364. spurningaþraut: „Hér mætir Mikkel, sjá!“

364. spurningaþraut: „Hér mætir Mikkel, sjá!“

Þraut frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á hvaða yfir­gefna stað býr ref­ur­inn sem sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað þýðir kven­manns­nafnið Rán?

2.   Vostok heitir stöðu­vatn eitt á afskekktum stað. Það er 17. stærsta stöðu­vatn í heimi, 12.500 fer­kíló­metrar eða eins og vel rúm­lega tíundi hluti Íslands. Það er hins vegar mjög djúpt, 436 metrar að með­al­tali og er því 6. vatns­mesta stöðu­vatn í heimi. Um líf í því er eig­in­lega ekk­ert vitað. Hvar er stöðu­vatnið Vostok?

3.   Í hvaða leik­riti heyr­ast þessi orð: „Hér mætir Mikkel, sjá! með mjóa kló á tá, og mjúkan pels og merk­is­svip, sem mekt­ar­bokkar fá.“

4.   Tón­list­ar­maður kom eins og storm­sveipur inn í íslenskt tón­list­ar­líf árið 2011 með lag­inu Set mig í gang, gaf svo út vin­sæla plötu 2015 en fer­ill­inn hefur svo verið ögn brokk­gengur, og tón­list­ar­mað­ur­inn horfið öðru hvoru úr sviðs­ljós­inu. Hvað heitir þessi tón­list­ar­maður?

5.    Í ára­tugi náðu yfir­leitt alltaf bara fjórir flokkar kjöri á Alþingi Íslend­inga. Í kosn­ingum 1953 brá þó svo við að nýr flokkur her­stöðv­ar­and­stæð­inga náði tveimur mönnum á þing. Hvað nefnd­ist hann?

6.   Næst gerð­ist það í kosn­ingum 1971 að annar „fimmti flokkur“ náði inn þing­mönnum. Flokk­ur­inn hét Samtök frjáls­lyndra og vinstri manna, en hvað hét for­maður hans og drif­kraftur?

7.   Hvað hét fræg­asta bók Bram Stokers?

8.   Hvað hét konan sem flutti opin­beran fyr­ir­lestur fyrst kvenna á Íslandi — og varð síðan kunn kven­rétt­inda­kona?

9.   Hvað heitir stærsta eyjan í Mið­jarð­ar­haf­inu?

10.   En hvaða eyja í því hafi er fjöl­menn­ust?

***

Seinni auka­spurn­ing:

„Dans­stúlkan“ er styttan hér að neðan kölluð.  Hún er rúmir 10 senti­metrar á hæð og var mótuð í brons fyrir 4.500 árum. Dans­stúlkan er fræg­asta styttan sem fund­ist hefur af til­teknu menn­ing­ar­svæði. Hvaða menn­ing­ar­svæði er það? Svarið verður að þessu sinni að vera þokka­lega nákvæmt.

 ***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Alda.

2.   Á Suð­ur­skauts­land­inu, undir íshell­unni.

3.   Dýrin í Hálsa­skógi.

4.   Gísli Pálmi.

5.   Þjóð­varn­ar­flokk­ur­inn.

6.   Hannibal Valdi­mars­son.

7.   Dracula.

8.   Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir.

9.   Sikiley.

10.   Líka Sikiley.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin í Térnóbyl.

Styttan á neðri mynd­inni til­heyrði Indus­dals-menn­ing­unni. Því miður dugar ekki að segja Indland.

***

Þraut frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár