Fréttamál

Hópsmit á Jörfa

Greinar

FréttirHópsmit á Jörfa

Leik­skóla­starfs­maður á Jörfa lenti á spít­ala með súr­efn­is­gjöf: „Af því ein­hver ákvað að brjóta sótt­kví“

Lilja Guð­munds­dóttir sem vinnur á leik­skól­anum Jörfa þurfti að leggj­ast fár­veik inn á sjúkra­hús vegna Covid-19 smits. Hún er ung og hraust en veikt­ist illa af veirunni og þakkar fyrir að fjöl­skyldan hafi ekki smit­ast líka. Nú er hún afar gagn­rýnin á sótt­varn­ar­ráð­staf­anir á landa­mær­unum.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Engin Jörfa­gleði í dag

Í morgun var ansi hljótt fyrir utan leik­skól­ann Jörfa, enda hafa 16 starfs­menn af rúm­lega þrjá­tíu og 14 börn greinst smituð af Covid-19. Um næstu mán­aða­mót mun allt leik­skóla­starfs­fólk verða bólu­sett. Hin eina og sanna Jörfa­gleði var viki­vaka­dans­leikur seint á 17. öld sem hald­inn var á bænum Jörfa í Dala­sýslu, þar til sýslu­mað­ur­inn Björn Jónsson tók sig til og bann­aði hann árið 1695, vegna sögu­sagna um sið­leysi. En árinu áður höfðu 30 börn komið undir á sam­kom­unni og erfitt reynd­ist að para feður við anga.

Mest lesið undanfarið ár