Bræðurnir Gylfi Viðar, Guðmundur Huginn og Páll Þór Guðmundssynir eru í þremur efstu sætunum yfir tekjuhæstu Vestmannaeyingana á síðasta ári. Gylfi og Guðmundur eru báðir skipstjórar á Hugin VE en Páll er fyrrverandi framkvæmdastjóri útgerðarinnar Hugins.
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum keypti hlut þeirra bræðra í útgerðinni á síðasta ári, en fyrir átti Vinnslustöðin 48 prósenta hlut í Hugin. Þeir Gylfi og Guðmundur áttu hvor um sig 17,15 prósent hlut í fyrirtækinu en Páll átti 14,85 prósent. Systir þeirra bræðra, Bryndís Anna, átti svo 2,84 prósent hlut.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir