Sjálfstæðisflokkurinn rúmlega tvöfalt sterkari en Framsókn

Flestir flokk­anna á svip­uðu róli með á milli 10 og 12 pró­senta fylgi en Sjálf­stæð­is­flokkur mælist með 25 pró­sent. Sós­í­alistar mæl­ast yfir 5 pró­senta mark­inu enn einu sinni.

Sjálfstæðisflokkurinn rúmlega tvöfalt sterkari en Framsókn
Vinir Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafa unnið saman síð­asta kjör­tíma­bilið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist næst stærstur í nýbirtri könnun MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem áður stærstur en fylgi hans dregst saman um tvö pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins. Flokk­ur­inn mælist nú með 25,4 pró­senta fylgi. Framsókn bætir við sig 3,5 pró­sentu­stigum frá þeirri könnun og mælist nú með 12,2 pró­senta fylgi. 

Margir flokkar mæl­ast á sama bili og Framsókn; Píratar með 12,2 pró­sent, VG 11,9 pró­sent, Sam­fylk­ing 10,6 og Viðreisn svo með 9,1 pró­sent stuðn­ing. Miðað við vik­mörk könn­un­ar­innar er ekki mark­tækur munur á fylgi þess­ara flokka, nema Við­reisnar, sem þó gæti verið að sigla á sömu slóðum og Sam­fylk­ing. 

Mið­flokk­ur­inn er aðeins fyrir neðan þessa, með 6,6 pró­senta stuðn­ing sam­kvæmt mæl­ingu MMR.

Flokkur fólks­ins mælist inni á þingi með 5,5 pró­sent en það gerir Sós­í­alista­flokk­ur­inn líka, með 5,3 pró­senta fylgi. Báðir flokkar hafa verið í kringum fimm pró­senta markið í und­an­förnum könn­unum en Sós­í­alistar hafa ekki boðið fram til þings …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár