Leikskólastarfsmaður á Jörfa lenti á spítala með súrefnisgjöf: „Af því einhver ákvað að brjóta sóttkví“

Lilja Guð­munds­dóttir sem vinnur á leik­skól­anum Jörfa þurfti að leggj­ast fár­veik inn á sjúkra­hús vegna Covid-19 smits. Hún er ung og hraust en veikt­ist illa af veirunni og þakkar fyrir að fjöl­skyldan hafi ekki smit­ast líka. Nú er hún afar gagn­rýnin á sótt­varn­ar­ráð­staf­anir á landa­mær­unum.

<span>Leikskólastarfsmaður á Jörfa lenti á spítala með súrefnisgjöf: </span>„Af því einhver ákvað að brjóta sóttkví“
Sárlasin á spít­ala Lilja þurfti að leggj­ast inn á spít­ala vegna veik­ind­anna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lilja Guð­munds­dóttir, starfs­maður á leik­skól­anum Jörfa, þurfti að leggj­ast inn á sjúkra­hús fyrir helgi vegna mik­illa veik­inda af völdum Covid-19. Hún var með mik­inn hita og þurfti að fá vökva í æð og súr­efn­is­gjöf. Lilja er nú komin heim og er fegn­ust því að fjöl­skyldan hennar skyldi ekki smitas.

Smit sem tengj­ast Jörfa eru orðin 107 tals­ins Þar af eru þrjá­tíu af um hund­rað börnum smituð og 23 af 33 stars­mönnum eftir því sem RÚV greindi frá. Fyrstu smitin greindust 16. apríl síð­ast­liðin. Eru smitin á leik­skól­anum rakin til ein­stak­lings em ekki virti sótt­kví við kom­una til lands­ins.

Fékk lungnabólgu vegna vírussins 

Lilja fann fyrst fyrir ein­kennum 16. apríl en fékk stað­fest­ingu á að hún væri með veiruna 17. apríl eftir því sem á leið hrak­aði henni og í síð­ustu viku var hún með háan hita í nokkra daga. „Það end­aði á því að ég var beðin um að koma inn á spít­ala, ég var komin með 40 stiga hita á föstu­dags­morg­un­inn. Þá kom í ljós að ég var komin með lungna­bólgu vegna vírus­ins,“ segir Lilja. Hún ber mikið lof á heil­brigð­is­starfs­fólk sem hún segir að hafi fylgst mjög vel með sér. „Þetta var rosa­lega góð þjón­usta. Það var hringt í mig á hverjum degi til að athuga hvernig ég hefði það.“

„Samt enda ég á spít­ala í þrjár nætur af því ein­hver ákvað að brjóta sótt­kví. Þetta er alveg ömur­legt.“

Lilja var sem fyrr segir lögð inn á Land­spít­al­ann mikið veik síð­ast­lið­inn föstu­dag. „Ég þurfti að fá vökva í æð, víruslyf og stera. Það var fylgst mjög vel með súr­efn­is­mett­un­inni í blóð­inu og þegar hún var orðin lág þurfti ég að fá súr­efn­is­gjöf.“ Gefa þurfti henni súr­efni allt þar til á sunnu­dag en hún fékk að fara heim af spít­al­anum í gær, mánu­dag.

Lilja segir að hún sé á bata­vegi þótt hún sé enn tals­vert veik. „Ég er ekki með neinn hita í dag og öll að koma til en ég er ennþá mjög slöpp. Ég er ekki með neitt þol en það kemur bara með tím­anum. Ég er að gera önd­unaræf­ingar og svona núna.“

Óþolandi að fólk brjóti sóttkví

Spurð hvort hún hafi haft fregnir af því hvernig börnum á leik­skól­anum Jörfa líði, sem og sam­starfs­fólki hennar, segir Lilja að hún hafi ekki heyrt af börn­unum. „Ég veit að ég hef verið með þeim veik­ari af starfs­mönn­unum en það eru fleiri sem hafa verið mjög slappir.“

Í við­tali við Stundina í síð­ustu viku fór Lilja hörðum orðum um þá sem gagn­rýnt hafa sótt­varn­ar­að­gerðir og sömu­leiðis að ekki hafi verið tekin harð­ari stefna varð­andi þær aðgerðir á landa­mær­unum. Hún segir stöð­una með öllu óþol­andi. „Ég er ung og hraust, ekki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, reyki ekki eða neitt en samt enda ég inni á spít­ala í þrjár nætur af því ein­hver ákvað að brjóta sótt­kví. Þetta er alveg ömur­legt.“

Lilja býr heima hjá fjöl­skyldu sinni en eng­inn af hennar fólki smit­að­ist af Covid-19. Hún segir að það sé mikil lukka. „Ég er rosa­lega ánægð með það, sér­stak­lega að pabbi varð ekki veikur því hann er með astma. Ég tók þetta vel fyrir fjöl­skyld­una, ég tók að mér að fá Covid fyrir alla fjöl­skyld­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hópsmit á Jörfa

Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Engin Jörfa­gleði í dag

Í morgun var ansi hljótt fyrir utan leik­skól­ann Jörfa, enda hafa 16 starfs­menn af rúm­lega þrjá­tíu og 14 börn greinst smituð af Covid-19. Um næstu mán­aða­mót mun allt leik­skóla­starfs­fólk verða bólu­sett. Hin eina og sanna Jörfa­gleði var viki­vaka­dans­leikur seint á 17. öld sem hald­inn var á bænum Jörfa í Dala­sýslu, þar til sýslu­mað­ur­inn Björn Jónsson tók sig til og bann­aði hann árið 1695, vegna sögu­sagna um sið­leysi. En árinu áður höfðu 30 börn komið undir á sam­kom­unni og erfitt reynd­ist að para feður við anga.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár