363. spurningaþraut: Dreggjar dagsins og fleira til

363. spurningaþraut: Dreggjar dagsins og fleira til

Hér er þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Að ströndum hvaða lands rífur sig upp sú alda sem sést á mynd­inni að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Kristinn Styr­kárs­son Proppé hefur feng­ist við sitt af hverju, en fyrir hvað verður hann alltaf þekkt­astur?

2.   Hver skrif­aði bók­ina Dreggjar dags­ins eða Remains of the Day uppá ensku?

3.   Eftir þeirri skáld­sögu var gerð rómuð bíó­mynd. Leikari nokkur fékk mikið lof fyrir frammi­stöðu sína í hlut­verk James Stevens, bryt­ans í Dar­l­ington Hall. Hvaða leik­ari var það?

4.   Hvað heitir þétt­býl­is­stað­ur­inn norðan Borg­ar­fjarðar við Faxaflóa?

5.   Hvaða frægu bók skrif­aði Lewis Carroll?

6.   Hvaða íslenski rit­höf­undur skrif­aði bækur eins og Stjórn­lausa lukku, Fólkið í kjall­ar­anum, Vetr­ar­sól og Stóra skjálfta?

7.   Hvaða hverfi í Reykja­vík hefur póst­núm­erið 109?

8.   Íslensk leik­kona gat sér gott orð fyrir hálfum öðrum ára­tug fyrir leik sinn í dönsku spennu­þátt­unum Örninn — um danskan leyni­þjón­ustu­mann af íslenskum ættum. Hver er leik­konan?

9.   Sjón­varps­per­sóna ein er átta ára og hefur verið lengi, hefur greind­ar­vísi­tölu upp á 159 (mjög hátt) og er í gáfu­manna­sam­tök­unum Mensa?

10.   Hvað hét loft­skip sem fuðr­aði upp 6. maí 1937 og varð til þess að far­þega­flug með loft­skipum lagð­ist af?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á þessu skjá­skoti?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Söng. Hann er for­söngv­ari Stuð­manna í kvik­mynd­inni Með allt á hreinu, leik­inn af Agli Ólafs­syni.

2.   Ishiguro.

3.   Anthony Hopkins.

4.   Borg­ar­nes.

5.   Lísu í Undra­landi.

6.   Auður Jóns­dóttir.

7.   Breið­holtið.

8.   Elva Ósk.

9.   Lisa Simpson.

10.   Hinden­burg.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Aldan fellur að ströndum Japans. Þetta er víð­fræg japönsk mynd.

Konan er Meryl Streep kvik­mynda­leik­kona sem býr fyrir vestan haf.

Hana má sjá í allri sinni dýrð hér til hliðar.

***

Hér er þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár