Kaupfélagsmenn skattakóngar á Norðurlandi vestra

Skatta­kóngurinn á Norður­landi vestra er Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmda­stjóri Fisk Seafood, útgerðar­félags Kaup­félags Skagfirðinga. Þórólfur Gíslason kaup­félags­stjóri og Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðar­kaup­félags­stjóri sitja einnig á listanum, Sigurjón í öðru sæti og Þórólfur í því fjórða. Ásamt kaup­félags­mönnunum eru húsa­smiður og skip­stjóri á listanum.

Skattakóngar Norðurlands vestra
Skatta­kóngar Norð­ur­lands vestra Þeir Frið­björn Ásbjörns­son, Þórólfur Gíslason og Sigurjón Rúnar Rafnsson eru þrír af þeim fimm sem greiddu mestan skatt á Norð­ur­landi vestra á árinu 2020. Þeir tengj­ast allir Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga.

Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmda­stjóri Fisk Seafood, er skatta­kóngur Norður­lands vestra árið 2020 en Friðbjörn greiddi rúmar 23 milljónir í skatta fyrir árið 2020. Friðbjörn, sem er fæddur árið 1984, er sonur Ásbjarnar Óttars­sonar sem sat á þingi fyrir Sjálfstæðis­flokkinn á árunum 2009-2013. 

Ásbjörn var sjómaður og svo útgerðar­maður áður en hann sat á þingi en hann stofnaði ásamt öðrum fisk­vinnslu- og útgerðar­fyrirtækið Nesver á Hellis­sandi á Snæfellsnesi árið 1987. Friðbjörn sonur hans var lengi vel framkvæmda­stjóri þeirrar útgerðar ásamt því að vera framkvæmda­stjóri útgerðarinnar Soffaníasar Cecilsssonar á Grundar­firði sem Fisk Seafood keypti árið 2017. 

Útgerðarfélag kaupfélagsins

Fisk Seafood er dóttur­fyrirtæki Kaup­félags Skagfirðinga en Þórólfur Gíslason kaup­félags­stjóri og Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðar­kaup­félags­stjóri sitja einnig á lista yfir þá fimm aðila sem greiddu hæstu skatta í lands­hlutanum á síðasta ári, Sigurjón í öðru sæti.

Samkvæmt álagningar­skrá skattsins fær Friðbjörn rétt rúmar 4 milljónir í laun á hverjum mánuði ársins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2021

ViðtalTekjulistinn 2021

Samtöl við skatta­kónga

Þau sem eru hluti af 1 prósent tekju­hæstu Íslend­ing­unum samkvæmt álagninga­skrá eiga margar og mismun­andi sögur að baki, bæði af sigrum og sorgum. Stundin ræðir við nokkur þeirra. „Svo þegar ég er búinn að eignast alla þessa peninga núna þá kann ég ekkert að nota þá,“ segir næsthæsti skatt­greiðandi á landinu. „Það má andskotinn vita hvað verður gert við þetta,“ segir skatta­kóngur að vestan.

27 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár