ári, þar af 380 millj­ónir í fjár­magnstekjur. Hann greiddi 89 millj­ónir króna í skatt og af því voru 83,5 millj­ónir tekju­skattur.

Í sætum fjögur og fimm eru enn karl­menn, þeir Gylfi Ómar Héð­ins­son og Gunnar Þor­láks­son, eig­endur og stjórn­endur Bygg­ing­ar­fé­lags Gylfa og Gunnars. Gylfi hafði 290 millj­ónir króna í tekjur, þar af 260 millj­ónir í fjár­magnstekjur og greiddi 69 millj­ónir í skatt. Tekjur Gunnars námu 281 milljón og þar af voru 254 millj­ónir fjár­magnstekjur. Af þessu greiddi Gunnar skatt sam nam 66 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2021

Samtöl við skattakónga
ViðtalTekjulistinn 2021

Samtöl við skatta­kónga

Þau sem eru hluti af 1 pró­sent tekju­hæstu Íslend­ing­unum sam­kvæmt álagn­inga­skrá eiga margar og mis­mun­andi sögur að baki, bæði af sigrum og sorgum. Stundin ræðir við nokkur þeirra. „Svo þegar ég er búinn að eign­ast alla þessa pen­inga núna þá kann ég ekk­ert að nota þá,“ segir næst­hæsti skatt­greið­andi á land­inu. „Það má and­skot­inn vita hvað verður gert við þetta,“ segir skatta­kóngur að vestan.
Reykvísk fjölskylda hagnaðist um 2,5 milljarða á tæknilausnum í baráttunni við Covid-19
FréttirTekjulistinn 2021

Reykvísk fjöl­skylda hagn­að­ist um 2,5 millj­arða á tækni­lausnum í bar­átt­unni við Covid-19

Inga Dóra Sig­urð­ar­dóttir er skatta­drottn­ing Íslands. Hún hagn­að­ist um tæpa tvo millj­arða á sölu á hluta­bréfum í danska fyr­ir­tæk­inu ChemoMetec, ásamt eig­in­manni sínum, Berki Arn­við­ar­syni. Synir hennar tveir högn­uð­ust báðir um tæpar 250 millj­ónir króna og eru á lista yfir 50 tekju­hæstu Íslend­ing­ana árið 2020.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár